24.03.1954
Neðri deild: 67. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)
12. mál, áfengislög
Frsm. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Það var út af till. hv. þm. V-Húnv. á þskj. 526 og þeirri grg., sem frá hans hendi fylgdi þessari till., sem ég vildi gjarnan minnast á.
Ég tók það fram í minni framsöguræðu, að sú málsgr. í 9. gr., sem n. leggur til að felld verði niður og fjallar um það, að ekki megi gefa veitingamönnum afslátt frá venjulegu útsöluverði, er eingöngu felld niður af n. vegna þess, að hún telur, að hér sé um hreint framkvæmdaratriði að ræða, eins og það, að ekki er tekið fram í þessum l., hvaða verð skuli vera á áfengi í áfengisverzluninni. Hins vegar vakti það ekki fyrir n., eins og þó virðist hafa verið skilið af sumum, að veitingamönnum væri gefinn afsláttur frá verðinu.
Í sambandi við till. hv. þm. V-Húnv. rak ég augun í síðasta orðið í brtt. hans, en hún er svona: „Á eftir orðinu „veitingamönnum“ komi: eða öðrum.“ En hv. þm. var svo hugulsamur að útskýra, hvað hann ætti við með þessu orði „öðrum“, og kom þá á daginn, að hv. þm. á þar aðallega við ráðherra og nokkra aðra, sem fá áfengi vegna embættis síns með lægra verði en áfengisverzlunin selur á til almennings. Mér finnst það nú koma úr hörðustu átt, að hv. þm. V-Húnv. skuli lauma slíkri till. eins og þessari hér inn og án þess að ráðh. séu viðstaddir. En það mætti segja mér, að þessi till., sem hann flytur hér, yrði til þess, að till. n. yrði samþ. Ég vil einnig benda hv. þm. á það, að það eru fleiri en ráðh., sem fá áfengi úr áfengisverzluninni með lækkuðu verði. Það eru m.a. sendiherrar og sendisveitir erlendar. Þetta mundi þá eftir túlkun hv. flm. einnig ná til erlendra sendisveita, sem hér dvelja og talið er sjálfsagt að geti fengið áfengi með innkaupsverði, eins og tíðkast yfirleitt erlendis að sendisveitir fái það. Ég vildi benda honum á, að það mundi vera talið nokkuð óvenjulegt að banna að selja þessum aðilum áfengið á þann hátt sem þeir hafa fengið undanfarið.