27.03.1954
Neðri deild: 71. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1561 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)
173. mál, brunatryggingar í Reykjavík
Frsm. meiri hl. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Sumum finnst nokkuð einkennilega við bregða, er hv. framsóknarmenn þykjast nú orðnir öðrum mönnum skeleggari gegn ríkis- og bæjarrekstri, eins og fram hefur komið í þessum umræðum. En væntanlega liggur ekkert þar á bak við nema löngunin til þess að hafa frjálsræði sem mest í landinu, og mætti þá segja, að batnandi mönnum sé bezt að lifa.
Ég er sammála hv. 2. þm. Eyf. um það, að fullmikill hraði sé í þeirri kollsteypu, sem hefur verið tekin í þessu máli með þeirri samþykkt, sem gerð var hér í gær á því frv., sem hér liggur fyrir. Það getur vel verið rétt, sem ýmsir hafa haldið fram, að staðir og héruð utan Reykjavíkur verði að þola þyngri búsifjar í sambandi við brunatryggingarmál en Reykjavík og þess vegna sé réttmætt, að þetta verði nú gefið frjálst með pennastriki. Það getur vel verið, að þetta sé rétt og taka þurfi þetta mál til íhugunar og ef til vill að leiðrétta hlut manna utan Reykjavíkur í þessu efni. En mér finnst það mjög óhyggilegt, einmitt með svona mál, sem er fjölþætt og vandasamt, að breyta því svo skyndilega án nokkurrar athugunar. Reykjavík hefur alveg sérstöðu í þessu máli. Ég hygg, að aðstaða staða og héraða úti á landi sé afar misjöfn og sé því ekki hægt að leggja sama mælikvarða á alla staði utan Reykjavíkur. Þess vegna er ekki skynsamlegt að gera þessar breytingar án nokkurrar rannsóknar eða athugunar. En vegna þeirrar breytingar, sem frv. hefur nú tekið, þá ætla ég að bera fram brtt., sem ég ætla að leyfa mér að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta. Hún er skrifleg, og verð ég að biðja hann um að leita afbrigða fyrir tillögunni, áður en hún er lögð fram. Hún hljóðar svo:
„Á eftir 1. gr. komi ný gr., er verði 2. gr. (og breytist greinatala samkv. því): Skylt er bæjar- og sveitarstjórnum á fimm ára fresti að leita tilboða í tryggingarnar á frjálsum markaði. Sama gildir um endurtryggingar. — Bæjar- og sveitarfélög geta því aðeins tekið tryggingarnar í eigin hendur, að fjárhagsgrundvöllur þeirra sé tryggur og iðgjöldin séu sambærileg iðgjöldum viðurkenndra tryggingarfélaga, sem hagkvæmast tilboð gefa, að viðbættu gjaldi, sem ákveðið er að leggja í sérstakan tryggingarsjóð, sbr. 1. mgr.“
Það, sem stefnt er að með þessari till., er fyrst og fremst það, að þegar búið er að gefa öllum bæjar- og sveitarfélögum á landinn heimild til þess að taka tryggingar í eigin hendur á einn eða annan hátt, þá sé jafnframt séð fyrir því, að iðgjaldagreiðendur greiði nokkurn veginn sannvirði fyrir sínar brunatryggingar. Með því að skylda bæjar- og sveitarfélögin til að leita tilboða á fimm ára fresti, er nokkurn veginn fengin trygging fyrir því, að ekki sé hægt að halda iðgjöldunum hærra en eðlilegt væri á frjálsum markaði, sem leitað væri eftir, fyrir slíkar tryggingar í heild.
Seinni hluti till. er um það, að bæjarfélögin geti ekki tekið þessar tryggingar í eigin hendur, nema fjárhagsgrundvöllurinn sé tryggur, og virðist það ekki nema sjálfsögð og eðlileg krafa, að slíkt sé gert og bæjarfélögin fari ekki að taka slíka ábyrgð á sig án þess að hafa fyrir því baktryggingu eða svo stóran tryggingarsjóð, að segja mætti, að hann gæti staðið fyrir áhættu slíkra trygginga. Hins vegar tel ég sjálfsagt, að bæjarfélag, sem tekur þessar tryggingar í eigin hendur með það fyrir augum fyrst og fremst, að tryggjendurnir sjálfir njóti góðs af, geti ekki gert þessar heimildir að tekjustofni fyrir sjálft sig. En með þessu á að tryggja fasteignaeigendum eða þeim, sem iðgjöldin greiða, að þeir greiði á hverjum tíma nokkurn veginn heilbrigt og sanngjarnt iðgjald fyrir brunatryggingu eigna sinna, jafnvel þó að bæjarfélagið eða sveitarfélagið hafi tekið tryggingarnar í eigin hendur.