24.03.1954
Neðri deild: 67. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1159 í B-deild Alþingistíðinda. (1068)

12. mál, áfengislög

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Þetta mál, sem hér er til umræðu, er svo veigamikið og grípur svo inn í þjóðlífið allt, að í raun og veru er það efni í langa ræðu. Ég mun samt sem áður ekki tala langt mál, a.m.k. við þessa umræðu, en láta nægja að gera með örfáum orðum grein fyrir brtt., sem ég flyt.

Hv. þm. Borgf. hefur borið fram allmargar brtt. við þetta frv. og gert grein fyrir þeim hér við fyrri hl. þessarar umræðu. Ein af þeim brtt. fjallar um það, að 12. gr. frv. falli niður. Ef sú brtt. verður samþykkt, þá kemur brtt., sem ég flyt við sömu gr., vitanlega ekki til atkv. En fari svo, að hv. þingdeild fallist ekki á brtt. hv. þm. Borgf., þá mun koma til atkv. sú brtt., sem ég flyt og prentuð er á þskj. 502.

Þegar áfengislög voru sett 1935, þá var sett í þau heimild til handa dómsmrh. að veita einn veitingahúsi í Reykjavík leyfi til þess að selja áfenga drykki. Allir þeir dómsmrh., sem set,ið hafa í ríkisstj. síðan 1935, notuðu þessa heimild, þangað til nú fyrir rúmu ári, að hæstv. núverandi dómsmrh. hætti að nota heimildina og ákvað, að þetta veitingahús skyldi ekki hafa sölu á vinveitingum fremur en önnur veitingahús hér í bænum. Þessi till. mín er því í fullu samræmi við þá framkvæmd málsins, sem fylgt hefur verið í rúm 20 ár. Hún er aðeins staðfesting á þeirri framkvæmd.

Það er oft til þess vitnað, hve alþingishátíðin 1930 var með miklum glæsibrag og virðuleg á allan hátt fyrir íslenzku þjóðina. En sá forsrh., sem þá var hér á landi og stóð fyrir þeim hátíðahöldum, lét ekki veita vin í veizlum, sem hann stóð fyrir í samhandi við þá hátíð, þrátt fyrir það þótt fjöldi erlendra gesta frá ýmsum löndum væri þá hér í heimsókn og tæki þátt í slíku hátíðahaldi. Þetta dæmi sannar, að það er vissulega hægt fyrir forustumenn þjóðar að koma virðulega fram og halda vegleg samsæti án þess að hafa áfengi um hönd. Og ég hygg, að það sé ekki ofmælt, að það muni verða dómur sögunnar, að forsrh. 1930, Tryggvi Þórhallsson, standi ekki að baki öðrum, sem farið hafa með framkvæmdavald í þessu landi.

En því miður er það staðreynd, að dæminu frá 1930 er ekki fylgt í þessu landi, og með tilliti til þeirrar staðreyndar verður ekki hjá því komizt í sambandi við móttöku erlendra gesta, að þeir, sem slíka móttöku hafa á hendi, vilja gjarnan hafa aðstöðu til — og telja nauðsyn bera til þess að hafa aðstöðu til að hafa vinveitingar um hönd í samkvæmum, sem þeir halda. Og þegar á þetta er litið, þá er það ljóst, að eitt veitingahús hér í Reykjavík, Hótel Borg, hefur nokkra sérstöðu að þessu leyti í samanburði við önnur veitingahús. Sú sérstaða hefur og verið viðurkennd með þeirri framkvæmd, sem ég minnti á að verið hefur á þessum málum nú um rúm 20 ár.

2. og 3. liður brtt. minnar fjalla um það að fella niður úr frv. heimild til handa lögreglustjóra til þess að veita félögum rétt til þess að hafa um hönd veitingar áfengis. Þessar till. eru efnislega samhljóða till., sem hv. þm. Borgf. hefur borið fram um þetta efni og gert grein fyrir af sinni hálfu, svo að ég tel ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þessa liði brtt. En það vakir fyrir mér að taka af þann vanda, sem verið hefur fyrir lögreglustjóra og dómsmrh. að þræða þann meðalveg, sem þörf er á í sambandi við slíkar leyfisveitingar, og virðist vera á allan hátt bezt fyrir alla aðila, að það sé fastákveðið í lögunum, hvort slík leyfi skuli veita eða ekki. Það er og mín sannfæring, að löggjafinn eigi á allan hátt að stuðla að því, að vin sé ekki haft um hönd í samkvæmum félaga, og slík samkvæmi sé hægt að halda fyllilega eins ánægjuleg, þótt aðeins sé notazt við óáfenga drykki og önnur veizluföng, en áfengi sé þar ekki um hönd haft.

4. brtt. er aðeins orðabreyting og miðar til leiðréttingar á frv. Í 28. gr. frv., eins og það hefur komið frá hv. Ed., er talað um það, að fræðslumálastjórnin skuli sjá um, að skólarnir fái kennslubækur og kennslukvikmyndir eftir því, sem við á. Eins og orðalagið er í frvgr., þá virðist þetta vera of viðtækt. Slíkt ákvæði ætti nánast heima í fræðslulögum. Hér er vitanlega átt við kennslubækur og kennslukvikmyndir til fræðslu um áhrif áfengisnautnarinnar, og legg ég til, að þeim orðum verði bætt inn í gr. til þess að taka af öll tvímæli í þessum efnum.

Ég mun svo ekki fjölyrða um málið að þessu sinni og læt þessar skýringar nægja um þær brtt., sem ég hef lagt fram á þskj. 502.