09.03.1954
Efri deild: 59. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1312 í B-deild Alþingistíðinda. (1428)

137. mál, stjórn flugmála

Sigurður Ó. Ólafsson:

Herra forseti. Þegar mál þetta var tekið til 3. umr. í s.l. viku, kom hæstv. dómsmrh. með skriflega brtt. við frv., sem prentuð er á þskj. 424, að í stað orðanna „flugmála- og flugvallastjóri“ í frv. komi: flugmálastjóri. — Ég fór þá fram á, að umr. yrði frestað, til þess að samgmn. gæfist kostur á að taka afstöðu til brtt. Samkomulag náðist ekki í n. um að taka afstöðu til till., og hafa nm. óbundnar hendur um atkvgr. málsins. Annars, eins og fram hefur komið áður, er þetta frv. flutt í Nd. að tilhlutun hæstv. flugmrh. og samþ. óbreytt þar. Samgmn., sem fjallaði um þetta mál, kom ekki með neina brtt. við það þrátt fyrir ábendingu hæstv. dómsmrh. við 1. umr. Annars var þessu frv. ekki fylgt. úr hlaði, þegar það var lagt hér fyrir þessa hv. d., en hæstv. flugmrh. hefur ekki óskað eftir því við samgmn., að breyt. yrði gerð á frv. En þar sem ég sé nú, að hæstv. ráðh. er mættur hér í d., þá geri ég ráð fyrir, að hann segi eitthvað um þetta mál.