19.03.1954
Efri deild: 64. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)

119. mál, Búnaðarbanki Íslands

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að vekja athygli hv. þd. á því, að það gætir talsverðs misskilnings í þessari brtt., sem hér hefur komið fram. Ég gat nú af sérstökum ástæðum ekki verið viðstaddur þær umr. sem fóru fram um þetta mál hér í gær, en ég hef séð í blöðum sagt frá því, hvers efnis þær hafi verið.

Það er, að mér virðist, meginuppistaðan í þeim umræðum, að það sé of lítið lánað úr sparisjóðsdeild Búnaðarbanka Íslands til bænda eða yfirleitt út um landið. Það hefur verið gefin skýrsla hér um það, hvernig lánum Búnaðarbankans er háttað, og kemur þar í.ljós, að meiri hluti þeirra lána, sem hann veitir, eru veitt bændum. Enn fremur er auðvitað, án þess að það hafi verið gefin nein skýrsla um það, veitt mikið af lánum óbeint til bænda, með því að verzlununum, sem selja vörur út um land og lána þar meira og minna t.d. til bygginga allt árið og fjöldamargt fleira, — það er reynt að mæta þessum lánum, sem bændum eru veitt, meðan á byggingum og framkvæmdum stendur, með því að lána þeim fyrirtækjum, sem lána þeim verzlunum úti um landið, sem hafa slíka lánastarfsemi með höndum. Það er auðsætt mál, að bankinn getur naumast hagað lánum sínum með öðrum hætti en hann hefur gert í þessu efni, enda hefur lánapólitík bankans verið margrædd í bankaráðinu og enginn ágreiningur um það, að það bæri að ganga eins langt í því og unnt er að veita því fé, sem bankinn hefur yfir að ráða, í lán til bænda. Meðal annars höfum við, eins og hefur nú komið fram hér, núna til bráðabirgða veitt þessum deildum bankans, veðdeildinni, byggingarsjóði og ræktunarsjóði, bráðabirgðalán, til þess að þær geti innt af hendi þá lánastarfsemi, sem er nauðsynleg, til bænda. Það hefur oltið á 9–12 millj., sem þessar deildir þrjár hafa verið í skuld við sparisjóðinn. Á þennan hátt er sparisjóðurinn notaður til þess að hlaupa undir bagga til bráðabirgða.

Það, sem menn verða að gera sér ljóst, er það, að lánapólitík til bænda hefur verið gerbreytt frá því, að bankinn var stofnaður í upphafi. Eins og flesta mun reka minni til, voru lán veitt þannig, að vextir voru svipaðir af lánum til bænda eins og öðrum lánum, en til íbúðarhúsabygginga voru langt fram eftir veittir óafturkræfir styrkir. Þessari lánapólitík til landbúnaðarins var gerbreytt, þannig að nú eru tekin 2 og 21/2% af lánum úr byggingarsjóði og ræktunarsjóði og úr veðdeild 41/2%. Og það sjá náttúrlega allir, að bankinn mundi ekki halda lengi áfram starfsemi sinni, ef hann ætti að taka við peningum til geymslu í sparisjóð og til ávöxtunar með 5% vöxtum lægst, 6% og upp í 7% og lána síðan út með 2%, 21/2% og 41/2%. Slík bankastarfsemi yrði ekki rekin mjög lengi. Og ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að það er tekið, eftir því sem hægt er, tillit til þess að verja peningunum til útlána til landbúnaðarins eins og mögulegt er út frá því sjónarmiði að reka jafnframt ábyrga og heilbrigða bankastarfsemi. Það er vitanlega hægt að taka það til greina, ef óánægja ríkir út af því hér í þessum bæ, að veita lánunum meira út um land. Það er sjálfsagt þörf fyrir stutt lán víða úti í kaupstöðunum og þorpunum. En það er alveg auðsætt mál fyrir hvern mann, sem um það vill hugsa, að þau lán, sem nú eru lánuð úr sparisjóði með 71/2%, eru ekki lán, sem bændur sækja eftir nema til bráðabirgða, og þeir fá vitanlega þau lán til bráðabirgða alveg eins og aðrir og sitja fyrir þeim meira að segja, þangað til þeir fá lán með lægri vöxtum, venjulega í árslok.

Ég vil ekki vera að hreyfa því neitt hér, en ég get sagt þessari hv. d. frá því, að við höfum látið sérfróða menn reikna það út, hvernig starfsemi byggingarsjóðs og ræktunarsjóðs vegnar undir því skipulagi, sem hv. Alþ. hefur haft á peningaútvegun til Búnaðarbankans. M.ö.o.: Bankinn hefur tekið núna svo tugum milljóna skiptir að láni peninga og heldur áfram að taka núna úr mótvirðissjóðnum með 51/2% vöxtum og er látinn lána út með 21/2% og 2%. Ég vil alls ekki birta þær tölur hér, þær niðurstöður, sem eru að verða af þeirri lánastarfsemi og þeirri bankapólitík. Ég kæri mig ekkert um að fara inn á umræður um það. Og það er alveg auðsætt mál, að þetta, að segja við bankann, að hann eigi að ávaxta peninga með 5%, 6% og 7% og lána það út með 41/2%, er sama og að segja við bankann, að hann eigi að stefna að sínu eigin tapi og –ef gert er í nægjanlega ríkum mæli — gjaldþroti.

