07.10.1953
Neðri deild: 4. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í B-deild Alþingistíðinda. (149)
4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð til andsvars ræðu hæstv. fjmrh. Hæstv. ráðh. veit miklu meira um skattamál en hann lést vita í ræðu sinni hér áðan. Hann lét í ljós undrun yfir því, að ég skyldi vekja athygli á því, hversu lítill hluti beinu skattarnir eru af heildartekjuöflun ríkissjóðs og sveitarfélaga, og taldi það í ósamræmi við þær till., sem við Alþfl.- menn hefðum borið fram á undanförnum þingum hvað eftir annað og miða að ýmiss konar lækkun á beinum sköttum. Væru þær samþ., sagði hæstv. ráðh., mundi hluti beinu skattanna í heildartekjunum enn minnka. Hæstv. ráðh. sleppti því að geta þess, að allar þær till., sem við höfum borið fram um lækkun á beinum sköttum, eru um lækkun á beinum sköttum á almenningi, á lágum tekjum og miðlungstekjum fyrst og fremst. Það er mergurinn málsins. Við höfum nefnilega sí og æ bent á þá staðreynd, að það er ekki aðeins innheimta óbeinu skattanna, sem er ranglát í sjálfri sér og eins og hún er framkvæmd, heldur er ranglætið ekki minna í innheimtu beinu skattanna vegna þess að þeir hvíla með stórkostlegum þunga á láglaunafólki, sem hlýtur að telja fram allar tekjur sínar, hverja krónu og hvern eyri, en aftur á móti hafa ýmsir atvinnurekendur margs konar skilyrði til þess að skjóta tekjum undan skatti, oft og einatt þeim mun betri skilyrði til slíks sem tekjur þeirra eru hærri. Þess vegna er það, að beinu skattarnir í því formi, sem þeir eru nú innheimtir hér á Íslandi, eru mjög ranglátir og eru í raun og veru fyrst og fremst launaskattar. Þetta er ein af höfuðástæðunum til þess, að eðlilegt er og nauðsynlegt að endurskoða innheimtu beinu skattanna, og það er sjálfsagt að gera hvort tveggja, lækka þá á lágum tekjum og miðlungstekjum, um leið og gerðar væru ráðstafanir til þess, að þeir, sem tekjuhærri eru, þ.e.a.s. ýmiss konar atvinnurekendur, beri þó ekki væri nema þá skatta, sem þeir núna eiga að bera samkv. gildandi skattalögum, en gera ekki.
Hæstv. ráðh. sagði, að í löndunum kringum okkur væru ekki síður innheimtir miklir óbeinir skattar en hérna. Ég hef oftar en einu sinni athugað það, hvernig hlutfallið á milli beinna og óbeinna skatta er hérna á Íslandi annars vegar og á Norðurlöndunum og Bretlandi hins vegar. Ég bjó mig ekki þannig undir þessar umr., að ég hafi þær tölur handbærar, en ég man þær nokkurn veginn. Í Danmörku og Noregi eru rúmlega 55% af heildarsköttunum til ríkis og sveitarfélaga beinir skattar. Hérna eru beinu skattarnir samkv. lauslegri athugun á fjárlagafrv. 44%. Í Bretlandi er talan líka á milli 50 og 60%, eða var fyrir hálfu öðru ári. Í nágrannalöndunum er því hlutfallstala óbeinu skattanna miklu lægri en hérna.
Annars er um þessi skattamál í heild það að segja, að út úr því ófremdarástandi, sem hér er, virðast í raun og veru ekki vera færar nema tvær leiðir. Annaðhvort er að stórlækka beinu skattana á öllum almenningi, til þess að þeir hvíli jafnlétt á almenningi og launamönnum og þeir nú hvíla á atvinnurekendum, og breyta þá innheimtu óbeinu skattanna í það form, að óbeinu skattarnir hvíli tiltölulega miklu þyngra á efnamönnum heldur en efnalitlum mönnum. Vissulega er líka hægt að leggja óbeina skatta þannig á, að þeir yrðu fyrst og fremst borgaðir af efnamönnum, og það er það, sem reynt hefur verið að gera fyrst og fremst á Norðurlöndum. Verði þetta ekki gert, og eigi að halda áfram að innheimta beina skatta í jafnríkum mæli og nú á sér stað, þá verður að gera ráðstafanir til þess, að þeir hvíli hlutfallslega jafnt á öllum greiðendum; þ.e.a.s., þá verður að gerbreyta allri skattheimtuaðferðinni til þess að tryggja, að skattstiginn sé raunverulegur, en ekki blekking ein, ekki yfirvarp eitt til þess að seilast ofan í vasa láglaunamanna og miðlungstekjumanna, en láta atvinnurekendur, sem venjulega hafa hæstu tekjurnar, sleppa tiltölulega vel. Um aðra hvora af þessum tveimur leiðum er að ræða, aðra hvora verður að fara. Núverandi ástand er algerlega óviðunandi.