30.03.1954
Neðri deild: 73. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)
181. mál, orkuver og orkuveitur
Frsm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Þegar sett voru lög um ný orkuver og nýjar orkuveitur rafmagnsveitna ríkisins á þinginu 1952, þá var heimilað að virkja Fjarðará í Seyðisfirði eða Grímsá á Völlum til raforkuvinnslu í allt að 2 þús. hestafla orkuveri og leggja frá orkuverinu aðalorkuveitu til Seyðisfjarðarkaupstaðar, Neskaupstaðar og Eskifjarðarkauptúns. Nú hefur komið í ljós í sambandi við mælingar og áætlanir um raforkuver fyrir Austurland, að hentugra muni að reisa orkuver við Lagarfoss á Fljótsdalshéraði í stað þeirra, sem getið er um í lögunum frá 1952.
Frv. það, sem hér liggur fyrir, fjallar um það að fá inn í lögin nýja heimild í þessu sambandi. Fjhn. hefur tekið þetta mál til athugunar og kynnt sér viðhorf raforkumálastjóra til þess, og eftir að hafa athugað málið, þá leggur n. til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. Ég sé, að á þskj. 564 hefur verið flutt brtt. við þetta mál, eftir að n. tók það til athugunar, og mun flm. þeirrar brtt. væntanlega gera grein fyrir henni nú við þessa umræðu.