05.04.1954
Neðri deild: 77. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (1089)
12. mál, áfengislög
Páll Þorsteinsson:
Frá því að áfengislög þau voru sett, sem enn þá gilda, hafa vinveitingar í veitingahúsum einungis verið leyfðar í Reykjavík og raunar bundnar við eitt veitingahús hér í bænum.
Í 12. gr. þessa frv. er það nýmæli, að samkvæmt henni verður heimilt að veita leyfi til vínveitinga í öllum kaupstöðum landsins, ef þau veitingahús, sem í hlut eiga, falla undir það að teljast 1. flokks. Mér finnst alls kostar eðlilegt, um leið og þetta nýmæli er lögfest, eins og allar líkur benda til að verði, að leitað sé til bæjarstjórna í hlutaðeigandi kaupstöðum, áður en ákvæði sem þetta kemur til framkvæmda, og leyfi verði því aðeins veitt til vinveitinga, að hlutaðeigandi bæjarstjórn hafi fallizt á, að slík starfsemi verði tekin upp í kaupstaðnum. Ég geri ráð fyrir því, að um þetta verði einungis leitað til bæjarstjórna í eitt skipti, áður en þetta ákvæði kemur til framkvæmda. Um þetta fjallar brtt., sem ég flyt á þskj. 661.
En nú geta að sjálfsögðu komið til greina allmörg veitingahús í hverjum kaupstað fyrir sig og það talizt álitamál, hvort þau falli í I. flokk eða hve mörgum veitingahúsum eigi að veita leyfi. Í sambandi við það geri ég till. um þá orðalagsbreytingu við 3. málsgr. 12. gr., að leitað sé umsagnar hlutaðeigandi bæjarstjórnar í hvert sinn sem um slík mál er fjallað, þ.e. um hvert einstakt veitingahús fyrir sig.
Þá legg ég enn fremur til, að 4. málsgr. 12. gr. falli niður, en hún er um það, að dómsmrh. skuli heimilt að veita veitingahúsum utan kaupstaða leyfi til vínveitinga, ef telja má, að veitingahúsreksturinn sé aðallega fyrir erlenda ferðamenn. Ég legg til, að þessi málsgr. falli niður. Og b-liður brtt. minnar fjallar um að stytta þann tíma, sem vínveitingaleyfi gildir, þannig að í stað þess, að í frvgr. er sá tími ákveðinn 4 ár, komi 2 ár.
Enn fremur hef ég leyft mér að bera fram á þskj. 662 till. ásamt hv. 11. landsk. þm. og hv. þm. V-Húnv. Sú till. er um það, að dans megi ekki fara fram í veitingahúsum á þeim tímum, sem vin er veitt þar, nema um sé að ræða samkomur félaga, sem hafa fengið leyfi samkv. 20. gr.
Við 2. umr. þessa máls lá fyrir till. um sama efni, en hún var í því formi, að það ætti að vera á valdi ráðh. að ákveða í hverju falli, hvort þetta skyldi leyft eða ekki.
Það, sem fyrir okkur flm. þessarar till. vakir, er fyrst og fremst það, að það er kunnara en frá þurfi að segja, að ungt fólk, sækir þangað, sem dansleikir eru hafðir, og verði sú skipun tekin upp að leyfa dansleiki í veitingahúsum ótakmarkað eða á hverju kvöldi, jafnhliða því að vín er veitt þar, þá virðist okkur, að það muni auka mjög aðsókn fólks, einkum ungs fólks, að slíkum stöðum, og að hitt muni draga nokkuð úr aðsókninni, ef vín er veitt þar aðeins undir borðum, en dansleikir fari ekki fram í veitingahúsunum á sama tíma og vin er veitt. Að sjálfsögðu er eðlilegt, að undanþágur frá þessu gildi um samkomur félaga, sem fara fram samkvæmt sérstöku leyfi lögreglustjóra, og er síðari hluti till. miðaður við það, að slík undanþága komi til greina.