22.03.1954
Efri deild: 65. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1465 í B-deild Alþingistíðinda. (1711)
172. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég hef einu sinni áður hér á hv. Alþ. bent á það, að ég teldi, að annaðhvort af tvennu gæti átt sér stað: hækkun á eftirlaunum manna úr lífeyrissjóðnum ellegar lækkandi iðgjald í sjóðinn. Ég hélt þá og held enn, að það safnist meira fé í tryggingarsjóðinn en ástæða sé til til að láta hann standa undir sínum skuldbindingum. Hann tekur nú þarna að sér að vísu dálítið auknar skuldbindingar, ekki miklar, en dálitlar, sem hann vafalaust getur vel staðið undir og ég tel í alla staði réttmætar og sjálfsagðar. En ég vildi mjög fara fram á það, að n., sem fær þetta mál til athugunar, ekki sízt þar sem í henni er nú flm. og sá maðurinn, sem bezt er inni í þessum málum, athugaði þessa hlið. Mér virðist eftir því, hvað lífeyrissjóður embættismanna vex ört, að það geti ekki hjá því farið, að annaðhvort séu iðgjöldin í hann óþarflega há ellegar eftirlaunin óþarflega lág, og að það þurfi að finna á því réttlátara hlutfall heldur en nú er. Það var eðlilegt, þegar hann var fyrst stofnaður og fyrst framan af, meðan starfsárin voru fá og menn vissu ekki hver meðalaldur lífeyrismanna yrði o. s. frv., að það væri reynt að hafa þetta þannig, að sjóðurinn væri alla vega tryggður. En nú er hann búinn að starfa það lengi, að ég skil ekki annað heldur en að hægt sé að finna nokkurn veginn hæfilegt hlutfall þarna á milli, sem vitanlega á þó að vera þannig, að sjóðurinn sé alltaf tryggður.