29.03.1954
Neðri deild: 72. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1736)
144. mál, orkuver Vestfjarða
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar flm. þakka hv. n. fyrir það, að hún mælir með samþykkt þessa þýðingarmikla máls fyrir byggðirnar á Vestfjörðum. Ég og við flm. höfum ekki neitt á móti þeim brtt., sem n. leggur til að frumkvæði raforkumálastjóra. Heimildin er t. d. rýmkuð, þegar hún er miðuð við Dynjandisá eða Mjólká í staðinn fyrir að í frv. var einungis miðað við Dynjandisá. En vel getur komið til mála, að það verði niðurstaðan, þegar rannsókn raforkumálastjórans lýkur nú í lok aprílmánaðar, eins og lofað hefur verið, að þá sýnist það hagkvæmara að setja aflstöðina við Mjólká en við Dynjandisá, því að það eru betri skilyrði til þess, að ég hygg, að leiða Dynjandisá í Mjólká uppi á fjöllunum heldur en gagnkvæmt. Sama máli er að gegna um þær heimildir, sem n. leggur til að felldar verði inn í frv. Ef röggsamleg framkvæmd fylgir þeim heimildum, má það gilda einu, hvort það eru fyrirmæli eða í heimildarformi, og verður vitanlega að ganga frá þeim atriðum, ef á annað borð notuð er heimildin í 1. gr. um virkjun Dynjandisár eða Mjólkár.
Þá vil ég aðeins fara nokkrum orðum um það, sem bæði hv. frsm. og hv. þm. A-Húnv. sögðu hér áðan viðvíkjandi eldri heimildum um smávirkjanir eða sérvirkjanir á Vestfjörðum. Ég vona, að enginn hv. nm. hafi verið þeirrar skoðunar, að það gæti verið um annaðhvort að ræða samvirkjun fyrir Vestfirðina eða virkjunina, sem þegar er heimiluð í lögum fyrir Bolungavík, því að það er ekkert „annaðhvort eða“ þarna, heldur miklu fremur „bæði og“, því að þótt byggð verði virkjunin í Bolungavík, er jafnóleyst virkjunarmálið fyrir Suðureyri í Súgandafirði, Flateyri við Önundarfjörð, Þingeyri við Dýrafjörð og þá náttúrlega þar að auki bæði Bíldudal og Patreksfjörð. En ég skil, að það gæti litið þannig út fyrir lítt kunnugum, að varðandi eldri heimildina til virkjunar Fossár í Bolungavík, þá væri verið að hverfa frá þeirri heimild, þurrka hana út með þessum nýju, víðtæku heimildum til stórvirkjunar fyrir Vestfirði, en það er ekki ætlun okkar flm.
Ég skal upplýsa, að það liggur fyrir skjallega umsögn raforkumálastjóra um þetta atriði. Sú umsögn er í ársskýrslu Sambands íslenzkra rafveitna, sem gefin var út s. l. sumar, og þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Einnig ber að geta þess, að háspennulínur liggja að verulegu leyti í töluverðri hæð yfir sjávarmáli og bilunarhætta því tiltölulega mikil. Allar aðstæður eru líka mjög erfiðar, og er því hætt við, að það geti tekið langan tíma að gera við línubilanir. Af þessu leiðir, að rekstraröryggisins vegna mun vera óhjákvæmilegt að reisa varastöðvar í kauptúnunum, þó virkjun Dynjandisár eða önnur samvirkjun fyrir Vestfirði verði framkvæmd.“
M. ö. o., raforkumálastjórinn hefur litið svo á, að þótt samvirkjun yrði framkvæmd fyrir Vestfirði, yrði að reisa öryggisstöðvar inn á þetta kerfi vegna bilunarhættu og hættunnar á, að lagfæringar, viðgerðir, gengju seint. Hann hefur hugsað sér þessar öryggisstöðvar fyrst og fremst sem mótorstöðvar, en samkv. heimildinni frá 1950 var ætlunin að byggja 400 kw. vatnsaflsstöð í Fossá í Bolungavík. Nú hagar þannig til, að einn hæsti og erfiðasti fjallgarðurinn, sem háspennulínan frá Dynjanda yrði að leggjast yfir, er Breiðadalsheiði, en norðan Breiðadalsheiðar liggur Bolungavíkurkauptún, Hnífsdalskauptún, Súðavíkurkauptún og Ísafjarðarbær, og samtals er í þessum kauptúnum og kaupstað 4200 manns, meira en helmingurinn af þeim mannfjölda, sem á að njóta raforkunnar frá allri heildarvirkjuninni.
