07.04.1954
Efri deild: 79. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í C-deild Alþingistíðinda. (2180)
111. mál, menntun kennara
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Það er í raun og veru ástæðulaust að vera að endurtaka það, sem sagt hefur verið og er alveg skýrt, og það er, að ég skil samþykkt frv. óbreytts eða með breytingu nefndarinnar sem yfirlýsingu þingsins um, að það vilji, að skólinn verði fluttur til Akureyrar, og þeim þingvilja mun ég hlíta.
Ég hef ekki haft afskipti af þessu máli í Nd., en ég held, að það hafi ekki dulizt fyrir neinum þingmanni, að þetta vakti a. m. k. fyrir aðalflm. frv. Og ég taldi rétt, vegna þess að þetta var ekki berum orðum tekið fram í sjálfu frv. og til þess að girða fyrir allan misskilning, að þetta lægi alveg ljóst fyrir af minni hálfu, hvernig ég skildi málið, svo að það er algerlega út í bláinn að segja, að ég hafi verið hér að fela eitthvað fyrir þm. eða hafi leitazt við að fá frv. samþ. á röngum forsendum. Það er þvert á móti. Ég hef skýrt tekið fram, hvernig ég teldi að ætti að skilja frv., svo að ekki yrði kennt um misskilningi og menn vissu gerla, hvað þeir væru að samþ., og það kemur í ljós, þótt merkilegt sé, að það er sízt að ástæðulausu, þar sem hv. n., sem er búin einhuga að mæla, með frv., eftir yfirlýsingu mína óskar eftir, að málið sé tekið út af dagskrá, til þess að henni gefist færi á að íhuga málið betur. Ég held, að það verði ekki um það deilt, að það hefur verið fullkomin þörf á því að gefa þessa yfirlýsingu. Með því hef ég hins vegar ekkert sagt sjálfur um það, hver mín afstaða er í málinu. Tal hv. þm. Barð. um það og deilur á mig af því tilefni eru þess vegna algerlega út í bláinn. Ég benti á nokkur efnisleg rök, sem eru í málinu, dró ekki af þeim neina ályktun.
Hins vegar verð ég að segja það, að það kemur úr hörðustu átt, þegar hv. þm. Barð. telur það sérstaklega ámælisvert af héruðum, að þau vilji láta nota þau hús, sem þar er búið að koma upp, og vitnaði sérstaklega í það, að næst mundi komið með Staðarfell og heimtað, að ríkið tæki við þeim skóla. Ég veit ekki betur en einmitt hv. þm. sjálfur hafi viljað fá Staðarfell til vissra ríkisafnota og skólanefndin þar og héraðsmenn hafi staðið á móti því, að hv. þm. Barð. gæti fengið skólann til þeirra nota, sem hann ætlaði. Ég segi ekkert um, hvor hafði rétt fyrir sér í þeirri deilu, sem upp kom, en það kom alveg það sama fram hjá hv. þm. Barð. eins og hjá stuðningsmönnum þessa frv., að þeir telja, að það sé skynsamlegra að nota þau hús, sem búið er að koma upp fyrir ærið fé, þjóðfélaginu í heild til góðs heldur en að láta milljónabyggingar standa ónotaðar og byggja svo aftur fyrir nýjar stofnanir byggingar, sem kosta aðrar margar milljónir. Ég held, að við þm. þurfum engrar áætlunar við um það, að ef á að fara að byggja húsmæðrakennaraskóla hér í Reykjavík, þá fer sá kostnaður yfir milljón króna og verður áreiðanlega nær 2 millj. en 1 millj., svo að ég hef sízt ofmælt í því.
Með þessu er ég ekki að segja, hver afstaða mín sé gagnvart þessu frv., en það er það minnsta, að efnislegar ástæður komi fram og ekki sé talað um málið tómri tæpitungu, eins og virtist ætla að vera gert við fyrri hluta umr. hér í kvöld, að menn segðu ekki hreinlega, hvað fyrir þeim vekti, og færu ekki inn á efnisumr. um málið. Hitt er svo allt annað mál, hvaða niðurstöður menn taka, og ég játa, að um leið og það eru sterk rök fyrir því að samþ. frv., eins og nefndin leggur til, þá eru önnur rök, sem hníga að því, að skólinn eigi að vera kyrr hér í Reykjavík. Það eru önnur rök, sem má líka svara, alveg eins og hv. 1. þm. Eyf. gerir, að það er mikill vafi á því, hvort þjóðfélaginu er það til góðs, — og það segi ég, þótt ég sé þm. Reykv., — að það er mikill vafi á því, að þjóðfélaginu sé það til góðs og hvort Reykjavík sé það til góðs, að öllum opinberum stofnunum sé hrúgað hér í Reykjavík. Það er líka sjónarmið fyrir sig.
Út af því, að hv. þm. taldi, að ég hefði ofmælt um það, að ekki væri hallað á kennara og skólastjóra þessa skóla, þó að skólinn væri fluttur, þá þori ég að fullyrða, að með hliðsjón af því ákvæði stjórnarskrárinnar, að embættismenn verða að taka því bótalaust, ef þeir eru fluttir á milli embætta, ef þeir missa einskis í í launum, þá hlýtur því frekar að vera fært og leyfilegt að flytja til embætti þeirra, ef þeir halda sömu launum og áður.