12.04.1954
Neðri deild: 90. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (2091)

193. mál, brunatryggingar utan Reykjavíkur

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Það er síður en svo, að ég hafi haft á móti því, að þessi athugun færi fram, sem er ráðgerð hér, því að við umræðurnar um brunamál Rvíkur hafði ég einmitt á orði, að ef samstundis væru tryggingarnar gefnar frjálsar utan Reykjavíkurborgar, þá gæti vel svo farið, að það kæmi illa við starfsemi Brunabótafélags Íslands, og þess vegna væri ástæða til þess að kynna sér það, áður en slík ákvörðun væri tekin, svo að hv. 5. landsk. þarf þess vegna ekki að beina orðum sínum til mín um þetta efni, að ég hafi verið tregur til eða sé tregur til, að slík athugun færi fram. Og það þykist ég nú reyndar vita fyrir fram, að það hefur hann ekki meint til mín, því að til slíks var ekkert tilefni.

Nú hef ég undirstrikað það við þessa umr. einnig, að þessi athugun fari fram, og þess vegna leggjum við ekki til, að þetta mál sé fellt og athugunin fari ekki fram. Það er alveg þvert á móti. En við í minni hl. leggjum það til, að þetta frv. taki gildi ári fyrr en ákveðið er eftir 1. gr. frv., eins og hún er nú. Hv. 5. landsk. taldi, að ef þessi brtt. okkar væri samþ., þá væri naumur tími til að setja lög gegnum þingið á komandi hausti. Það er rétt, það er ekki langur tími. En um slíkt mál sem þetta, sem tekur til meginþorra þjóðarinnar eða allmikils hluta hennar, og svo framarlega sem um gagnlegt mál er að ræða, þá ætla ég, að það gæti gengið á skömmum tíma í gegnum þingið. Ég geri ráð fyrir því, að hv. alþm. láti sér annt um það, að slík fyrirgreiðsla fáist í tæka tíð, svo að ekki verði það til tjóns. Þess vegna held ég, að það sé ástæðulaust að ala nokkurn ugg í brjósti um það, að það atriði geti valdið óþægindum.

Svo svaraði hv. 5. landsk. því, að þetta mundi ekki vera nein óvenjuleg lagasmíði hvað gildistökuna áhrærir, og vitnar til síðustu greinar frv., 6. gr., og segir, að lögin eigi að öðlast þegar gildi. Það er rétt. Það hafði ég líka lesið. En hvað í þessari lagasmíði öðlast gildi? Hvað kemur til framkvæmda? Nefndarskipunin og athugun málsins — og búið. Eru ekki þessi ákvæði, sem í þessu frv. felast, í lögum Brunabótafélags Íslands, hvað áhrærir öryggi og alla meðferð þessara mála? Er ekki það í fullu lagi? Skortir eitthvað á um það og að það þurfi að sjá fyrir því með þessari lagasmíði, og hverju breytir hún þá í framkvæmdinni nú? Ekki neinu. Það er ekkert. Það er ekkert, sem kemur til framkvæmda nema nefndarskipunin og hennar starf. Það var einmitt þetta atriði, sem ég var að tala um. Hitt biður, ef engin breyting verður á því gerð, framkvæmda til 15. okt. 1955. Vegna Brunabótafélags Íslands og þeirrar starfsemi, sem það innir af höndum, er þetta sett. Það starfar eftir sínum eldri lögum. Ekki eru þau hér með numin úr gildi. Þau standa áfram, eins og eðlilegt er. Þau eiga að gera það eftir þessu frv. og verða að gera það.

Þetta er einmitt mergurinn málsins. Þess vegna er þessi smíði nú og samþykkt hennar hér á Alþ. alveg óþörf, nema þá hvað hún ber með sér eitthvert annað fyrirkomulag, sem þarna á að taka upp, heldur en tíðkazt hefur, og er gersamlega allt að óþörfu. Það er eiginlega það kynduga við þetta, ef ég mætti orða það svo. Það verður þess vegna ekki rökstutt með því, sem hv. 5. landsk. dró nú fram um gildistöku þessara laga, það gefur þessari lagasetningu, eins og hún er úr garði gerð, ekki meiri rétt. Ég held, að það færi bezt á því að láta lögin öðlast gildi á komandi hausti. Þá sýnir þó Alþ. bæði vilja og viðleitni til þess, ef breytinga þarf með, og það er réttmætt á allan hátt, að þá verði ekki beðið lengur eftir því en til næsta hausts. Hvað undirbúninginn áhrærir, þá er það alveg vorkunnarlaust að hafa gert hann og meira að segja unnið hann vel, svo að það er vel fyrir undirbúningi málsins séð hvað það áhrærir.