27.10.1953
Neðri deild: 11. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í B-deild Alþingistíðinda. (16)

61. mál, alþjóðaflugþjónusta

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta lán er þannig vaxið, að Framkvæmdabankinn tekur það hjá Alþjóðabankanum og lánar það aftur ríkisstjórninni til þessara framkvæmda. Vextir verða 41/2%, óg lánið er til 12 ára. Greiðslur af láninu verða hér um bil nákvæmlega þær sömu og leigutekjurnar af þessu húsnæði frá alþjóðaflugþjónustunni.