17.12.1953
Efri deild: 39. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (1356)

90. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil einungis geta þess, að ég svaraði ekki fsp. hv. þm. út af Úlfarsá vegna þess, að hún hvorki heyrir né hefur nokkru sinni heyrt undir mitt rn, og er mér að því leyti með öllu óviðkomandi. Úlfarsá og allar aðgerðir þar, síðan hún var tekin til þessara nota, hafa heyrt undir heilbrmrn. og gera það enn þá. Það er því ýmist núv. eða fyrrv. hæstv. heilbrmrh., sem verða að svara fsp. varðandi það mál. Hvort nokkur ágreiningur á sér stað um rekstur þess hælis milli sérfræðinga, um það er mér ókunnugt. Hitt veit ég, að það stóð alltaf til og var ákveðið, þegar löggjöfin var sett um þetta mál 1949, að hælin yrðu tvö. Annars vegar hæli hliðstætt því, sem nú er komið upp á Úlfarsá, og hins vegar önnur hæli, ég sagði, að þau yrðu tvö, og þá á ég við, að þau yrðu tvenns konar, hælið á Úlfarsá, sem nú er, og svo hæli, sem sveitarstjórnir og ríki kæmu upp í sameiningu. Það hefur ekki orðið samkomulag milli ríkis og . sveitarstjórna um að koma upp slíku hæli, og ég tel það, alveg eins og ég taldi þá, mjög ósanngjarnt að ætlast til þess, að sveitarstjórnirnar taki þennan kostnað á sig. Það eina, sem e.t.v. mætti finna að í þessum efnum, er það, ef bæjarstjórn Reykjavíkur hefur einhvern tíma léð máls á því að reisa slíkt hæli. Hafi hún gert það, þá hefur hún gert það vegna þess, að ekki voru fjármunir til annars staðar frá til að koma því upp. Með l. frá 1949 var hins vegar efnt íil þess að safna fé til að koma upp þvílíku hæli. Það er að vísu ráðgert, að þáð yrði í sameiningu og samvinnu við sveitarsjóði, en reynslan sýnir, að það hefur safnazt svo mikið fé í þennan sjóð, að það er nóg til þess að hefja framkvæmdir með ríkisframlaginu einu. Og úr því að það fé er nóg og þar sem ríkið hefur hinar gífurlegu tekjur af áfengissölunni hvert einasta ár, þá verða allir að játa, að það væri mjög úr vegi að fara að leggja sérstaka skatta á borgarana í Reykjavík til þess að koma hælinu upp. Það eina sanngjarna og eðlilega er, að ríkið standi undir þessum kostnaði. Þess vegna er þetta frv. fram komið, og mér skilist, að um það sé nokkurn veginn samkomulag og að það sé meira vegna þess, að minn ágæti vinur vilji hrista úr klaufunum, ef svo nú segja, heldur en að ætla að stangast á móti málinu, sem hann heldur uppi þessu málþófi hér í deildinni.