25.03.1954
Efri deild: 68. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í B-deild Alþingistíðinda. (1504)

166. mál, eignarnámsheimild fyrir Dalvíkurhrepp

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Þó að ég sé ekki flm. þessa máls, þá var það þó á Sínum tíma lagt fyrir Alþ. að tilhlutun okkar þm. Eyf. Ég vil því leyfa mér að þakka hv. n. fyrir skjóta og góða afgreiðslu málsins, ekki einasta fyrir mína hönd og míns samþingmanns, heldur og fyrir hönd hreppsnefndarinnar í Dalvíkurhreppi og hreppsbúa.