26.11.1953
Efri deild: 24. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég vildi út af sérstöku tilefni beina lítils háttar fyrirspurn til hæstv. fjmrh. í sambandi við söluskattinn. Mér hefur ásamt einum af hans flokksmönnum verið falið að athuga möguleika á skipasmiðum innanlands. Í þeim viðræðum, sem við höfum sameiginlega átt við fulltrúa iðnaðarins, fulltrúa skipasmiðanna — eða skipasmiðina reyndar og útvegsins, kom í ljós einn af mörgum agnúum á því, að innlendar skipasmiðastöðvar geti keppt við útlent bátaverð. En það eina atriði, sem hérna gæti komið til mála við þessar umr., er einmitt framkvæmd á söluskattsinnheimtu.

Nú er það svo, að þingið hefur viðurkennt samkv. síðustu fjárl., að þörf sé á að endurgreiða innlendum skipasmiðastöðvum aðflutningsgjöld, þar með talinn söluskatt af efni í skip og báta, er þær smíða. Af efni í skip og báta, er þær smiða, má miða endurgjaldsgreiðsluna við tiltekna fjárhæð á hverja smálest, sem næst því, er ætla má að svari til þeirra aðflutningsgjalda og söluskatts, er greidd hafa verið af etni til smíðanna. Nú kom í ljós við þessar umræður, að fyrir utan þennan söluskatt, sem þarna er rætt um og hæstv. ráðh. hefur samkv. fjárl. yfirstandandi árs heimild til að endurgreiða, — og ég vil ekki bera neinar brigður á, að hann muni framkvæma það eða hafa framkvæmt, ef til hefur komið, — þá er það, að fyrir utan þetta var fullyrt, að þegar svo skipið væri smíðað, fullbúið og afhent til þess manns, sem ætlar að eiga það, þá sé söluskattur um 2% á því framsali eða transaction, m.ö.o., að hinir innlendu bátar séu skattlagðir með 2% á heildarverðinu frá skipasmiðastöðinni til útvegsmannsins. Og vitaskuld er þetta einn af þeim agnúum, sem þessi iðnaður á við að stríða í samkeppninni við útlendu skipin.

Nú stendur hér í þessu frv. á þskj. 189, með leyfi hæstv. forseta:

„Nú kaupir innlendur iðnaðarmaður eða framleiðandi eða fær afhent vöru til framleiðslu sinnar frá öðrum innlendum iðnaðarmanni eða framleiðanda, sem búið hefur vöruna til eða unnið að henni, og í viðskiptum þeirra er söluskatti bætt við verð eða verðmæti vörunnar, og skal þá endurgreiða söluskattinn vegna þessara viðskipta eftir nánari reglum, settum af fjmrh.“

Þetta stendur í 3. gr. þess frv., sem hér ræðir um. Og í tilefni af því og hinu, að við erum einmitt að velta þessum málum fyrir okkur á öðrum vettvangi, þá vildi ég leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh., hvort hann muni ekki treysta sér til þess að skilja þessa gr. þannig, að hún heimili eða fyrirskipi endurgreiðslu á þeim söluskatti, sem leggst á fullsmiðaðan bát, smiðaðan hér á landi, við afhendingu til þess, sem kaupa skal, því að skipasmiðurinn er náttúrlega innlendur iðnaðarmaður, — því að ég vildi segja, að kaupandi skipsins, útvegsmaðurinn, er náttúrlega framleiðandi, eins og hér er orðað. Hann fær þarna afhent skip, en ekki vöru, og þess vegna er eftir orðalaginu kannske ekki alveg rígbundið við, að það eigi við skip, þó að mér fyndist öll sanngirni mæla með því, að það nái til fullsmiðaðs skips eins og til annars, sem er kölluð vara eða varningur. Og hér er talað um, að hann fái þessa vöru afhenta frá öðrum innlendum iðnaðarmanni eða framleiðanda, og undir það hugtak getur maður vel sett skipasmíðastöðina. M.ö.o.: Ég hef áhuga fyrir að vita, hvort hæstv. ráðh. lítur þannig á, að þessi grein, ef að lögum verður, fyrirskipi endurgreiðslu á þeim söluskatti, sem ég hef fyrir satt að sé lagður á fullsmiðuð innlend skip, þegar þau eru afhent þeim, er nota skal. Ég vonast til, að hæstv. ráðh. treysti sér að gefa hér jákvæð svör, því að þetta væri hampaminnsta lagfæringin á þessum agnúa viðvíkjandi umræddri iðnaðargrein.