02.03.1954
Neðri deild: 56. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í C-deild Alþingistíðinda. (2162)

111. mál, menntun kennara

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Í lögum um menntun kennara, þeim kaflanum, sem fjallar um húsmæðrakennaraskóla, er svo kveðið á, að húsmæðrakennaraskólinn skuli starfa í Reykjavík eða nágrenni hennar. Með frv. því, sem fyrir liggur á þskj. 208, er stefnt að því að nema þessi ákvæði úr gildi, en leggja það á vald fræðslumálastjórnarinnar að ákveða húsmæðrakennaraskólanum stað. Er að því vikið í grg. frv. af hálfu flutningsmanna, að svo sé háttað um húsnæði húsmæðrakennaraskólans, að hann hafi fengið afnot af húsnæði í háskólabyggingunni, en það sé mjög ótryggt, þó að nú muni að sönnu vera í gildi samningur um það húsnæði til eins árs. Á hinn bóginn er á það bent, að á Akureyri kunni að vera til staðar húsnæði, sem með litlum breytingum gæti hentað vel fyrir þessa stofnun, húsmæðrakennaraskólann.

Menntmn. telur eðlilegt, að það sé lagt á vald fræðslumálastjórnarinnar að ákveða skólanum stað, og mælir því með því, að þetta frv. verði samþ. með lítils háttar breytingum á orðalagi. N. finnst það ekki alls kostar viðfelldið að taka svo til orða, að stofna skuli húsmæðrakennaraskóla, vegna þess að skólinn er þegar stofnaður og hefur þegar starfað nokkur ár. N. virðist því eðlilegra að orða þetta á þá leið, sem lagt er til í brtt. hennar, að húsmæðrakennaraskóli skuli starfa á Íslandi. N. finnst einnig það orka tvímælis samkv. orðalagi 2. gr. frv., hvort heimilt væri að ákveða skólanum stað, ef ekki væri þegar til staðar heimavíst í því húsnæði, sem skólinn fengi. N. finnst því eðlilegra að orða gr. á þann hátt, sem hún leggur til í 2. brtt. á þskj. 407, þannig að í stað orðanna ,skal þar vera heimavist“ komi: skal svo fljótt sem auðið er koma þar upp heimavist.