25.02.1954
Efri deild: 52. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1107 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)

12. mál, áfengislög

Brtt. 56,6 felld með 10:3 atkv. 11. gr. samþ. með 12 shlj. atkv.

Brtt. 56,7 felld með 10:4 atkv.

— 385,5 felld með 8:8 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: LJóh, SÓÓ, AE, BSt, BBen, HermJ, IngF, JK. nei: PZ, VH, BrB, FRV, HG, JJós, KK, GíslJ.

1 þm. (GÍG) fjarstaddur.

2 þm. gerðu svofellda grein fyrir atkv.:

Jóhann Jósefsson: Herra forseti. Þessi brtt. víkur þannig frá greininni í sjálfu frv., að ef hún verður samþ., þá er hægt að sniðganga vilja kjósenda, sem hafa ekki óskað eftir að hafa opinberan útsölustað í plássinu, og láta veita vín á veitingahúsum eða skemmtistöðum, þó að samþykkt hafi verið að loka útsölu áfengisverzlunarinnar. Mér virðist það vera sú breyting frá frv., er í þessu felst. Ég get ekki aðhyllzt þess háttar aðferð og segi nei.