27.11.1953
Efri deild: 25. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (1601)

84. mál, kirkjubyggingasjóður

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Þess er getið í nál. menntmn. á þskj. 193, að ég áskilji mér óbundið atkvæði um þetta mál, enda hef ég skrifað undir nál. með fyrirvara.

Ég viðurkenni fúslega, að það er réttmæt krafa, að ríkið veiti með einhverjum hætti stuðning sinn til þess, að kirkjur geti orðið endurreistar eftir því, sem kröfur nútímans heimta, annaðhvort með löggjöf, sem eykur með einhverjum hætti tekjur kirknanna, ellegar þá með beinu fjárframlagi úr ríkissjóði. Og þetta er réttmætt af tveimur ástæðum, í fyrsta lagi vegna þess, að þjóðkirkjan er samkv. stjórnarskrá landsins þjóðkirkja og ríkisvaldinu ber að styðja hana og efla, og í öðru lagi og ekki hvað sízt vegna þess, eins og hv. þm. Barð. kom hér að, að eignum kirkjunnar var á sínum tíma rænt, og skal ég víkja síðar að því atriði.

Ástæðan til þess, að ég sá mér ekki fært að binda mig við samþykkt þessa frv., var einkum

sú, að, hér er um töluvert fjárframlag að ræða fyrir ríkissjóð, og tel ég lítt forsvaranlegt, að þingið samþykki útgjöld í einstökum lögum, sem verða að koma inn á fjárlögin, öðruvísi en að það sé gert í samráði við þá menn, sem mest fjalla um fjárlögin, og vissa sé fyrir því jafnframt, að hægt sé að taka þá upphæð, sem þar um ræðir, inn á fjárlög næsta árs, ef lögunum er ætlað að öðlast þegar gildi, eins og hér er tilætlunin. Að sjálfsögðu bætir það töluvert úr, að hér er komin fram brtt. frá hv. form. n., þm. Hafnf., um að lækka þetta framlag um helming, en í grundvallaratriðum er þó það sama að segja um frv., jafnvel þótt sú brtt. yrði samþ., að það er um það verulega háa fjárhæð að ræða, að ég tel ástæðu til þess, að það væri athugað og haft samráð við hv. fjvn. og fjmrh. um það, hvort afgangur væri fyrir slíkan útgjaldapóst á fjárlögunum. Að öðru leyti viðurkenni ég fúslega, að ríkinu ber skylda til þess að haga svo löggjöf eða á annan hátt að tryggja, að hægt sé að endurreisa kirkjur landsins, þar sem þess er þörf.

Í því sambandi vil ég minnast á það, að mér finnst ekki endilega sjálfsagt, að þetta sé gert með því móti að veita sérstakt fé á fjárlögum til kirkjubygginga, hvorki til einstakra kirkna eða í almennan sjóð. Mér finnst, að það geti komið vel til mála að hækka kirkjugjöldin. Það er áreiðanlegt, að þegar tekið er tillit til gildis peninga, þá eru kirkjugjöld nú ekki nema sáralitið brot af því, sem kirkju- og prestsgjöld voru t.d. þegar ég var ungur. Nú hefur prestsgjöldunum verið aflétt eða gjöldum til prestlaunasjóðs, en kirkjurnar fá orðið þau gjöld, sem prestlaunasjóður fékk áður. Sú breyting var gerð núna fyrir fáum árum, en ég tel, að þetta mætti auka verulega enn, án þess að mönnum væri það verulega tilfinnanlegt. Ég man eftir því, þegar ég var unglingur, — ég held það hafi haldizt fram yfir tvítugsaldur minn, — að hver bóndi í prestakallinu var skyldur til þess að fóðra lamb fyrir prestinn, og efnaðri bændur áttu að fóðra tvö lömb, ef til vill sumir þrjú, ég er nú ekki svo fróður um það. Ég hygg, að lambsfóður nú muni ekki vera metið lægra en á 130 kr., og fleiri gjöld voru það þá, sem nú eru horfin, sem menn þurftu að greiða til prests og kirkju, enda voru laun prestanna þannig, að það voru sumpart tekjur af kirkjujörðum og sumpart bein gjöld frá sóknarmönnum. Ég hygg því, að það yrði enginn héraðsbrestur eða landsbrestur af því, þó að heimilað væri að hækka kirkjugjöld svo verulega, að hægt væri að efla Hinn almenna kirkjusjóð, sem m.a. gæti þá haft það hlutverk að lána verulega til kirkjubygginga. Á þetta benti ég undir meðferð málsins í n., en ég man eftir því, að hv. frsm. og flm. þessa máls leit svo á, að þó að þetta væri gert, þá veitti ekkert af þeim tekjuauka fyrir kirkjurnar, jafnvel þó að frv. væri samþykkt.

