13.11.1953
Efri deild: 20. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í B-deild Alþingistíðinda. (1458)

78. mál, sala jarða í opinberri eigu

Forseti (GíslJ):

Ég heyrði á hv. frsm. n., að hann taldi eðlilegast, að þessar till. væru teknar aftur til 3. umr., og lofaði þá að athuga málið. Ég teldi nú heppilegra að fresta umr., þangað til n. er búin að athuga málið, og mun því gera það. Ég mun fresta umr. og óska eftir því, að hv. form. n. athugi till. ásamt sínum meðnm., svo að liggi fyrir nokkurn veginn umsögn n. um málið, áður en þessari umr. lýkur.