12.04.1954
Neðri deild: 90. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1640 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)
193. mál, brunatryggingar utan Reykjavíkur
Pétur Ottesen:
Ég get í sambandi við þær umr., sem farið hafa fram um þetta mál og einnig áður fyrr hér í d. um annað mál, þar sem einnig var rætt um þetta atriði, lýst því yfir sem minni skoðun, að ég er því samþykkur og fylgjandi að brunatryggjendum úti um land verði, eins og nú er komið, gefið frjálsræði til þess að ákveða um sínar tryggingar og þannig sé losað um þau bönd, sem nú tengja alla aðra brunatryggjendur í þessu landi en Reykjavíkurbæ við Brunabótafélag Íslands.
En það er athyglisvert í þessu máli, að talað er um það hér, að Reykjavíkurbær hafi hér að öllu leyti sérstöðu og sé eðlilegt, að hann geti notið betri kjara með brunatryggingar en önnur byggðarlög í þessu landi. Í sambandi við þetta er vert að athuga það, að þegar lögin um Brunabótafélag Íslands voru fyrst sett, þá var talið, að áhættan væri svo mikil hér í Reykjavík, að ekki þótti fært að taka Reykjavík undir ákvæði Brunabótafélagsins. Það má vera, að þetta hafi þá verið réttmæt ástæða, en hér á er orðin breyting í verulegum atriðum að því leyti, hve miklar framfarir hafa orðið í brunavörnum hér í bænum. Þess vegna er þetta ekki sambærilegt nú, auk þess sem Brunabótafélagi Íslands hefur auðvitað vaxið mjög fiskur um hrygg síðan það hóf hér sína starfsemi. En þess er líka vert að gæta, að hliðstæðar framfarir í brunavörnum hafa og orðið í öðrum kaupstöðum þessa lands og yfirleitt í öllu þéttbýli landsins, svo að miðað við brunahættuna hér sé svo komið, að það sé ekki mikill munur á og öðrum kaupstöðum þessa lands. Því væri eðlilegt, að þeir hefðu aðstöðu til að sitja við sömu kjör. Hitt er svo aftur um dreifbýlið. Þar er víðast svo ástatt, að þar eru brunavarnir mjög ófullkomnar og sums staðar ef til vill engar, en þar kemur það aftur á móti, að þó að einstaka eldsvoða beri að höndum, þá er náttúrlega ekki um neitt sambærilegt tjón að ræða við það, sem er í þéttbýlinu, og þetta ber að sjálfsögðu allt að athuga í sambandi við það, þegar um er að ræða að draga úr þeirri einokunaraðstöðu, sem Brunabótafélaginu er nú sköpuð með landslögum. Ég fyrir mitt leyti er þess vegna því mjög fylgjandi, að losað sé um þessi bönd.
Það er nú einmitt svo, að á síðari árum hefur tryggingarstarfsemi hér á landi mjög vaxið og færzt alltaf meira og meira fang, sú tryggingarstarfsemi, sem rekin er hér algerlega frjáls og á samkeppnisgrundvelli. Og þó að náttúrlega sé ekki hægt að benda þar á fullkominn samanburð, þar sem allir brunatryggjendur í landinu aðrir en hjá Reykjavíkurbæ eru bundnir á klafa hjá Brunabótafélagi Íslands, þá er ég ekki í neinum vafa um það, að sú frjálsa samkeppni í þessu efni, eins og hún hefur birzt, er fullkominn grundvöllur fyrir því, að ekki sé stritazt við að halda til frambúðar þeirri einokun, sem nú er á um þessa hluti. Það er vitað um Brunabótafélag Íslands, að það hefur alltaf krafizt allmiklu hærri iðgjalda í sambandi við tryggingar sínar heldur en allar líkur eða skynsamlegar líkur ern fyrir að álykta að hefði verið hægt að fá á grundvelli hinnar frjálsu samkeppni í þessu efni. Það er mín skoðun, að á þessu sviði eins og öðrum sé hin frjálsa samkeppni mikilsverð driffjöður og að hún hafi hér sama hlutverki að gegna og á öðrum sviðum þjóðfélagsins. Mér er sagt, að af þeim tryggingarfélögum, sem nú gerðu tilboð í tryggingar Reykjavíkurbæjar, hafi Brunabótafélag Íslands einnig gert þar tilboð, en allmiklu hærra en sum hinna félaganna, sem gerðu boð í þessar tryggingar.