Ég tel því, að það liggi mjög augljóslega fyrir, að til þess að byggja þær nauðsynlegu öryggisstöðvar á norðurhluta kerfisins, sem er fyrir á fimmta þúsund manns, sé nokkuð sjálfsagt að byggja aflstöðina í Bolungavík sem öryggisstöð og að sú heimild sé notuð alveg jafnt fyrir það, þó að hin víðtæka heimild um Dynjandisvirkjunina sé samþykkt. Og ég skal leiða rök að því, að ég tel meira að segja mjög heppilegt að byrja þessar framkvæmdir á Bolungavíkurvirkjuninni, vegna þess að það þarf nú þegar að gera stórkostlegar breytingar eða aukningu á mótorstöðinni, sem nú er í Bolungavík, og mundi sennilega taka til sín allt að einni millj. króna að framkvæma þá aukningu, ef ekki verður virkjað í Fossá í Bolungavík, en sú virkjun er áætluð 3–4 millj. kr. Þá væri með byggingu aflstöðvarinnar í Fossá í Bolungavík búið að byggja öryggisstöðvarnar, sem þyrfti norðan Breiðadalsheiðar, inn á kerfið. Engin rök þarf að flytja fyrir því, að sú öryggisstöð verði, með því að hún sé vatnsaflsstöð, ódýrari í rekstri fyrir framtíðina og viðhaldskostnaður hverfandi og veitti meira öryggi en mótorstöð. En það eru fleiri kostir, sem fylgja þessu, og m. a. þeir, sem nú skal greina. Bolungavíkurstöðin yrði þá tengd inn á heildarvirkjunina frá Dynjanda í framtíðinni og byrjað á því auðvitað að tengja saman Bolungavíkurveitu og Ísafjarðarveitu. Þegar búið væri — sem ætti að vera hægt eftir sumarið í sumar — að byggja Bolungavíkurveituna, þá tel ég, að það væri heppilegast — og það yrði rætt við raforkumálastjóra og raforkumálaráðh. að byggja háspennukerfið frá þessum aflstöðvum og vestur yfir til Súgandafjarðar, Önundarfjarðar, Dýrafjarðar og vestur á virkjunarstaði við Arnarfjörð. Þá er það unnið, að þessi pláss hafa þegar eftir eitt ár fengið raforku, sem nægir þeim fyllilega yfir sumarmánuðina. Það er búið að leysa raforkumál þeirra að nokkru leyti strax í byrjun stórvirkjunarinnar. Og það er enn fremur búið að leysa annan vanda, sem er nauðsynlegt að leysa, og það er það, að raforka sé tiltæk á virkjunarstaðnum við Dynjanda, þegar virkjunin byrjar þar. Þar á að flytja byggingarvörur og vélar og tæki upp á fjöll, og það er ákaflega erfitt og dýrt, ef ekki er næg orka á staðnum. Það að vera þess vegna búinn að fá gegnum háspennulínuna, sem lögð sé frá aflstöðvunum í Bolungavík og á Ísafirði vestur um á virkjunarstað, tryggir næga orku meðan hin dýra mannvirkjagerð stendur við Arnarfjörð, þar sem aðalorkuverið á að byggja. Það yrði enn fremur búið að venja Þingeyringa, Flateyringa, Súgfirðinga og Bolvíkinga á fulla raforkunotkun frá þessum virkjunum norðan Breiðadalsheiðar, og það þýðir stórbætta rekstrarafkomu hins mikla og dýra mannvirkis strax, þegar það væri byggt og farið væri að framleiða raforku, sem er mikill kostur. En að því er Bolungavíkurvirkjunina snertir skapast við þetta sú óvenjulega aðstaða, að öll raforka, sem þetta litla 400 kw. orkuver framleiðir, selst fullkomlega frá þeirri fyrstu stundu, sem vélarnar byrja að snúast. En það eru einmitt fyrstu árin, sem venjulega eru erfið öllum vatnsaflsstöðvum, þegar þarf langan tíma þar á eftir, kannske árum saman, að venja fólkið við raforkunotkunina. Það væri þess vegna búið að vinna þetta: að byggja öryggisstöðina, sem nauðsynlegt er samkvæmt áliti raforkumálastjóra að byggja norðan Breiðadalsheiðar, með vatnsaflsstöðinni litlu í Bolungavík. Það yrði búið að tryggja öllum kauptúnunum í Vestur-Ísafjarðarsýslu vestur til Arnarfjarðar næga raforku að sumrinu, og það væri búið að tryggja raforku á virkjunarstað til þess að gera byggingu orkuvers og aflstöðva við Dynjandisá og Mjólká ódýrari og auðveldari, þegar raforka væri þar á staðnum. Ég tel, að þetta mál liggi því ákaflega augljóst fyrir og mjög á þá lund, sem hv. þm. A-Húnv. gerði hér áðan grein fyrir í samræmi við það, sem hann vildi tryggja. Það á því ekki að geta orðið ásteytingarsteinn fyrir neinn, að málið liggur nú þannig fyrir, að áherzla er lögð á þetta tvennt: að fá heimildarlög til þess að virkja Dynjandisá eða Mjólká við Arnarfjörð, sem er einasti möguleikinn til þess að tryggja Patreksfirði, Bíldudal, Þingeyri, Flateyri og Suðureyri fullnægjandi raforku, — það er engin leið til þess að gera það á annan hátt, nema þá með rándýrri raforku, framleiddri með mótorstöðvum, — og jafnframt að byggja fyrir framtíðina öryggisstöð fyrir á fimmta þúsund manns, sem undir öllum kringumstæðum þarf að byggja hvort sem er.
Ég vil því vona, að með samþykkt þessa frv. sé búið að veita þær heimildir, sem verða að vera fyrir hendi, til þess að lagður sé grundvöllurinn að úrlausn raforkumálanna fyrir 7 þús. manns í öllum kauptúnum Vestfjarða og Ísafjarðarkaupstað.
Eins og ég sagði í upphafi máls míns, þá mælum við allir flm. frv. með því, að frv. verði samþ. með þeim breytingum, sem hv. n. hefur lagt til, og eins og ég hef nú útlistað, þá tel ég, að þær ábendingar, sem liggja fyrir frá tveim hv. nm., dragi á engan hátt úr því, að það sé rétt fyrir hv. Alþ. að veita þessa víðtæku heimild í viðbót við þær heimildir, sem fyrir eru. Er þar að mínu áliti engu verið að hagga og ekki verið að afturkalla neinar þær fyrri heimildir, sem veittar hafa verið til smávirkjunar eins og Bolungavíkurvirkjunarinnar.