24.03.1954
Neðri deild: 67. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1536 í B-deild Alþingistíðinda. (1983)
173. mál, brunatryggingar í Reykjavík
Frsm. meiri hl. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. N. hefur haft frv. þetta til athugunar, en ekki hefur orðið samkomulag í n. um frv., og er því hér á þskj. 517 flutt álit meiri hl. n., sem mælir með því, að frv. sé afgreitt óbreytt.
Breyting, sem er í þessu frv. frá núgildandi l., er aðallega sú, að bæjarstjórn Reykjavíkur er heimilað að taka í eigin hendur brunatryggingar allra húseigna í lögsagnarumdæminu eða semja við vátryggingarfélag, eitt eða fleiri, um slíkar tryggingar eða um endurtryggingar á áhættu bæjarins. Sem sagt, breytingin er sú að heimila bænum að taka í eigin hendur tryggingarnar eða að endurtryggja á áhættu bæjarins.
Meiri hl. n. telur ekki óeðlilegt, að bærinn fái þessa heimild. Hér er um að ræða þjónustu við bæjarbúa, sem vel mætti líkja við ýmsa aðra þjónustu, sem bærinn hefur á hendi, svo sem brunavarnir og vatn og rafmagn og annað þess háttar, enda hefur það sýnt sig, að þessi þjónusta bæjarins á undanförnum árum í sambandi við þetta mál hefur valdið því, að iðgjöld hér í bænum fyrir brunatryggingar á húsum eru nú allt að helmingi lægri en þau iðgjöld, sem menn verða að greiða, ef þeir tryggja á venjulegan hátt hjá vátryggingarfélögum. Það, sem vakir fyrir bæjarstjórninni, er að koma sér upp sjóði í þessum efnum, er svo gæti með tímanum tekið við tryggingunum að öllu leyti, og finnst meiri hl. n. það fyllilega réttmætt, að bærinn taki að sér slíka þjónustu.
Ég sá, að um þetta var ritað í eitt dagblað bæjarins í dag, og þar var sagt, að hér væri um að ræða dulbúinn fasteignaskatt. Ég veit nú ekki, hvernig það góða blað, sem um þetta ritaði, gat fengið þá hugmynd, að hér væri um dulbúinn fasteignaskatt að ræða, og finnst mér það vera furðuleg fjarstæða. Þetta er eðlileg þjónusta við borgarana, og það eru þeir fyrst og fremst, sem koma til að hafa gott af því, ef hægt er að lækka iðgjöldin með einhverjum hætti eins og bærinn hefur gert á undanförnum árum. Einnig virðast þeir, sem þessu frv. standa öndverðir, nokkuð hafa út á það að setja, að þessum sjóði, sem myndaður verður af hagnaði af þessum tryggingum, verði einnig varið til eflingar á brunavörnum. Að sjálfsögðu er ekki gott að skilja sundur brunavarnir og tryggingarnar í sjálfu sér, en það má segja, að bænum beri að halda uppi brunavörnum. En hvað sem því líður, þá verður þetta nú allt tekið úr sama sjóðnum, þ. e. a. s. af því fé, sem borgararnir leggja bænum til. Meiri hl. n. væntir þess, að hv. deild geti fallizt, á tillögu hans.