02.03.1954
Efri deild: 55. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (1042)

12. mál, áfengislög

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Mér koma þessar umræður satt að segja dálítið á óvart, því að á þeim eina fundi, sem allshn. hefur haldið síðan frv. var samþ. hér við 2. umr., var talað um að fara í gegnum frv., og sjálfur var ég á föstudaginn var byrjaður að skrifa niður nokkrar brtt. og hélt, að n. mundi fara í gegnum það, því að það voru í því ákvæði, sem n. var öll sammála um að ætti að breyta. Þetta hefur nú ekki verið gert enn þá, og frv. er komið hér til umr., og forseti segir mér, að það hafi ekki verið farið fram á það, að því væri frestað. Við því er þá ekkert að segja, enda sé ég, að sumar af þeim tillögum, sem ég vissi að nefndin hafði hugsað sér að gera, eru komnar fram hér frá öðrum flutningsmönnum.

Viðvíkjandi því, sem 1. þm. Eyf. var að segja viðvíkjandi því, sem ég sagði hér við 2. umr., vil ég bara benda honum á það, af því að hann er í menntmn. og hefur fengizt við kennslu, að það þýðir ekki að bera hið sama á borð fyrir menn í öllum bekkjum skólans upp í gegn. Þeir þurfa að vera orðnir dálítið þroskaðir til að taka á móti sumu af því, sem á að kenna þeim, og þýðir ekki að fá þeim í 1. eða 2. bekknum það, sem þeir þurfa fyrst að læra og eru færir um að nota sér, eftir að þeir eru búnir að ná þeim þroska, sem þarf til að vera í 5., 6. bekk eða enn þá ofar. Öðru skal ég ekki svara því.

Brtt., sem ég var búinn að forma hérna á föstudaginn, — og þær hefðu reyndar orðið fleiri, hefði ég haft tíma til þess, — eru í fyrsta lagi við 9. gr. Ég legg til, að 2. málsl. hennar orðist þannig: „Ríkisstj. ákveður jafna álagningu til allra með hliðsjón af áfengisstyrkleika og innkaupsverði.“ En 3. málsl. gr. falli niður. — Þessi breyting innifelur það í sér, að ríkisstj. eigi að ákveða verðið á áfenginu og að selja það með sama verði til allra, og þá er óþarfi að vera að taka það fram, eins og gert er í síðasta málsl., að ekki megi gefa afslátt. Það er þá komið af sjálfu sér með því að ákveða, að verðið eigi að vera jafnt til allra. Ég tel þetta alveg sjálfsagðan hlut, bæði að ríkisstj. ákveði álagninguna og verðið sé jafnt til allra og fari eftir áfengisstyrkleika og innkaupsverði.

Þá var ég búinn að „nótera“ niður hér brtt. við 12. gr., en þær eru komnar fram frá öðrum. Það var, að c-liðurinn félli niður. Ég vissi ekki annað en öll n. ætlaði sér að flytja till. um það, hefði hún fengið tíma til þess. Og í staðinn fyrir a–c í 3. málsgr. komi: a–b. Þetta er komið frá öðrum, og ég get tekið þær aftur, þegar að því kemur; þær standa á blaðinu, af því að það er eins og ég skrifaði þær á föstudaginn.

Þá er ég búinn að útbúa hér brtt. við 18. gr. Hún tekur fram, að með þeirri undantekningu, sem segir í 10., 11. og 12. gr., sé öllum óheimilt að veita eða selja eða láta af hendi áfengi til annarra manna gegn því, að gjald eða annað verðmæti komi fyrir. En í 20. gr. kemur svo aftur, að lögreglustjóri megi veita félögum undanþágu, og þá mega þau sjálfsagt kaupa sér vín, þegar þau fá undanþáguna. Þess vegna legg ég til, að við 18. gr. sé bætt inn: „Í stað orðanna „10., 11. og 12. gr. segir“ komi: 10., 11., 12. og 20. gr. segir“ — að mönnunum, sem fá þessa undanþágu eftir 20. gr., sé þá heimilt að kaupa vínið einhvers staðar.

Það voru fleiri atriði í frv., sem ég hafði hugsað mér að koma með brtt. við, en ég hef ekki mátt vera að eiga við síðan ég sá dagskrána og málið kom núna fyrir. Og ég tel það yfirleitt heldur illa farið, að n. skyldi ekki fá tíma til þess að fara í gegnum frv. og athuga það nánar. Að öðru leyti skal ég ekki segja meira um þetta mál. Ég er, eins og ég hef alltaf verið, alveg ákveðinn bannmaður og tel, að á því þroskastigi, sem við stöndum núna, séum við ekki komnir í þann bekk, að það sé hægt að leggja heildinni það nám á herðar, sem hún á að hafa af freistingu áfengisins, það verði að biða síðari bekks — annarrar jarðvistar þessarar kynslóðar.