30.03.1954
Neðri deild: 73. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (1693)

164. mál, brúargerðir

Jón Pálmason:

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls voru felldar allar till. um það að taka sýsluvegabrýr inn á þessi brúalög, og er náttúrlega ekkert við því að segja, því að í raun og veru er það ekki kannske neitt aðalatriði, hvort ein brú er á brúalögum eða ekki. Hitt er meginatriði, hvaða fjárveitingar eru lagðar fram til þess að byggja upp brýr. En hinu er ekki að neita, að víða er það svo, að það er jafnmikil þörf á að byggja upp brýr á sýsluvegum eins og þjóðvegum, og ríkissjóður á að kosta hvort tveggja að fullu, eftir því sem verið hefur upp á síðkastið og gert er ráð fyrir samkv. þessum lögum.

Varðandi þær tvær smábrtt., sem ég hef flutt á þskj. 527, þá vil ég nú mótmæla því, sem fram kom hjá hv. frsm. samgmn., að Sléttárdalur sé hluti af Svínadal. Það eru tveir dalir, og það er þar háls á milli, og dettur engum kunnugum manni í hug að jafna því saman, og er í raun og veru merkilegt, að ein 5 manna n. hér á hv. Alþ. skuli ekki vera betur að sér í landafræðinni en það að geta ekki gert sér grein fyrir því, hvað dalirnir heita í landinu. En n. ætlar nú að ganga inn á þetta, svo að það verður nú sjálfsagt leiðrétt, því að þetta er nú ekkert annað en leiðrétting.

Varðandi brúna á Blöndu er það að segja, að hún er ein af elztu brúm landsins og mun vera byggð 1896. Hún er miklu mjórri en æskilegt væri og nú er tíðkanlegt á þeim brúm, sem byggðar eru upp, og það hefur hvað eftir annað þurft að endurbæta hana. Þetta er ekkert sérlega löng brú, og stöplarnir eru náttúrlega í góðu lagi. Þetta er járnbrú. En þegar farið er að setja skrá um það, hvaða gamlar brýr skuli endurbyggja í næstu framtíð, þá fannst mér það eðlilegt og sjálfsagt, að þessi brú yrði tekin þar með, en ég geri nú ráð fyrir, að mikill hópur af þeim brúm, sem hér eru taldar upp í þessu lagafrv., hljóti að bíða töluvert lengi, þangað til þær verða byggðar, en sem sagt fannst mér það ósköp eðlilegt, að þessi brú kæmi undir þann kafla, þar sem taldar eru upp þær gamlar brýr, sem æskilegt er að endurbyggja. Annars má gera ráð fyrir því, úr því að hv. n. getur ekki fallizt á þessa till., að þá verði hún felld, og það verður þá að hafa það.