24.03.1954
Neðri deild: 67. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1182 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)

12. mál, áfengislög

Einar Ingimundarson:

Herra forseti. Hv. þm: Borgf. varð mjög tíðrætt um það í ræðum sínum, bæði hér áðan og í gær, og hneykslaðist á því, að ég sem meðlimur allshn. Nd. hefði skrifað undir nál., þar sem lagt var til, að heimildin til tilbúnings sterks öls í 2. gr. frv:, eins og það kom frá hv. Ed., yrði felld niður, en síðan gerzt meðflm. að brtt. við 7. gr. frv. á þskj. 519, þar sem gert er ráð fyrir heimild til handa ríkisstj. til að leyfa tilbúning öls með allt að 31/2% vínandainnihalds miðað við þunga. Ég vil út af þessu skírskota til nál. hv. allshn. á þskj. 489, þar sem tekið er beinlínis fram í upphafi þess, að nm. áskilji sér rétt til að flytja brtt. eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma.

Út af þessum ummælum hv. þm. Borgf„ að mér skildist helzt um, að ég hafi ekki vitað, hvað ég var að gera, þar sem ég flutti brtt. við 7. gr. þessa frv., þá vil ég taka það fram, að mér skilst, að hann hafi alls ekki lesið þetta nál., eða a.m.k. hefur honum þá algerlega skotizt yfir upphaf nál., þar sem tekið er fram, að einstakir nm. áskilji sér rétt til að flytja og fylgja brtt., sem fram kunna að koma.

Það væri ekki nein furða, þó að hv. þm. hefði hneykslazt á því, hefði ég flutt brtt. við 2. gr. frv., sem n. lagði til að breytt yrði, því að þá hefði málið horft allt öðruvísi við, en það bara gerði ég ekkí. Ég gerðist meðflm. að brtt. við 7. gr. frv., en ekki 2. gr.

Ég var sammála hinum nm. í hv. allshn. um, að eins og heimildin í 2. gr. frv. um tilbúning öls, sem inniheldur meira en 21/4% af vínanda að rúmmáli, er orðuð, sé greinin lítt frambærileg, því að þár er því slegið föstu, að öl, sem inniheldur allt að 31/2% af vinanda að þunga, sé ekki áfengur drykkur í venjulegri merkingu þess orðs. Þetta er að mínum dómi hæpin staðhæfing, því að ef svo væri, kæmust þeir menn, sem væru ölvaðir eða undir áhrifum þess öls, sem þeir neyttu, ekki lögum samkvæmt undir ákvæðin um menn, sem hafa neytt áfengis, og væri ekki hægt að meðhöndla þá sem slíka, og mundi þetta leiða til margvíslegra flækja; því að sem sagt, þá menn, sem væru undir áhrifum slíks drykkjar, sem slegið er föstu í frv. að sé ekki áfengi, en væru samt undir áhrifum áfengis og hefðu viðurkennt það og ölvun þeirra væri augljós, væri ekki hægt að meðhöndla og dæma sem menn undir áhrifum áfengis. Þrátt fyrir þessa afstöðu mína til þessarar greinar eins og hún er orðuð í frv., eins og það liggur nú fyrir, mun ég fyrir mitt leyti taka allt aðra afstöðu til beinnar og ódulbúinnar heimildar til að leyfa tilbúning sterkara öls, enda hef ég nú sýnt þá afstöðu mína með því að gerast meðflm. að brtt. við 7. gr. á þskj. 519.

Að mínu áliti er það alls ekki fyrir fram sannað, að tilbúningur öls, sem innihéldi meira vinandamagn en það öl, sem nú er heimilt að gera samkv. íslenzkum l., mundi leiða til aukins drykkjuskapar. Um slíkt er auðvitað alls ekki hægt með neinu móti að fullyrða fyrir fram, og vil ég benda á, að það er hálfur sannleikur, en ekki allur, þegar sagt er, að áfengisneyzla t.d. Finna hafi stóraukizt, eftir að tilbúningur áfengs öls var leyfður þar aftur árið 1948. Sannleikurinn er sá, að neyzla brennivíns í Finnlandi hefur stórminnkað á árunum 1949–52 eða neyzla þess drykkjar, sem menn verða mest og verst ölvaðir af, en hins vegar er það rétt, að neyzla léttra vína og öls hefur farið vaxandi þar í landi, síðan leyfð var bruggun sterkara öls.

Ég fyrir mitt leyti tel það ekki neina öfugþróun í áfengismálum neinnar þjóðar, þó að neyzla sterkra vina fari minnkandi, en neyzla léttra vina og öls fari vaxandi.

Annars er það áberandi fyrir málflutning þeirra manna, sem halda uppi andróðri gegn heimildinni til að búa til sterkara öl, að þeir vitna aðeins í reynslu þeirra þjóða af sterku öli, þar sem áfengismálin eru í mesta ólagi og þjóðirnar virðast kunna sízt með áfengi að fara. Þeir vitna í Norðurlandaþjóðirnar, og það er staðreynd, að þær neyta víns í óhófi, eða a.m.k. kemur það þannig út, að áfengismagn verður mjög mikið á hvern íbúa, en þessir menn hafa t.d. ekki minnzt á áfengisneyzlu stórra þjóða, eins og Breta, Bandaríkjamanna og Þjóðverja. Ég veit að vísu ekki um tölur í þessu sambandi, en ég staðhæfi þó, að áfengisneyzla einhverra þessara stórþjóða er minni hlutfallslega heldur en áfengisneyzla Norðurlandaþjóðanna. (PO: Hvað er að segja um Frakka?) Frakkar drekka ekki öl, Frakkar drekka létt vín. Þess vegna verður þeirra áfengisneyzla á hvern íbúa svo há. Ég hef aldrei heyrt fara neinar sögur af því, að Frakkar væru bjórþambarar eins og kallað er. Hins vegar eru Þjóðverjar það, og ég efast um, að áfengisneyzla Þjóðverja á hvern íbúa sé meiri en áfengisneyzla Norðurlandaþjóðanna á hvern íbúa, og raunar veit ég, að hún er minni. Hvort það stafar af því, að Þjóðverjar eru einhverjir mestu bjórdrykkjumenn í heimi, eða ekki, það skal ég láta hv. þm. Borgf. um að dæma.

Annars er það sannfæring mín, að tilbúningur og neyzla sterkara öls en nú er leyft að brugga hér á landi mundi ekki leiða til aukins drykkjuskapar í þessu landi, heldur mundi draga úr honum, og eftir þeirri sannfæringu minni mun ég greiða atkv. um þetta frv.