05.03.1954
Efri deild: 57. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í B-deild Alþingistíðinda. (1389)

123. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Þetta frv. er ekki stórt að vöxtum, það er aðeins breyting á þremur orðum í lögum, sem nú gilda um verðjöfnun á olíu og benzíni. Og breytingin er í því fólgin, að í staðinn fyrir orðin „missiri í senn“ komi: þrír mánuðir í senn, — eða með öðrum orðum, að sú stjórn, sem fer með verðjöfnunarsjóðinn á olíu og benzíni, hefur að fenginni reynslu talið það hentugra, meðan reynsla er að fást um framkvæmd á þessu atriði að ákveða verðjöfnunargjaldið fyrir þrjá mánuði í stað missiris áður.

Það er m.a. ástæða til breytingarinnar, að það sé óeðlilegt, að svo háar innstæður safnist í verðjöfnunarsjóðinn sem nú safnast, ef verðjöfnunin er ákveðin fyrir hálft ár í senn. Það er víst lítill vafi á því, að þetta er eðlileg breyting, og hefur allshn. verið á einu máli um að mæla með því, að frv., eins og það liggur fyrir, verði samþykkt.