19.03.1954
Efri deild: 64. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1379 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)
119. mál, Búnaðarbanki Íslands
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég vil fyrst eindregið mótmæla því, sem hv. þm. Str. sagði, að brtt. mínar væru þess eðlis, að betra væri að fella frv. heldur en að samþykkja þær. Jafnvel út frá sjónarmiði þeirra, sem telja, að Búnaðarbankinn sé ekki aflögufær í þessum efnum, er alger fjarstæða að halda því fram, sem hv. þm. Str. gerði, vegna þess að ríkisstj. getur, ef hún telur rök standa til, þrátt fyrir samþykkt till. látið Búnaðarbankann algerlega sleppa við þessa skyldu, þannig að þessari heimild verður því aðeins beitt, að það sannist að athuguðu máli, að Búnaðarbankinn sé aflögufær. Og vitanlega er eðlilegt, að hann komi ekki síður til greina í þessu sambandi en þær stofnanir, sem þarna eru taldar. Það væri hugsanlegt frá sjónarmiði hv. þm. Str. að halda því fram með nokkrum sennileik, að frv. yrði ónýtt, ef mín till. yrði samþykkt, ef ætti að taka allar hinar stofnanirnar út. En þegar svo er ekki, heldur á einungis að bæta einni stofnun til viðbótar við hinar og ákvæðin að öðru leyti standa í frv., þá er þetta alger fjarstæða og sýnir, að hv. þm. Str. af einhverjum ástæðum hefur löngun í þessu máli til þess að rugla um fyrir mönnum í stað þess að skýra málin, svo sem vænta hefði þó mátt af honum með þá yfirgripsmiklu þekkingu, sem hann hefur einmitt á þessum efnum.
Það var mjög eftirtektarvert hjá honum, að hann ruglaði saman tveimur algerlega óskyldum atriðum. Annars vegar því, að veðdeildin og aðrar fasteignalánadeildir Búnaðarbankans láni fé út með svo lágum vöxtum, að þær geti ekki borið sig með því að greiða fulla vexti fyrir fé, sem þær taka að láni í þessu skyni, og hann sagði, að ástandið af þessum sökum væri svo alvarlegt, að hann vildi ekki gera það hér að umræðuefni. Það er vissulega efni, sem við verðum að ræða um og horfast í augu við, vegna þess að það krefst lausnar. Það er alveg greinilegt, að þessar stofnanir geta ekki til lengdar haldið áfram að lána út fé fyrir miklu lægri vexti en þær verða að borga. Hv. þm. gat um þetta á síðasta . þingi. Þegar hann var landbrh., kom í ljós, að hann hafði af því þungar áhyggjur varðandi framtíðina, þó að ekki væri til hlítar úr því bætt, en að nokkru leyti er bætt úr þessu með stórkostlegum styrkjum úr ríkissjóði til þessara stofnana til þess að borga þann vaxtamismun, sem á sér stað í þessu sambandi, svipað og t.d. gert er varðandi byggingarsjóði verkamannabústaðanna, þar sem styrkur ríkissjóðs m.a. fer til þess að greiða slíkan vaxtamismun alveg hliðstæðan þessu. Að þessu leyti er það rétt, að Búnaðarbankinn eða einstakar deildir hans ern í vandræðum, og menn verða að gera sér grein fyrir, hve mikið fé það kostar og hver á að borga það fé, sem í framtíðinni þarf til þess að standa undir þessum mismun. Það er verkefni fyrir sig, og það get ég ekki skorazt undan að eiga þátt í að leysa af minni hálfu, og ég veit, að hv. þm. Str. er allra manna ljósast, að þarna er mikið verkefni fyrir höndum. En það kemur bara þessu frv. ekki nokkurn skapaðan hlut við, vegna þess að í þessu frv. stendur hvergi, að þær stofnanir, sem hér á að skylda til að veita þessi lán, eigi að gera það með óeðlilega lágum vöxtum. Og ég spyr: Er það ætlunin að skylda t.d. Tryggingastofnun ríkisins, Brunabótafélagið og Söfnunarsjóðinn til þess að lána í þetta fé langt undir sparisjóðsvöxtum? Er það ætlunin? Ef það er, hvaða vit er þá í því að taka einmitt þær stofnanir út úr? Verðum við ekki þá frekar að horfast í augu við það, að þarna er fé, sem verður að borga á milli og verður að útvega til þess að geta staðið undir þessari lánapólitík, sem hv. þm. Str. hér gerði grein fyrir? En ég hafði ekki skilið það svo, að það ætti að skylda þessar stofnanir til þess að lána þarna fé langt undir gangverði. Ég hafði skilið frv. þannig, svipað og hv. 1. þm. N-M. talaði um, að verið væri að leita eftir, hvar væri umframfé, sem væri hægt að verja í þessu þarfa skyni, og svo ætti að sjá fyrir því með opinberum ráðstöfunum að öðru leyti að borga vaxtamismuninn í þessu tilfelli eins og öðrum.
