09.11.1953
Neðri deild: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í B-deild Alþingistíðinda. (162)
4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér brtt. við frv. þetta, og er þá brtt. að finna á þskj. 143. Efni þessarar brtt. minnar er að undanþiggja frá álagningu söluskatts nokkrar nauðsynjar sjávarútvegsins, sem inn eru fluttar.
Eins og segir í till., þá er þar fyrst og fremst um að ræða vélar til fiskiskipa og öll tæki til útbúnaðar fiskiskipa. Einnig er farið fram á það í till., að undanþegnar verði frá söluskatti vélar og tæki til fiskiðjufyrirtækja.
Ástæðan til þess, að mér hefur þótt rétt að flytja þessa till., er, að upphaflega var svo látið heita, að þessi skattur væri lagður á til þess að styðja sjávarútveginn, til þess að afla tekna í því augnamiði að greiða nokkra hækkun á fiskafurðum fyrst og fremst. Þegar lögin voru sett, þá voru einnig af þessum ástæðum undanþegnar álagningu söluskatts nokkrar þær vörutegundir, sem skipta sjávarútveginn í rekstri hans allmiklu, þ. á m. voru fiskumbúðir, veiðarfæri, kol og salt og allar tegundir af olíu. É'g ætla, að það séu sams konar rök fyrir því að undanþiggja frá þessum söluskatti þessar nauðsynjar sjávarútvegsins, sem um getur í minni till., en það hefur komið betur og betur í ljós, að innheimta á söluskatti af þessum vörum íþyngir sérstaklega bátaútvegi okkar mjög tilfinnanlega. Svo að ég nefni aðeins eitt dæmi, þá get ég skýrt frá því, að alveg nýlega var mér kunnugt um mann, sem var að flytja inn til landsins nýja vél í fiskibát sinn, aðeins af meðalstærð, og söluskattur af þessari vél nam nákvæmlega 24798,05 kr. Slík skattlagning á vél í venjulegan fiskibát er æði tilfinnanleg, og hliðstæð skattlagning er vitanlega á öðrum vélum og tækjum til fiskiskipa og einnig til fiskiðjufyrirtækja, sem þurfa að flytja þetta inn nú. Þó að svo sé nú komið, að þessi skattur sé ekki lengur notaður nema að sáralitlu leyti til þess að aðstoða sjávarútveginn, þá vita þó allir hv. alþm., að enn verður á beinan eða óbeinan hátt að styðja sjávarútveginn, eða bátaútveginn, allverulega með ákveðnum fríðindum, og þá sýnist það líka óeðlilegt, að ríkissjóður sé á sama tíma að nota þennan bátaútveg, sem hann þarf að styðja á þann hátt, sem við allir þekkjum, sem sérstakan skattstofn. Ég vil því vænta þess, að undanþága þessi, sem hér um ræðir í till. minni frá álagningu söluskattsins, verði samþ., að hv. alþm. fallist á það að aflétta skattinum af þessum tilteknu vörum. Ég get að vísu ekki upplýst á þessu stigi málsins, hvað þetta mundi nema mikilli upphæð á ári hverju fyrir ríkissjóð, en ég ætla þó, að það mundi ekki nema svo miklu, að það ætti að skipta miklu í sambandi við heildartekjur ríkissjóðs, þó hins vegar að það mundi koma þeim aðilum að miklu gagni, sem hér eiga hlut að máli. — Ég vænti svo, að þessi till. nái samþykki nú við þessa afgreiðslu málsins.