24.03.1954
Neðri deild: 67. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1169 í B-deild Alþingistíðinda. (1071)

12. mál, áfengislög

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti Í 9. gr. þessa frv. segir m.a. á þessa leið: „Óheimilt er að gefa veitingamönnum afslátt frá hinn ákveðna útsöluverði til almennings.“

Hv. allshn. þessarar d. hefur lagt fram allmargar brtt. við frv., og 3. brtt. hennar á þskj. 489 er um það að fella niður þetta ákvæði úr 9. gr., sem ég nefndi áðan. Ég tel sízt ástæðu til að fella þetta niður og mun því greiða atkvæði gegn þessari brtt. n. og vænti þess, að sem flestir aðrir geri það einnig. Annars vil ég taka það fram út af till., að ég tel þær fleiri til bóta á frv. En ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 526 brtt. við þennan lið í 9. gr., sem ég hef hér gert að umtalsefni. Ég legg til, að á eftir orðinu „veitingamönnum“ komi: eða öðrum. — Ég tel sem sagt, að áfengisverzlunin eigi ekki að gefa neinum viðskiptamönnum afslátt frá hinu ákveðna útsöluverði til almennings, hvorki veitingamönnum né öðrum.

Það mun hafa tíðkazt um alllangt skeið, að einstakir menn hafa fengið áfengi hjá áfengisverzluninni við miklu lægra verði heldur en almennt gildir á hverjum tíma. Þetta tel ég að eigi ekki þannig að vera, og ég hef ásamt ýmsum öðrum þm. oft á undanförnum þingum gert tilraunir til þess að fá þessari reglu hrundið. Við höfum stundum flutt um þetta þáltill., en venjulega hafa þær ekki fengið hér fullnaðarafgreiðslu eða komizt til úrslita í þingi. Þá höfum við oftar en einu sinni borið fram brtt. um þetta í sambandi við afgreiðslu fjárlaga, en þær hafa ekki heldur hlotið samþykki, og ég hef jafnvel heyrt suma menn, sem hafa greitt atkvæði gegn þeim, halda því fram, að slík ákvæði ættu alls ekki heima í fjárlögum, og kann það að hafa valdið nokkru um afdrif þessara tillagna. Nú verður hins vegar ekki um það deilt, að ákvæði um þetta á vel heima í þessum lögum, og vænti ég þess, að máli þessu verði vel tekið af deildarmönnum.

Þá er hér annað atriði í till. hv. allshn., sem ég vildi minnast á. 9. brtt. hennar er um það, að í frv. verði bætt nýrri gr., um áfengisvarnanefndir, sem eiga að vera í öllum hreppum og kaupstöðum landsins. Þessar n. eiga að vera skipaðar 3 mönnum í hreppum, 7 í kaupstöðum öðrum en Rvík, þar sem n. á að vera skipuð 9 mönnum. Í till. segir á einum stað, að kostnaður við störf nefndanna greiðist úr ríkissjóði, að öðru leyti en því, að hlutaðeigandi hreppur eða kaupstaður greiði fyrir nauðsynlegt húsnæði handa þeim. Ég vil leyfa mér að leggja hér fram brtt. um þetta atriði, þess efnis, að nefndirnar skuli vera ólaunaðar, en kostnaður við störf þeirra, ef einhver er, greiðist úr ríkissjóði, að öðru leyti en því, að hlutaðeigandi hreppur eða kaupstaður greiði fyrir nauðsynlegt húsnæði, og er það eins og gert er ráð fyrir í till. allshn. Ég vil benda á það, að verði þessi gr. samþykkt og nefndirnar þar af leiðandi skipaðar, þá verða þetta líklega um 700 menn um allt land, sem verða starfandi í þessum nefndum, og mér finnst því rétt að taka það fram, að þær eigi ekki að fá laun fyrir sín störf, það gæti orðið nokkuð mikið að launa allan þann fjölda. Ég tel líka, að í öllum sveitarfélögum og kaupstöðum muni vera fólk, sem fúslega vilji taka þetta starf að sér sem sjálfboðaliðar án þess að fá fyrir það nokkur laun, og vænlegast teldi ég það einmitt, að slíku fólki væri falið það starf, sem þarna er gert ráð fyrir að þessar nefndir hefðu með höndum. Brtt. mín er því, eins og áður segir, um það, að tekið verði fram í lögunum, að nefndirnar verði ólaunaðar. Ég kom ekki auga á þetta atriði fyrr en nú nýlega og þarf því að biðja hæstv. forseta að taka við þessari brtt. minni skriflegri og leita afbrigða fyrir henni.

Það er að sjálfsögðu margt í þessu frv. og brtt. við það, sem fyrir liggja, sem gæti verið ástæða til að gera að umtalsefni, en ég mun ekki gera það a.m.k. við þessa umræðu, enda nú dagur að kvöldi kominn.