Við komumst ekki hjá því að gera okkur það ljóst, að það verður ákaflega mikil brotalöm á allri rökfærslunni hjá hv. þm. Str. og hv. þm. N-M., vegna þess að annars vegar láta þeir svo sem Búnaðarbankinn sé eina bankastofnunin í lamlinu, sem sé svo vel stjórnað, að hún hafi peninga aflögu, hún eigi peninga inni, hún hafi alltaf stóra sjóði, segir hv. þm. Str., stóra sjóði, sem hún liggi með sér til stórkostlegs tjóns, og hv. þm. N-M. segir: Hinum bönkunum er svo illa stjórnað, að þeir eru alveg peningalausir. — Samt er það þannig, að þeir vilja fara í peningalausu stofnanirnar til þess að útvega þaðan peninga í þá stofnun, sem þeir segja sjálfir að hafi yfirfljótanlega peninga, eigi alltaf peninga inni hjá Landsbankanum. Það er ákaflega gaman að vera svo vel stæður að geta átt peninga inni hjá Landsbankanum, en ég veit ekki, hvort þeir menn, sem eiga peninga inni hjá Landsbankanum, eiga þá að ganga fyrir um lán. Eiga þeir ekki fyrst að taka peningana, sem þeir eiga inni hjá Landsbankanum, og verja þeim til útlánanna? Það er það, sem ég held fram, og ekkert annað.
Þetta mál er líka margþættara en að það varði einungis veðdeildina og svipaðar deildir innan Búnaðarbankans. En þó vildi ég spyrja hv. þm. Str., sem er formaður bankaráðsins: Hvað á sparisjóðsdeildin mikið af verðbréfum? Hvað liggur hún með mikið af verðbréfum í sínum sjóði, og hverrar tegundar verðbréf eru það þá, sem sparisjóðsdeildin liggur með? Það er fróðlegt að heyra það út af fyrir sig.
En málið er miklu margþættara en það. V?ð höfum heyrt mikið um það talað og sjálfsagt réttilega, að landbúnaðinn skorti rekstrarfé, og það er eitt atriði í samningi núverandi ríkisstj., að það eigi að útvega rekstrarlánafé til bænda. Það var ákaflega fróðlegt að heyra skýringar þeirra tvímenninganna, hv. þm. Str. og hv. þm. N-M., á því, hvernig bankinn fer að nú. Hann fer þannig að, að hann lánar kaupmönnum, sem aftur lána bændum. Ég gæti ákaflega vel skilið þessa rökfærslu, ef hún stæði í málgagni Verzlunarráðs Íslands eða heildsalafélagsins. Það er vissulega ákaflega mikið til í þessu, það er rétt, en það er alveg nýtt úr munni þessara manna, að bezta ráðið til þess að sjá fyrir rekstrarlánaþörf bændanna sé fyrst að lána kaupmönnunum, til þess að þeir láni svo aftur bændunum. Ætli að því hafi ekki verið haldið fram hingað til af þessum mönnum, að það hefði einhver milliliðagróði verið tekinn í slíkum viðskiptum?
En það, að þessir hv. þm. þurfa að skjóta sér undir svona röksemdir, sýnir, hversu þeir eru hér staddir á ákaflega hálum ís. Hv. þm. Str. kemst ekkert áfram með því að hóta því, að mín ummæli hér verði til þess, að það verði hætt að lána Reykvíkingum úr þessum banka. Ég er alveg óhræddur að halda minni skoðun fram, þó að formaður bankaráðsins í Búnaðarbankanum segi, að Reykvíkingar skuli ekki fá lán úr bankanum, ef kvartanir komi héðan um, að Reykvíkingum sé lánað of mikið. En það var eftirtektarvert, hverjir hann sagði að ættu þá að fá lánin. Það voru ekki bændurnir. Nei, það var fólk í kaupstöðum og kauptúnum. Það má ekki undir neinum kringumstæðum fara eftir lögum Búnaðarbankans og lána bændunum! Þetta þurfum við að hlusta hér á hjá formanni bankaráðs Búnaðarbankans, manni, sem er í flokki, sem þykist þess umkominn að deila á bankamálastjórnina í landinu fyrst og fremst fyrir það og kenna sjálfstæðismönnum algerlega ranglega um það, að fjármagni sé of mikið varið til sjávarsíðunnar, en ekki sveitanna. Þarna hafa þessir menn eigin bankastofnun, með sinn frambjóðanda sem bankastjóra, með sinn formann sem formann bankaráðsins, með einhvern annan mann með til þess að mynda meiri hlutann í bankaráðinu, og áhuginn er þessi fyrir því að lána út til sveitanna, að hv. þm. N-M. tók af mér og öðrum sanngjörnum mönnum, sem viðurkenna gildi verzlunarinnar, ómakið við að svara mörgum árgöngum í Tímanum til þess að gera grein fyrir því, hvað verzlunin hefði mikla þýðingu fyrir bændur, og að það kæmi alveg í einn stað niður, þótt verzluninni væri lánað, það kæmi allt bændum að gagni. Það er ákaflega gaman að heyra þetta, en það væri betra, að þeir skrifuðu að staðaldri svona í Tímann og segðu það ekki aðeins þegar þeir eru í vandræðum hér á Alþingi. Það, að þeir eru lentir í vandræði með frammistöðu sinni í málinu, sannast bezt á því, að hv. þm. Str. skuli taka af slíkum fjandskap og ofurlæti þeim sanngjörnu og mjög hófsamlegu brtt., sem ég hef hér borið fram.