17.12.1953
Efri deild: 38. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1313 í B-deild Alþingistíðinda. (1436)

128. mál, verðlagsskrár

Flm. (Andrés Eyjólfsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr. og er flutt af mér og hv. þm. V–Sk. (JK), er á þskj. 306, 128. mál. — Ég tel, að ekki sé þörf á langri framsögu. Frv. þetta er ekki margbrotið og er auk þess að mestu byggt á l. um undirbúning verðlagsskráa frá 16. nóv. 1897, en þau lög eru enn í gildi, en auk þess d þeirri venju, sem skapazt hefur um framkvæmd þeirra laga.

Það hefur verið uppi orðrómur um, að afnema bæri þessi lög, þar sem notkun þeirra í daglegum viðskiptum væri niður fallin. Svo mun líka vera í sumum héruðum. En við eftirgrennslan hefur þó komið í ljós, að svo er ekki alls staðar á landinu. Enn munu verðlagsskrár sums staðar vera lagðar til grundvallar fyrir viðskiptum manna í nokkrum tilfellum, einkum í sambandi við jarðaleigu. Þótti því sýnt, að eigi væri tímabært að afnema þær að svo stöddu.

Hér kom og einnig til greina það sjónarmið ýmissa, að landauraviðskiptin ættu sögulegan rétt á sér og þá einnig verðlagsskrárnar í sambandi við þau. Þetta er sjónarmið, sem ekki er hægt að ganga á snið við að öllu leyti. Það er vitanlegt, að viðskipti manna á milli og einnig við hið opinbera fóru að langmestu leyti fram í landaurum frá öndverðu og fram til okkar daga og viðskiptin voru miðuð við verðlagsskrárnar. Það hafa því komið fram till. um, að landaurakerfið bæri að taka upp að nýju og leggja það til grundvallar viðskiptum manna. Sú kenning mun enn eiga sér forsvarsmenn, en þetta er annað mál, og skal eigi meira um það rætt.

Þá kom til athugunar það sjónarmið að gera samningu verðlagsskrárinnar einfaldari og fyrirhafnarminni. Í lögum nr. 16 frá 6. nóv. 1897, sem enn eru í gildi, er svo fyrir mælt, að þriggja manna nefnd í hverju sveitarfélagi eða bæjarfélagi skuli semja verðlagsskrá í októbermánuði ár hvert. Í nefndum þessum áttu sæti formaður skattanefndar, prestur og svo þriðji maður, sem kosinn var af hreppsnefnd eða bæjarstjórn. Verðlagsskýrslan úr hverjum hreppi sendist síðan sýslumanni, er semur upp úr þeim öllum eina verðlagsskrá fyrir allt verðlagskrárumdæmið. Skýrslu sína ásamt fylgiskjölum á sýslumaður svo að senda stiftyfirvöldunum (frá 1904 vitanlega stjórnarráðinu), sem staðfestu hana. Þetta eru þau lög, sem enn gilda, og eru. þau byggð á konungsúrskurði frá 16. júli 1817, sem fyrirskipar samningu verðlagsskráa á sama veg í grundvallaratriðum, þó að framkvæmd undirbúningsins væri nokkuð á annan hátt.

Eins og getið er um áður, þá er frv. þetta fram borið til þess að gera samningu verðlagsskránna fyrirhafnarminni í framkvæmd. En jafnframt ætti sú tilhögun að stuðla að meira samræmi milli hinna einstöku héraða.

Ef bornar eru saman verðlagsskrár frá því fyrir aldamót og verðlagsskrár þær, sem nú gilda, eða árið 1953, þá er varla hægt að verjast þeirri hugsun, að nokkuð muni vera kastað höndunum til um samningu þeirra. Er það og skiljanlegt, þar sem þýðing þeirra í viðskiptalífinu er orðin sáralitil. Þannig er meðalalin í verðlagsskrárumdæmum árið 1897 lægst 45 aurar, en hæst 56 aurar, en þá voru ýmis opinber gjöld og viðskipti manna á milli miðuð við landaura. Að vísu var þá orð á því haft, að nokkur tilhneiging væri í þá átt að gera verðlagsskrána ekki allt of háa. Það er líka um aldamótin síðustu, sem höfundur Alþingisrímna lætur einn frambjóðanda við alþingiskosningar segja við kjósendur sína:

„Verðlagsskráin verður lág,

vondu minnka gjöldin,

ef þið viljið lið mér ljá“ o. s. frv.

Þessi mismunur, sem þá var nálægt 20%, bendir til, að nokkurt samræmi hafi verið í verðlagningunni, því að mismunandi aðstaða, vænleiki búfjár o.fl., gerir eðlilega nokkurn mismun milli héraða.

Séu verðlagsskrár þær, sem gildandi eru í ár, athugaðar, kemur í ljós, að lægsta meðalalinin ér kr. 6.44, en sú hæsta kr. 14.11. Sýnist þar vera nokkuð breitt bil á milli, þar sem er töluvert meira en helmingsmismunur.

Hitt atriðið, sem ég nefndi, að gera samningu verðlagsskránna óbrotnari og fyrirhafnarminni, er þó höfuðtilgangur þessa frv. Hér er yfirskattanefndum hvers verðlagsskrárumdæmis gert að semja verðlagsskrá, er gildir fyrir það allt. Hverfur þá nefndarstarfið heima í sveitunum og fyrirhöfn sýslumanns að vinna úr þeim skýrslum óg skápa úr þeim eina verðlagsskrá fyrir umdæmið. Í stað þess semji yfirskattanefndin verðlagið í einu lagi og færi í skrárnar. Nú er það verk yfirskattanefnda að semja um sama leyti skrá um verðlag á búfénaði og afurðum íbúa síns héraðs vegna framtals til tekju- og eignarskatts. Er því sú vinna, sem þeim er lögð á herðar samkvæmt þessu frv., lítið önnur en sú að færa fundnar tölur inn á verðlagsskrárform. Hér mun því verða um léttara starf að ræða og a.m.k. ekki verr af hendi leyst en er eftir núgildandi lögum.

Um önnur atriði frv. þessa ér fátt að segja. Þau eru. ýmist nálega samhljóða núgildandi lögum eða þá að lagt er til, að lögfest verði venja, sem skapazt hefur við framkvæmd l. frá 1891. Svo er t.d. um skiptingu landsins í verðlagsskrárumdæmi svo og hitt, að sýslumaður hvers umdæmis hafi forustu um samningu verðlagsskrár og annist sendingu hennar til fjmrn. Reglurnar um verðlagningu þeirra búfjártegunda og vara, er teljast til verðlagsskráa, eru hinar sömu og tíðkazt hafa og núgildandi lög gera ráð fyrir.

Það er nýmæli í 4. gr. frv., að gert er ráð fyrir því, að ef fjmrn, telur samningu verðlagsskrár að einhverju leyti ábótavant, þá geti það sent verðlagsskrána til ríkisskattanefndar til athugunar. Geri ríkisskattanefnd till. til breytinga á verðlagsskránni, skal rn. taka þær til greina og staðfesta hana samkvæmt þeim. Þykir rétt að taka upp þessi ákvæði, og er það í samræmi við þær reglur, sem nú gilda um framtalsskýrslur til tekjuskatts og eignarskatts, þar sem úrskurðarvaldið er hjá ríkisskattanefnd.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta frv. Óska ég þess, að því verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.