16.11.1953
Efri deild: 21. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (1462)

78. mál, sala jarða í opinberri eigu

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil nú leyfa mér að þakka hv. frsm. landbn. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf hér í sambandi við till. á þskj. 157. Hann telur, að það sé ekki hægt að afgreiða málið í n. fyrr en frekari upplýsingar liggja fyrir um það, hvort sinnt verði óskum sýslumannsins í Barðastrandarsýslu um að fá eyðijörðina Hellu til ábúðar eða jafnvel til kaups. Ég skil ekki að það hafi mikil áhrif á þetta mál, hvort samningar takast á milli sýslumannsins í Barðastrandarsýslu og eiganda Hellu um það, hvort hann megi í orði kveðnu hafa bú á þessari jörð, því að vitanlega ætlar hann sér ekki að fara að búa þar. Sá sumarbústaður, sem hv. þm. talaði um, að hann hefði byggt á Hellu, — það má nú öllu nafn gefa, — er ekki annað en skúr, sem komast inn í 2–3 menn, ef þeir standa þar, og fluttur hefur verið þangað á litlum flutningsbíl og getur aldrei orðið neitt frambúðarhúsnæði fyrir ábúanda, enda þannig frá honum gengið, að hægt er að kippa honum með sér hvenær sem maður vill. Hef ég haft tækifæri til þess að skoða það reisulega hús. Þessi bústaður út af fyrir sig sé ég ekki að komi mikið þessu máli við. Ég hygg líka, að á bak við liggi það hjá sýslumanni að fá yfirráðarétt yfir þessu stóra landflæmi, sem fylgir þarna, til þess að geta m.a. ráðið því, hvort nokkrir aðrir nota landið, en ekki af því að hann eða hans fjölskylda ætli að fara að búa þar. Ég sé því ekki, að það mál út af fyrir sig komi nokkurn skapaðan hlut við afgreiðslu minnar till. á þskj. 157.

Þá sagði hv. frsm. einnig, að byggingarbréfið fyrir bóndann, sem nú er á Brjánslæk, væri enn ekki undirritað. Ég vildi gjarnan heyra frá einhverjum, er vissi um, hver er ástæðan fyrir því. Ætli ástæðan sé ekki sú, sem ég minntist nokkuð á hér um daginn, að það væri búið að fara svo með þessa jörð, ef bréfið yrði undirskrifað og skiptin og gerningurinn látinn haldast, að þá væri ómögulegt á eftir að fá nokkurn prest að Brjánslæk? Og þá furðar mig ekkert á því, þó að skrifstofustjórinn fyrir kirkjumálaráðuneytinu dragi það dag eða viku eða mánuð að undirskrifa slíkt byggingarbréf. Reynslan hefur þegar sýnt það, að það er útilokað að fá nokkurn prest á jörðina, ef á að uppfylla þá samninga, sem búið er að gera um þessa jörð í sambandi við ábúanda. Ég átti tal um þetta á sínum tíma við þá nefnd manna, sem hafði til athugunar frv. um breyt. á prestaskipunarlögunum, sem samþ. var hér fyrir nokkru, og einn nm., Sveinbjörn Högnason, og raunar fleiri nm. tóku mjög eindregið undir það, að það væri alveg ófyrirgefanleg ráðstöfun, sem þá hefði verið gerð af viðkomandi aðilum, að fara með Brjánslæk eins og búið var að fara með hann, því að það er alveg útilokað, að þangað fengizt nokkur prestur, og þess vegna yrði jörðin að vera í slíkri niðurníðslu eins og hún hefur verið um mörg ár og ómögulegt væri að rétta það við. Ég vildi nú mega biðja hv. form. og frsm. að athuga það, hvort hann getur ekki átt sinn þátt í því persónulega, að öllu þessu yrði kippt til baka. Ég veit ekki, hvað mikinn þátt hann hefur átt í því, að farin var þessi leið, en hann gæti þá kannske átt einhvern þátt í því að gera hér á þá nauðsynlegu leiðréttingu, svo að allir þeir samningar yrðu upphafnir og byggingarbréfið verði aldrei undirritað. Það væri nú það bezta fyrir alla aðila og mest til sóma fyrir þá menn, sem hafa haft með þetta mál að gera áður.

Ég sé því ekki, að hvorugt þetta mál komi nokkurn hlut við afgreiðslu minnar till. Það er engan veginn óeðlilegt og ekkert því til fyrirstöðu að selja ábúandanum jörðina með því landi, sem honum hefur verið úthlutað sem beitilandi sem ábúanda, því að ef það er nægilegt fyrir jörðina, að hann hafi það beitiland eingöngu sem ábúandi um aldur og ævi og jafnvel hans niðjar, þá er ekkert því til fyrirstöðu, að það sé einnig nægilegt, að hann hafi það sem eigandi jarðarinnar. Það breytir engu um möguleika til þess að búa á jörðinni, hvort landið er selt honum eða hvort það er afhent honum með þeirri kvöð, að hann verði að láta það aftur af hendi, þegar jörðin gengur úr ættinni eða hann fer þaðan. Ég sé því ekki, að það séu neinir erfiðleikar á því að selja jörðina með því landi, sem þegar hefur verið skipt til hans sem beitilandi. Ef hann hins vegar á einnig rétt á því að hafa ítök í Brjánslæk sem ábúandi á jörðinni, þá sé ég ekki heldur, að það megi ekki líka selja þau ítök, svo að það getur ekkert verið því til fyrirstöðu, að gengið sé frá málinu nú þegar, en ég vil hins vegar mjög gjarnan fá um það efnislega afgreiðslu.

