22.02.1954
Neðri deild: 51. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)

144. mál, orkuver Vestfjarða

Eiríkur Þorsteinsson:

Herra forseti. Frv. á þskj. 371, sem hér liggur fyrir til umræðu, er flutt af okkur fjórum þm. af vestanverðum Vestfjörðum, sem sæti eigum í þessari hv. d. Málið er eins og önnur samvirkjunarmál umbóta- og hagsmunamál þeirra héraða, sem virkjunin er hugsuð fyrir.

Eins og frv. ber sér, er orkuverið fyrir vestanverða Vestfirði ákveðið í frv. við Dynjandisá í Arnarfirði til raforkuvinnslu fyrir allt að 7 þús. hestöfl. Skulu orkuveitur frá því leggjast í vestur til Bíldudals, Tálknafjarðar og Patreksfjarðar, en til norðurs að þorpunum Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Bolungavík, Súðavík, Hnífsdal og Ísafjarðarkaupstað. Auk þess komast mörg sveitabýli í hreppum Vestur-Ísafjarðarsýslu inn á orkuveitukerfið.

Með frv. þessu er staðfest, að ríkisstj. Íslands er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að taka lán eða ábyrgjast lán, sem rafmagnsveitur ríkisins taki, allt að 60 millj. kr. Er það fyllilega sú upphæð, sem raforkumálastjóri hefur í munnlegum viðtölum sagt okkur tveim flm. að orkuverið muni kosta með núgildandi verðlagi. En ég skal taka það fram, að hann hefur algerlega neitað að gefa okkur nokkrar áætlanir skriflega.

Það er leitt til þess að vita, að allar vakningaröldur í þessu samorkuveri Vestfjarða, sem risið hafa, skuli hafa verið dempaðar niður. Vestfirðingar áttu frjálslyndan umbótamann, Pál Torfason á Flateyri, sem benti á iðnaðar- og virkjunarmöguleika Vestfirðinga með stofnun nýs sérstaks fyrirtækis 1912. Valdi hann Arnarfjarðarfossa þá, sem getið er um í grg. þessa frv., sem þá sjálfsögðu orkugjafa til slíks iðnaðar, enda fór rannsókn á virkjunarmöguleikum við Dynjanda fram árið 1916 fyrir tilverknað Páls Torfasonar, og síðan á öllum ánum, er falla í Dynjandisvog og Borgarfjörð, eða þeim Dynjandisá, Svíná, Mjólká og Hofsá.

Þessar framkvæmdir munu hafa stöðvazt eins og tíðum hér á landi vegna fjárskorts, því að hvort tveggja mun þessi stórhuga maður hafa átt til að bera vilja og áræði.

Vestfirzku kauptúnin hafa nú ýmist komið sér upp dieselrafstöðvum eða smáum vatnsaflsstöðvum, sem allar eru ófullnægjandi til frambúðar. Verð rafmagns á Vestfjörðum er hæst á landinn. Þó að afskrifaðar verði á nokkrum árum dieselrafstöðvarnar á Vestfjörðum, byrja enn á ný kaup á nýjum vélum, sem þá standa á ný í dýrtíðarverði.

Nú hafa stjórnarflokkarnir, að því er bezt verður séð, gengið frá því í samningum sín á milli að veita á næstu fjórum árum um 100 millj. til raforkuframkvæmda í dreifbýli landsins. Nú eygir íslenzk æska í dreifbýli landsins sól koma upp á ný við dagsetur í flestum héruðum landsins, um leið og hin sígur í sæ. Þjóðinni opnast nýir möguleikar, sem leiðir atvinnuhætti og lífsmöguleika til hærri sviða víðs vegar um land, þar sem einhæfni atvinnuvega og mannaflið eitt, með aðstoð hestsins, var allt.

Með frv. því, sem við þm. Vestfjarða erum hér einhuga um að flytja fyrir það fólk og þau héruð, sem við förum með umboð fyrir hér á hinu háa Alþingi, viljum við leggja grundvöll að möguleikum fyrir þeim bættu skilyrðum, sem ég hef hér minnzt á. — Svo er það íbúa Vestfjarða að hafa forgöngu í framkvæmd og notfæra orkuna og gera garðinn frægan, svo að hann standi sizt að baki öðrum menningarstöðum þjóðfélagsins.