17.12.1953
Efri deild: 39. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í B-deild Alþingistíðinda. (1329)

101. mál, þingfararkaup alþingismanna

Forseti (GíslJ):

Út af ummælum hv. 2. landsk. vil ég taka það fram að það hefur verið haft samráð við n. frá hv. ,Nd. Ég sé því ekki ástæðu til þess að vísa málinu til n., nema því aðeins að hv. þm. vilji halda fast fram að fá atkvgr. um það. Var það till. frá hv. þm., sem hann óskar að sé borin upp til atkv.? (Gripið fram í: Það voru fyrst og fremst tilmæli.) Ég sé ekki ástæðu til þess að fresta afgreiðslu málsins, með þeim skýringum, sem ég þegar hef gefið, og er málið því til umr. hér og verður afgreitt á þessum fundi