Ég mundi vera fús til þess að fylgja frv. um hækkun kirkjugjalda, og þó að ég geri ráð fyrir, að eiginlega engan munaði mikið um það, eins og allt er orðið hér á landi, þá vil ég þó benda á, að það mætti auðvitað, án þess að það raskaði miklu, undanþiggja tekjulægsta fólkið slíkri hækkun gjalda, þannig að ekki væri gengið að öreigum um slík gjöld, eins og var nú reyndar gert í gamla daga, það skipti ekki miklu, hvort bóndinn var efnaður eða fátækur, hann varð að fóðra sitt prestslamb, hvort heldur sem var, og munaði auðvitað ekki ákaflega mikið um að fóðra prestslambið, jafnvel ekki fátæka bændur.

Ég verð að segja það, að mér finnst till. hv. þm. Barð. á þskj. 203 stórum athyglisverð og réttmæt, það sem hún nær. En hún mun þó þurfa athugunar við og breytinga, ef um fullkomið réttlæti ætti að vera að ræða í þessu efni. Ég er því atriði í till. ekki sammála, að ríkinu ætti að vera skylt að endurgreiða kirkjunni með einhverjum hætti allar þær fasteignir, sem kirkjan átti um sinn, vegna þess að miklu af þessum eignum var rænt — ég kalla það rænt — að vísu af stjórnarvaldi, sem fór með Íslandsmál, en þó erlendum konungi. Sumt af þessum kirkjueignum, sem Danakonungur rændi hér eða tók eignarhald á, seldi hann aftur, og andvirðið rann í konungssjóð. Það, sem Ísland fékk fyrir það, þegar fjárskilnaður varð milli Íslands og Danmerkur, var ekki annað en það, sem Danir áætluðu í vexti af þeim höfuðstól, sem konungur hafði þannig fengið. Þessa vexti greiddu þeir nú ekki heldur lengur en til 1918, eins. og við vitum. Þess vegna þyrfti eiginlega till. að orðast þannig; að í staðinn fyrir orðin „þær fasteignir, sem kirkjan átti í landinu á sínum tíma“ kæmi: sem kirkjan átti í landinu 1871, þegar fjárhagsskilnaðurinn var gerður á milli Íslands og Danmerkur, — því að mér finnst það varla vera skylda íslenzks ríkisvalds að standa undir því að bæta kirkju eða öðrum aðilum það, sem Danakonungur rændi. Auk þess má nú minna á það, að af þessum kirkjueignum eða afrakstri þessara kirkjueigna var prestum launað í fyrri daga, en nú hefur ríkið algerlega tekið að sér að launa prestana og þannig létt á. En þetta atriði, að kirkjunni sé hreint og beint skilað því, sem íslenzka ríkið tók við af henni, finnst mér samt stórum athyglisverð till. Mér finnst það eðlilegt, sem hv. flm. þessarar till. stakk hér upp á, að málinu yrði frestað nú hennar vegna, og auðvitað mætti hafa það eins þannig, að hann tæki hana aftur nú við þessa umr. og till. væri athuguð á milli umræðna, því að hugsunin í till. er réttmæt, og þá. mundi Akureyrarkirkju sennilega verða skilað Bleiksmýrardal. Þó skal ég taka það fram, að það er ekki neitt aðalatriði fyrir mér og það er svo smátt atriði í þessu máli, að það hefur engin áhrif á mig, en mér finnst hugsunin, sem á bak við þessa till. liggur, alveg réttmæt. Það verð ég að segja, með þeim takmörkunum, sem ég hef þegar tekið fram.