07.12.1953
Neðri deild: 34. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)
101. mál, þingfararkaup alþingismanna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það er út af einu atriði í sambandi við þetta mál, sem ég vil segja nokkur orð. Á Alþingi eiga nú sæti allir, sem kosnir eru til þess að setjast á þing, og auk þess ráðherrar, þótt þeir séu ekki þingmenn. Mér finnst það vera fullkomið réttlætismál, að ráðherrar, sem eru ekki alþm., fái þingfararkaup þann tíma, sem þeir eru ráðherrar. Þeir eiga að sitja hér á þinginu og verða að gera það, verða að fylgjast með þingstörfum og taka þátt í þeim í raun og veru sem ráðherrar.
Ég ætla að leyfa mér að flytja hér ásamt hv. þm. G-K. (ÓTh) skriflega brtt. um, að inn í 1. gr. þessa frv. verði bætt ákvæði um þetta. Ég vænti þess, að hv. þm. finnist þetta vera fyllsta sanngirnismál, og sé ekki ástæðu til að fjölyrða um það. Nú er aðeins sá hængur á, að það mun líða hálf mínúta eða svo þangað til ég hef skriflegu brtt. tilbúna, en vona, að það komi ekki að sök og hæstv. forseti vilji doka við.