11.03.1954
Neðri deild: 60. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1443 í B-deild Alþingistíðinda. (1679)
164. mál, brúargerðir
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Sá hv. þm., sem mælti fyrir þessu frv. af hálfu samgmn., gat þess, að í frv. fælist það meðal annars, að taka ætti inn á brúalög 56 brýr, sem þar væru ekki nú. Ég geri ráð fyrir því, að þar sé þá að ræða um allar tegundir brúa, nema þá það, sem um er fjallað í III. lið 2. gr.
Nú er það auðvitað svo, að þess er enn mikil þörf að byggja brýr hér á landi, og er þá ekki eingöngu um það að ræða að byggja brýr þar, sem engar eru, heldur er nú líka svo komið, að ýmsar af elztu brúnum eru orðnar það ótraustar, að full þörf er á að endurbyggja þær sem fyrst, og sumar þeirra svo ótraustar að dómi þeirra manna, er til þekkja, að af þeim stafar áreiðanlega eða getur stafað allalvarleg slysahætta í sambandi við umferð um þær. Það er því ekki að ófyrirsynju, að flutt sé nú að tilhlutun vegamálastjóra frv. til nýrra brúalaga. En um þetta vil ég þó segja það, að ekki skipti meginmáli, hvort brú stendur einhvers staðar í brúalögum eða ekki, ef ekki er jafnframt séð fyrir einhverju fé til framkvæmdanna. Nú vil ég spyrjast fyrir um það hjá hv. samgmn., sem stendur að flutningi þessa frv., og beina þeirri fyrirspurn til hv. frsm., hvort n. geri í sambandi við þetta mál ráð fyrir því að leggja til, að um einhverja nýja fjáröflun verði að ræða til brúa. Og í því sambandi vil ég minna á það, að ég hef nú fyrir nokkru leyft mér að flytja hér í hv. deild frv., sem varðar þetta mál og er um það að lögfesta sérstaka tekjuöflun til ákveðinna framkvæmda í brúamálum, þ. e. a. s. til þess að endurbyggja þær brýr, sem bein slysahætta stafar af, vegna þess að þær eru orðnar ótraustar. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé nú e. t. v. sá þáttur þessara mála, sem fyrst og fremst beri að gefa gaum að, — það eru þessar brýr, sem beint geta valdið slysum.
Því frv., sem ég hef áður nefnt og ég flutti hér í hv. d., var fyrir nokkuð löngu vísað til hv. samgmn., og frá henni hefur ekkert álit enn komið um það. Hins vegar virðist hún mjög í sama mund sem hún fékk það mál til meðferðar hafa fengið áhuga fyrir því að koma fram á þinginu nýjum brúalögum. Ég vil nú, eins og ég sagði, spyrjast fyrir um það hjá hv. samgmn., hvað hún hefði í huga varðandi fjáröflun til brúabygginga, og þá sér í lagi — því að ég vona, að það verði ekki talið koma í bága við þingsköp — spyrjast fyrir um það, hvað liði afgreiðslu hennar á þessu frv., sem ég hef flutt um sérstaka tekjuöflun til að endurbyggja brýr, sem slysahætta stafar af.