17.12.1953
Neðri deild: 40. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1512 í B-deild Alþingistíðinda. (1864)
121. mál, skipun læknishéraða
Flm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Till. á þskj. 279, um skiptingu Egilsstaðalæknishéraðs í tvö læknishéruð, er flestum hv. þdm. kunn frá tveimur s. l. þingum. Í bæði skiptin fékk málið afgreiðslu frá þessari hv. d., en á s. l. þingi þó í breyttu formi, þ. e., að héraðinu skyldi ekki skipt, en skipaður aukalæknir, þannig að tveir fastalæknar skyldu þjóna héraðinu. Hins vegar lagðist hv. Ed. á móti málinu, enda hafði það í bæði skiptin verið afgr. úr hv. Nd. í tengslum við skiptingu læknishéraðs á Norðurlandi.
Fljótsdalshérað hefur lengst af verið tvö læknishéruð, en með l. nr. 8 frá 1944 voru þau sameinuð í eitt. Heima í héraði voru menn mjög á móti þessari sameiningu, þar sem af henni hlaut að leiða, að læknum héraðsins var þar með fækkað úr tveimur í einn. Gerðist þetta á sama tíma og menn á Fljótdalshéraði voru að hefja samtök um það að byggja sjúkrahús sameiginlegt fyrir allt héraðið. Heima í Fljótsdalshéraði voru menn strax mjög á móti þessari sameiningu, eins og áður er sagt, þar sem það var augljóst, að af henni hlaut að leiða mjög mikla afturför í læknamálum héraðsins. Menn höfðu ekki heldur trú á því heima í héraði, að sú viðbótarhlaupaþjónusta, sem veita átti með annaðhvort nýbökuðum kandídötum eða jafnvel læknanemum samkv. l. frá 1944, yrði viðunandi lausn eða til þess gagns, sem gert var ráð fyrir af heilbrigðisstjórninni. Svo hefur ekki heldur orðið, og síðan 1948 hafa heilbrigðisstjórninni og Alþ. sífellt borizt áskoranir frá oddvitum allra tíu hreppa héraðsins, svo og sjúkrahússtjórninni, um að skipta læknishéraðinu aftur í tvö læknishéruð, og á síðustu árum hefur héraðslæknirinn tekið undir þessar áskoranir.
Íbúar Fljótdalshéraðs gerðu sér nokkra von um á síðasta þingi, að það hv. Alþ. mundi verða við sanngjörnum og eðlilegum óskum þeirra í því efni að skipta héraðinu, en urðu fyrir miklum vonbrigðum, þegar svo varð ekki. Austfirzkum þm. barst því í vetur áskorun um að bera enn fram frv. um skiptingu læknishéraðsins, og er þess vænzt, að þessi hv. þd. veiti málinu nú ekki lakari fyrirgreiðslu en hún hefur áður gert bezta.
Ég sé ekki ástæðu til að fylgja þessu frv. úr hlaði með fleiri orðum. Flestir þdm. þekkja til málavaxta, auk þess sem ég vísa til þeirrar grg., sem fylgir málinu. — Að lokinni þessari umr. óska ég, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.