25.03.1954
Neðri deild: 68. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (2118)
174. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt af iðnn. eftir tilmælum hæstv. iðnmrh. Það er þess efnis, að ágreiningsmál út af starfssviði iðngreinanna innbyrðis, þ. e. a. s., hvað heyri undir handiðnaðinn og hvað undir verksmiðjuiðnaðinn, falli undir dómsvald félagsdóms, en ekki undir þá venjulegu dómstóla. Nokkur slík ágreiningsmál hafa komið upp nú að undanförnu og gengið þá venjulegu leið fyrir hin tvö dómsstig, en það þykir af ýmsum ástæðum hentugra, að þessi mál falli undir félagsdóm. Bæði Félag ísl. iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna eru samþykk þessu frv., og iðnn. hefur orðið við óskum hæstv. ráðh. um að flytja það, en einstakir nm. áskilja sér rétt til að bera fram eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma.