17.12.1953
Efri deild: 38. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1300 í B-deild Alþingistíðinda. (1351)

90. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forsetl. Mér þykir mjög furðulegt að heyra svo greinagóðan þm. og fjölfróðan vera jafnókunnugan þessum málum, sem hann er að tala um, eins og hv. 1. þm. N–M. (PZ) er auðsjáanlega þessu máli, og er nú ólíkt honum. Það hefur aldrei fyrr borið við í þessari d., að hann hafi ekki vitað um þær staðreyndir, sem hann hefur fullyrt. En svo ber nú samt við að þessu sinni.

Í fyrsta lagi er það alveg rangt hjá honum, að ríkið hafi lagt nokkurt fé til að kaupa Kvíabryggju. Í það hefur ekki verið lagður einn eyrir af hálfu ríkisins. Það sem þar hefur átt sér stað, er það, að samið hefur verið við Reykjavíkurbæ um, að hann keypti jörðina og kæmi þar upp fullkomnum húsakosti og aðbúnaði, til þess að hægt væri að reka stofnun, sem ríkið síðan tæki við rekstrinum á. Úr þessari yfirtöku hefur enn þá ekki orðið, vegna þess að dómsmrn. telur, að húsakostur og aðbúnaður í Kvíabryggju sé enn ekki með slíkum hætti, að þar sé hægt að reka þá stofnun, sem til var ætlazt. Þess vegna hefur ríkið enn þá ekki haft neinn tilkostnað af þessari stofnun. (PZ: Heimildin er í lögunum.) Það hefur aldrei verið veitt heimild til þess að leggja fé í stofnkostnað á Kvíabryggju, svo að sú heimild er ekki fyrir hendi. Hitt er allt annað mál, að það hefur verið veitt fé á fjárl. til þess að standa undir rekstrinum, og því fé hefur ekki verið eytt, af því að stofnunin er ekki komin í gagnið enn þá.

Það var ekki aðeins, að þetta væri misskilningur hjá hinum glöggskyggna og alvitra þm., heldur hitt einnig, að það hafi nokkru sinni staðið til, að þessi stofnun yrði drykkjumannahæli. Hennar verkefni hefur verið fyrirhugað allt annað. Í landslögum hefur lengi verið það ákvæði, að ríkið hefur verið og ér skylt til að sjá fyrir aðstöðu til þess að láta þá, sem skulda barnsmeðlög, vinna þau af sér, ef þeir fást ekki til þess að greiða þau með öðrum hætti. Um alllangt árabil hefur ríkið ekki getað fullnægt þessari skyldu sinni, af því að fangelsin, þar sem menn áður afplánuðu þessar skuldir, hafa verið svo áskipuð mönnum, sem hafa haft refsidóma, og hinir orðið að mæta afgangi. Þess vegna var þessi samningur gerður við Reykjavíkurbæ, að hann kæmi upp þessari stofnun og ríkið síðan fullnægði þeirri skýldu, sem á því hefur hvílt langa hríð, að standa undir kostnaðinum af afplánun manna á barnsfaðernisskuldum, og ég veit sannast sagt ekkert, hvort þeir, sem það skulda, eru frekar óreglumenn eða drykkjumenn en bindindismenn, góðtemplarar, það hefur engin athugun átt sér stað á því. Það er alveg óháð því, hvort menn eru hneigðir til áfengisdrykkju eða ekki, hvort þeir eiga börn og enn fremur hvort þeir borga meðlag með börnunum. Hér er því, eins og ég sagði, um gersamlega ólíkt mál að ræða, sem kemur drykkjumannavandamálinu ekki neitt við.

Ég vonast til þess, að Reykjavíkurbær nú í vetur eða á næsta vori komi Kvíabryggju í viðunandi horf. Dómsmrn. mun ekki taka við stofnuninni eins og hún enn er útbúin, þótt Reykjavíkurbær hafi viljað afhenda hana. Ég tel ómögulegt að reka þá stofnun nema með frekari aðgerðum, en þegar búið er að koma henni í samningshæft horf, verður hún rekin fyrst og fremst fyrir þessa menn, sem skulda barnsmeðlög, þ.e. skulda bæjarsjóði Reykjavíkur. Að öðru leyti gæti komið til mála að taka þar menn, sem skulda barnsmeðlög annars staðar á landinu, og í þriðja lagi þá menn, sem eiga áð afplána sektir eða minni háttar refsidóma. En að blanda drykkjusjúklingum þar saman við, tel ég ekki að komi til neinna mála og hefur aldrei verið rætt um.

Þessar upplýsingar vildi ég að kæmu hér fram, af því að minn ágæti og glöggskyggni vinur, hv. 1. þm. N-M., hafði hér mjög blandað málum.

Um það frv., sem hér liggur fyrir, vil ég að öðru leyti segja það, að ég hef örugga sannfæringu fyrir, að það er full þörf á því, að sú stofnun komist í horf, og mér þykir sannast sagt mjög merkilegt, að hv. 1. þm. N-M. skuli finna að því, að nú skuli eiga að gera gangskör að því að koma viðhlítandi skipun á þessi mál, því að m.a. hefur blaðið Tíminn mjög rækilega bent á nauðsyn aðgerða í þessum efnum, og þó að margt, sem þar segir um áfengismálin, sé heldur haldlítið, þá eru þessar aðfinningar og ábendingar réttar: Hitt hefur verið alger misskilningur hjá því mæta blaði, að ásaka bæjarstjórn Reykjavíkur eða dómsmrn. fyrir aðgerðaleysi í þeim efnum. Þetta mál hefur heyrt undir og heyrir enn undir heilbrmrn., en ekki dómsmrn., og það er í raun og veru engin von til þess heldur, að Reykjavíkurbær taki að sér stofnun slíks hælis, þar sem nú er áætlað, að ríkið hafi meira en hálft hundrað milljóna kr. í ágóða af áfengisverzluninni, og það virðist vera sú minnsta krafa, sem hægt er að gera á ríkið þar á móti, að það standi undir kostnaðnum við að koma slíkri stofnun upp. Það var mjög eðlilegt, að það stæði í öðrum mönnum að fara að taka þann kostnað á sig, og mér finnst það mjög til bóta að þetta frv. hefur nú loks náð samþykki ND. og verður vonandi afgr. hér, áður en þingi verður frestað, þannig að þessu nytjamáli verði borgið.