02.04.1954
Efri deild: 76. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1524 í B-deild Alþingistíðinda. (1895)

195. mál, hjúskapur, ættleiðing og lögráð

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt samkvæmt ósk minni eða dómsmrn. og hefur sannast sagt ekki mikla þýðingu, heldur er nánast algerlega formlegs eðlis. Þannig er mál með vexti, að Ísland er aðili að samningi Norðurlandaríkjanna frá 6. febr. 1931, sem fjallar um nokkur alþjóðleg einkamálaréttarákvæði varðandi hjúskap, ættleiðinga og lögráð. Það hafa verið gerðar breytingar á þessum samningum, aðallega í sambandi við lýsingu hjúskapar og vegna þess að nú er búið að taka upp skilnað að horði og sæng í Finnlandi, sem ekki var áður. Hvorugt af þessu snertir Ísland verulega eða hefur þýðingu hér, en þar sem við erum aðilar að samningnum, þá er rétt, að við tökum þátt í breytingum á honum líka af formlegum ástæðum, og vonast ég til þess, að þetta meinlausa frv. valdi engum erfiðleikum, heldur geti það gengið sína leið.