Ég skal gjarnan verða við þeim tilmælum hv. frsm. að taka till. aftur til 3. umr. og fá þá efnislega afgreiðslu um það, hvort d. vill mæla með því að selja jörðina án þeirrar kvaðar, að hún sé gerð að ættaróðali. Það er út af fyrir sig kjarni málsins fyrir kaupanda. Ég sé engan hag fyrir kaupanda eða ábúanda að breyta til og kaupa jörðina, ef hann á að vera háður því skilyrði, sem mér skilst að hv. frsm. haldi fast við, að jörðina verði að gera að ættaróðali. Þá getur hann alveg eins búið á jörðinni. Það hvetur hann ekkert til að byggja upp dýrar byggingar á þessari jörð, ef hann verður svo að ganga frá henni og láta hana í hendur ríkisins aftur með fasteignamati, þegar hann fer, og það er þess vegna, sem ég vil fá um það efnislega afgreiðslu og vænti þess, að það komi fram hjá n., þegar hún afgreiðir málið, hvort hún er því fylgjandi. Væri t.d. meiri hl. n. með því að vilja ekki samþ. það, þá getur vel verið, að ég taki till. alveg aftur, að fullu og öllu, því að ábúanda er enginn hagur í því að fá jörðina keypta með þeirri kvöð. Og ég er raunverulega alveg hissa á því, að það skuli ekki hafa verið gert út um það hér í þinginu nú síðari árin, hverjir það eru, sem fylgja þessari stefnu. Þessi stefna í jarðasölumálunum, að menn skuli skyldir til þess að lúta slíku ákvæði, hefur sýnt sig að vera ákaflega óholl. Hún bætir ekkert úr því, sem bæta þarf úr, að mennirnir fái hvöt til þess að endurbæta jarðirnar og til þess að eiga jarðirnar.

Hv. frsm. sagði hér áðan, að eigandinn á Grísará hefði verið slíkur hugsjónamaður, að hann hefði selt jarðakaupasjóði jörð sína, til þess að ekki væri hægt að braska með hana síðar. Já, sér er nú hver hugsjónin, segi ég. Ég vissi ekki betur en ásæknin á jarðakaupasjóðinn á sínum tíma væri svo mikil, að nærri helmingurinn af bændum landsins vildi selja jarðirnar, ef sjóðurinn hefði viljað kaupa. Það voru kannske allt saman hugsjónamenn. Ég þekki a.m.k. þó nokkrar jarðir í Barðastrandarsýslu, sem jarðakaupasjóður keypti á þeim tíma. Ég skal nú ekki segja, hvort á bak við það hefur legið frekar löngun til þess, að jarðakaupasjóður eignaðist jarðirnar, eða löngun til þess að hjálpa bændunum út úr erfiðleikum. En hitt veit ég, að sjóðurinn keypti jarðirnar og að þessar sömu jarðir eru bændur nú að kaupa aftur. Sumar hverjar hafa verið seldar þeim aftur, en hinar, sem enn þá eru í eign jarðakaupasjóðs, — og það má alveg benda á þær, þegar farið er um hreppana, hverjar þær eru, - eru í þeirri megnustu niðurníðslu, að það er ómögulegt að láta búa á þeim, vegna þess að jarðakaupasjóður vill ekkert fyrir jarðirnar gera. Á sama tíma sem notaðar eru allar leigur, sem ríkissjóður eða jarðakaupasjóður fær af jörðunum, verður að gefa stóra fúlgu með þeim á hverju ári. Og ég teldi vera miklu betur varið því fé til einhvers annars en að halda þessu kerfi við. Væri nauðsynlegt, að það væri gert út um það sem fyrst, hverjir vildu breyta þessu fyrirkomulagi og hverjir ekki.

Ég brosti nú, þegar ég heyrði þessi rök frá hv. frsm., því að einn sinni var nú sú tíð, að ég seldi sjálfur jarðakaupasjóði jörð, og þá var nú hans ágæti flokkur ekki lengi að halda um það stórar ræður og skrifa um það langar greinar, að það hefði nú ekki verið allt saman hugsjón, sem hefði legið á bak við, þegar sú jörð var seld. En ef það hefði verið nokkur meining í því, sem hv. þm. sagði áðan, þá hefði þó hans flokkur að minnsta kosti átt að stuðla að því, að jörðin lenti ekki í braski, og láta kaupin ekki ganga til baka, hvað sem verðinu leið, sem var þó ekki hærra en það, að þegar ég lét kaupin ganga til baka, voru margir um boðið, er vildu fá jörðina á sama verði. Og þá eiga líka allir þessir ágætu menn, sem stóðu að því að fá þeim samningum rift, sök á því, að sú jörð gæti lent í braski, úr því að þeir vilja endilega hafa það orð yfir það. Mér þótti rétt að láta þetta koma fram hér, af því að hv. frsm. lagði svo mikla áherzlu á það, að þessi ágæti eigandi jarðarinnar hefði verið svo mikill hugsjónamaður að vilja selja jarðakaupasjóði jörðina.

Ég skal gjarnan taka till. aftur til 3. umr., till. á þskj. 157, en ég óska mjög eftir því, að málið verði efnislega afgr. í n., hvort n. öll eða hverjir úr henni eru því sammála, að jörðin verði seld kvaðalaust annaðhvort fyrir það verð, sem semst um, eða fyrir matsverð. Að öðru leyti óska ég ekki eftir því, að heimild til sölu jarðarinnar verði gefin, nema því aðeins að hún sé algerlega kvaðalaus.