09.04.1954
Efri deild: 84. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1625 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)
193. mál, brunatryggingar utan Reykjavíkur
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Ég get tekið undir með hv. þm. Str. um það, að það er ekki þörf á að vera að tefja málið. En ég var áður búinn að gera nokkra grein fyrir því, að það hefði verið af ráðnum hug, að við flm. frv. vildum láta líða þetta tímabil, vegna þess að við álítum, að sá tími, sem líður nú frá þingslitum og til 15. okt., geti orðið mjög bagalega naumur öllum aðilum til þess að koma sínum tryggingarmálum í nýtt horf, ef þeir óska þess, og ég geri ráð fyrir, að flestir óski þess, ef ekki allir. Þess vegna þótti okkur hæfilegt að gefa rúman tíma. Þetta mál er ekki heldur svo bráðaðkallandi eða með neina hættu aðsteðjandi að sveitarfélögunum, að maður hafi ekki efni á því að fara í það hóflega, eins og frv. er upphaflega markað. Ef um það tvennt væri að velja í mínum augum, að tíminn væri helzt til rúmur á móti því að vera helzt til þröngur, þá vildi ég heldur hafa rúman tíma til þessara hluta af ýmsum ástæðum heldur en að skera stakkinn þröngan til athafna og ráðagerða um það, hvernig menn geti bezt komið fyrir sínum tryggingum. Ég vildi heldur hafa tímabilið frekar rúmt heldur en of þröngt. Ég teldi, að af því gæti hlotizt frekar skaði, ef hið síðara yrði ofan á. — Að öðru leyti skal ég ekki gera þetta að kappsmáli. Ég vildi bara gera grein fyrir því, af hvaða ástæðu við vildum hafa þennan tíma þetta rýmri og teljum, að ekki sé þörf á neinu sérstöku bráðlæti í þessum efnum.