02.03.1954
Efri deild: 55. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í B-deild Alþingistíðinda. (1044)

12. mál, áfengislög

Forseti (GíslJ):

Ég vil að gefnu tilefni um þessa brtt. benda á, að b-liðurinn í 1. brtt. er um að fella niður ákvæði, sem sett var inn við 2. umr., og sé ég enga ástæðu til þess að vísa þessari brtt. frá. Það er í samræmi við það, sem ég úrskurðaði áður um atriði, sem mundi koma til atkvæða.