Ég held satt að segja, að það hafi ekki verið víða mikill ágreiningur um það, að það hafi verið reynt að stjórna þessum banka samvizkusamlega og þannig, að hann væri rekinn á þann hátt, að í samræmi væri við fjármál ríkisins. Ég fullyrði það, að það hafi verið tekið mjög mikið tillit til þess. Það má gjarnan segja það hér, og ég er ekki þar með að deila á neinar lánsstofnanir eða aðra banka,að þegar hafa verið athuguð hér fjármál okkar þjóðfélags og okkar bankastarfsemi, þá hefur það a.m.k. — og er þá vægt tekið til orða — aldrei komið fram í þeirri athugun, að nokkur lánsstofnun og nokkur banki hafi verið rekinn betur, að þeirra áliti, heldur en Búnaðarbankinn. Við gerum okkur það fyllilega ljóst, að fólkið, sem trúir bankanum fyrir sparifé. gerir það vegna þess, að það álítur, að bankinn sé sæmilega rekinn. Og þó að þar sé ríkisábyrgð á bak við, þá hefur fólk alltaf einhverja tilfinningu fyrir því, hvar það vill ávaxta sitt fé. Þess vegna höfum við talið það skyldu okkar og munum halda áfram að telja það okkar skyldu að hafa bankann, þó að það kosti hann verulega fjármuni, þannig rekinn, að hann sé alltaf, sem kallað er, greiðslufær. Til þess verður bankinn að hafa geysilega mikinn sjóð.

Við höfum lítið þurft á því að halda að nota íánsfé Landsbankans. Við höfum aldrei rekið bankann þannig að hafa sjóð okkar svo tæpan, að við höfum þurft að grípa til þess nema til bráðabirgða, svo að það er ekki hægt að segja, að við höfum níðzt á þjóðbankanum. Þjóðbankinn hefur nú um 300 milljónir í seðlum vaxtalaust, svo að það er náttúrlega dálitið önnur aðstaða en fyrir þennan litla banka, sem Búnaðarbanki heitir, og menn geta gert sér í hugarlund, enda sést það nú á tölunum á þeim gróða, sem bankarnir skila á hverju ári, að þetta segir til sín.

Næststærsta gróðalindin fyrir hina bankana eru umboðslaunin á sölu erlends gjaldeyris. Við höfum ekki viljað sækjast eftir því að fá tekjur af því að selja erlendan gjaldeyri. Það hafa verið þrætur um það, og við höfum ekki sótzt eftir því til þessa.

Eini möguleikinn fyrir bankann til þess að standa undir sínum rekstri er gróðinn á sparisjóðnum. Fyrst og fremst er það þessi starfsemi, sparisjóðurinn, sem stendur að verulegu leyti undir rekstri bankans og þeim gróða, sem af honum er. Þess vegna er það, að það getur vitanlega ekki komið til mála, að við getum tekið á móti tugum milljóna af fé, sem lagt er inn í Búnaðarbankann, og lánað það síðan út í veðdeild með lægri vöxtum en við greiðum eigendum peninganna. Þess vegna er það, að ég held, að því meira sem málið er athugað, því greinilegar sjáum við, að þetta er, eins og einn þm. orðaði það, þegar þessi brtt. kom fram, nákvæmlega sama og að fyrirskipa að fóðra kýr á eigin mjólk. Það er alveg nákvæmlega það sama, að við eigum að taka úr sparisjóði fé, sem er ávaxtað á miklu hærri vöxtum en við fáum af útlánunum, og lána það út til þess að tapa á því svona upp í 3%. Við eigum að borga allt að 3% með lánum, því að það er talsvert af fé hjá okkur, sem fólk hefur bundið lengi, eins og víkið var að.

Um þörfina á að samþ. þetta frv. er enginn vafi, og um þörfina á veðdeildarlánum er enginn vafl. Það koma að minnsta kosti ekki færri en tíu beiðnir inn á hverjum degi um þessi veðdeildarlán frá fátækum bændasonum og frá fátæku fólki, sem vill stofna til búskapar, en getur ekki keypt jarðir, og sér nú, að þetta frv. er komið fram. Það yrðu áreiðanlega mikil vonbrigði, ef það yrði fellt eða limlest á þann hátt, sem hér er stefnt til, sem er nákvæmlega sama og að fella það. Og þó að þetta frv. yrði samþykkt, þá er nú skuld veðdeildarinnar við sparisjóðinn 2 millj. núna af þeim ástæðum, að það hefur ekki verið hægt þrátt fyrir þau neyðarúrræði, sem það er að lána út fé á þennan hátt, sem ég hef lýst, með lægri vöxtum en bankinn ávaxtar það, annað en neyðast til þess að fara lítillega inn á þessa pólitík vegna neyðar fólksins: En það er reiknað með því alveg eins og með lánin til byggingarsjóðs og ræktunarsjóðs, að þetta sé aðeins til bráðabirgða og að þessum peningum verði fljótlega skilað aftur. Undir öðrum kringumstæðum væri algerlega óverjandi að festa spariféð á þennan hátt. Ég vil þess vegna mælast til þess, að hv. þd. sýni þá sanngirni að fella þessa brtt. og samþ. frv. eins og það liggur fyrir, því að á þann eina hátt kemur það þó að nokkru gagni.