09.04.1954
Neðri deild: 84. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (1137)

202. mál, smáíbúðabyggingar

Frsm. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Hv. fjhn. þessarar d. hefur athugað þetta frv. og mælir með því einróma, að það verði samþ. eins og það liggur fyrir.

Það er kunnugt mál, að á undanförnum árum hafa verið sívaxandi örðugleikar fyrir menn almennt með að koma upp þeim byggingum, sem nauðsynlegar eru, bæði til sjávar og sveita. Síðan verð fór svo mjög hækkandi, eins og raun er á, á efni og flutningum og vinnu, hafa örðugleikarnir farið sívaxandi og þurft meira og meira lánsfé í þessu skyni. Síðan byggingarsjóðslögin frá 1946 voru samþ., hefur þó verið hægt svona almennt að gera sveitamönnum nokkra úrlausn í þessu efni frá hálfu Búnaðarbankans, en fram að 1951 voru það hreinustu vandræði fyrir alla, sem í kauptúnum bjuggu, að fá nokkurt lánsfé til afnota í þessu skyni.

Undanfarin tvö ár hefur fyrir atbeina hæstv. ríkisstj. verið nokkurt fé lánað til smáíbúðabygginga í kauptúnum og kaupstöðum, og hefur reynslan sýnt og sannað það, sem raunar var almennt áður vitað, að þörfin á þessu sviði er ákaflega mikil og þær lánsupphæðir, sem veittar hafa verið, ófullnægjandi til þess að fullnægja henni. Nú er þess vegna mjög rík þörf, að haldið verði áfram á þessu sviði, og það hefur verið hæstv. ríkisstj. og hennar stuðningsflokkum mjög ljóst að nauðsyn bæri til að gera, og þess vegna er þetta frv. flutt og kemur væntanlega til framkvæmda, því að ég efast ekki um, að hv. Alþ. verði sammála um að fylgja því áfram, þannig að það verði samþykkt, áður en þingi verður slitið. Hins vegar, eins og tekið er fram í grg. þessa frv., hefur því verið slegið á frest að gera viðtækari ráðstafanir til framkvæmda í byggingarmálum, og má gera ráð fyrir því, að það verði undirbúið fyrir næsta þing.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, en vil endurtaka það fyrir hönd hv. fjhn., að hún mælir einróma með, að frv. verði samþ.