24.11.1953
Neðri deild: 28. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Meiri hluti fjhn. flytur hér brtt. á þskj. 180, og vil ég fara um þær nokkrum orðum.
Fyrri brtt. er um viðbót við 2. gr. frv. Í 2. gr. er fram tekið, að heildsala sé undanþegin söluskatti, en til heildsölu telst ekki sala fyrirtækja á eigin framleiðslu. Í brtt. okkar er lagt til, að við greinina bætist: „Sala eða afhending heildsala á vörum er því aðeins undanþegin söluskatti, að vörurnar séu seldar eða afhentar aðilum, sem eru söluskattsskyldir af sölu eða afhendingu sams konar vara.“ Það hefur komið til álita, hvort það sé heildsala, ef heildsali selur beint til notanda, en heildsalar hafa talið sér slíkt heimilt. Sé slíkt gert til þess að komast hjá söluskatti, er ekki sanngjarnt, að slík viðskipti sleppi við söluskatt, og því er borin fram brtt. sú, er hér um ræðir.
Í annarri brtt. er lagt til, að 22. gr. i. nr. 100 frá 1948 verði orðuð um, en sú grein er um, hvað hár söluskatturinn skuli vera af Smásölu og annarri sölu. Í lagaákvæðunum um söluskatt segir ekki fyrir um það, hvað átt sé við með smásölu í a-lið 22. gr. laganna. Til þess að þetta komi greinilega fram í l. og tryggt sé, að það geti orðið framkvæmt eins og að undanförnu, er orðalagið í a- og b-liðum gert skýrara og jafnframt mörkin milli 2% og 3% gjaldsins gerð gleggri, eins og þau voru í söluskattsákvæðum í l. frá 1947, nr. 128.
Ákvæðin í næstsíðustu málsgr. brtt. eru sett til þess, að ekki verði lagður nema einu sinni 3% söluskattur á sömu innlendu iðnaðarvöruna. Munu hafa komið óskir um, að þetta yrði þannig framkvæmt, frá iðnaðarmönnum, og virðist þetta eðlilegt.
Ákvæðin í síðustu málsgr. brtt. eru sama efnis og í 2. málsgr. 22. gr. l. nr. 100 1948. Í seinni hl. málsgr. er skýrt kveðið á um það, við hvað skuli miða, ef um skipti á vörum, eigin úttekt og aðra afhendingu án endurgjalds sé að ræða.
Við athugun á þessum brtt. geri ég ráð fyrir, að hv. þm. hafi séð, að hér er fyrst og fremst um það að ræða að gera ákvæðin um þessi efni gleggri en þau eru nú í lögunum, en ekki um efnisbreytingar að ræða. Ég skal geta þess, að þessar brtt., sem meiri hluti fjhn. flytur, eru fram bornar eftir tilmælum frá fjmrn.