Ég vil í sambandi við þær umr., sem farið hafa hér fram um það, hvort það ætti nú fyrirvaralaust að losa um þessi bönd, taka þetta fram: Það hefur náttúrlega enga þýðingu fyrir árið í ár eða þann hluta ársins, sem tryggingarnar gilda hjá Brunabótafélagi Íslands, sem er þangað til í október, að ég ætla; þá geta náttúrlega breytingar á þessum ákvæðum ekki orkað neinu frjálsræði eða nokkru haggað því efni, fyrr en sá tími er útrunninn. Hér er þess vegna í sambandi við þetta frv., sem hér liggur fyrir, eða þá brtt., réttar sagt, sem borin hefur verið fram í sambandi við frv., að þetta frjálsræði skuli taka gildi í október eða um svipað leyti og Alþ. kemur saman, eingöngu um eins árs frest að ræða. Það er það raunverulega í þessu efni. En hitt er ekki alls kostar rétt, sem hér var haldið fram áðan, að þetta taki til eins og hálfs árs, af því að þetta hálfa ár er þegar bundið í sambandi við ákvæði félagsins um gjalddaga.
Það er eitt í þessu máli, sem ekki hefur verið minnzt á hér og ég vil vekja athygli á og hefur áhrif á afstöðu mína í þessu efni, að því er þetta tímatakmark snertir. Það er það, að þegar athugun verður gerð á þessu máli og tryggingar gefnar frjálsar, eins og nú er um Reykjavík, og menn geta tryggt fasteignir sínar hvar sem þeir vilja og telja sér tryggingarnar hagkvæmastar, þá er það þannig, að Brunabótafélag Íslands á stóra sjóði. Og þegar sú ákvörðun er tekin að gefa tryggingarnar frjálsar einstaklingum þeim, sem bundnir hafa verið við starfsemi félagsins, einskorðaðir við starfsemi félagsins frá upphafi þessara laga, þá lít ég svo á fyrir mitt leyti, að þeir eigi hver og einn hlut í þessum sjóði. Þess vegna er það eitt af þeim atriðum, sem sú nefnd, sem á að endurskoða lögin um Brunabótafélag Íslands, hlýtur að athuga í sambandi við það, að tengslin við það eru rofin, og það er um skiptingu þessara sjóða, því að þeir, sem bundnir hafa verið við félagið öll þessi ár, eiga að sjálfsögðu það fé, sem safnazt hefur þar upp, þegar frá er dregin sú stofnupphæð, sem ríkið lagði til þessa félagsskapar á sinum tíma. Með tilliti til þess, að þetta gæti orðið að einhverju ágreiningsatriði, en allir tryggjendur í Brunahótafélaginu hljóta að standa að því hver með öðrum, að þeir fái sinn hlut eðlilega út úr félaginu, ef þeir slíta sambandi sínu við það, og með tilliti til þess tel ég, að ekki muni veita af þeim tíma, sem hér er um að ræða, og það muni ekki takast á viku eða hálfum mánuði að ganga frá breytingu á þeirri löggjöf, sem felur í sér þetta sanngirnisákvæði, að þeir gangi ekki slyppir og snauðir út úr þessum félagsskap og að aðrir óviðkomandi aðilar haldi þeim gildu sjóðum, sem búið er að safna upp í félaginu í kostnað tryggjendanna, því að það eru vitanlega þeir, sem lagt hafa fram það fé, sem hefur þarna safnazt. Með tilliti til þessa þykist ég þjóna bezt frelsishugsjóninni í þessu efni með því að gefa hæfilegan frest til þess skilnaðar við Brunabótafélagið, sem hér er gert ráð fyrir að mönnum verði opnaður með ákvæðum þessa frv. Ég tel þess vegna rétt og hyggilegast, eins og málum er komið, að samþ. þetta frv. með þeim fresti, sem þar er ákvarðaður, af því að ég álit, að það tryggi bezt hagsmuni þeirra manna, sem mundu kjósa að breyta til og tryggja fasteignir sínar hjá öðrum félögum, tryggi bezt hagsmuni þeirra að því leyti til, að þeir fái út úr þessum sjóði það fé, sem þeir eiga þar og hafa fullkomna sanngirniskröfu til að fá framreitt sér til handa, þegar komið er á frelsi í þessum efnum, sem ég tel, eins og nú er komið tryggingarmálum í landi voru, alveg sjálfsagt að gefið verði.