30.11.1953
Efri deild: 26. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í C-deild Alþingistíðinda. (2228)

57. mál, almannatryggingar

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Eins og hv. flm. taka fram í grg. fyrir þessu frv., sem hér er til umr., er mál þetta tvíþætt að efni til. Annar þátturinn er tryggingamál, þ. e. sá hluti frv., sem snertir heilsugæzluna í landinu. Hinn þátturinn er skattamál, þ. e. sá, sem snertir iðgjaldagreiðslurnar. Þykir rétt að ræða hér nokkuð báða þessa mjög svo ólíku þætti frv.

Samkv. III. kafla almannatryggingalaganna ber Tryggingastofnuninni að vinna að því í samráði við heilbrigðisstjórnina, að látin verði í té skipulögð heilsugæzla, er nái sem bezt til allra landsmanna. Heilsugæzluna skulu annast heilsuverndarstöðvar og lækningastöðvar, er skulu vera í öllum kauptúnum og víðar, þar sem heilbrigðisstjórn og tryggingaráð ákveða, og skulu þær vera settar á stofn og reknar af viðkomandi sveitarfélögum. Viðurkennd sjúkrahús skulu og annast heilsugæzluna. Tryggingastofnuninni er einnig heimilt að setja á stofn og reka stofnanir, sem annast sérstaka þætti heilsugæzlunnar, svo sem vinnulækningar o. fl. Skilgreint er í l., hvaða verkefni hver af þessum stofnunum skuli sinna og á hvern hátt. Skulu þær allar hafa lækna, skipaða af ráðherra, en þeim skulu greidd föst laun samkv. launalögum. Er miðað við, að 1500 íbúar komi að meðaltali á hvern skipaðan almennan lækni. Skal Tryggingastofnunin greiða allan kostnað við dvöl sjúklinga á stöðvunum, læknishjálp og lyf samkv. samningi við sjúkrahúsin og þær stofnanir, sem annast heilsugæzluna, eða samkv. úrskurði, ef eigi takast samningar um þau efni. Einnig er Tryggingastofnuninni heimilt að láta í té hjúkrun í heimahúsum og heimilisaðstoð og taka þátt í sjúkrakostnaði erlendis, og að lokum skal Tryggingastofnunin koma upp sérstökum sjóðum, er standa undir útgjöldum við læknisvitjanir og sjúkraflutning.

Upphaflega var til ætlazt, að þessi kafli tryggingalaganna kæmi til framkvæmda 1. jan. 1948, en með sérstökum lögum er framkvæmdinni frestað til 1. jan. 1955. Samkvæmt 1. gr. frv. þess, sem hér er til umr., skal þessi kafli l. koma til framkvæmda 1. jan. 1954, eða eftir mánaðartíma. Þykir því rétt að athuga þær orsakir, sem því hafa valdið, að framkvæmd þessa kafla hefur orðið að fresta um 7 ár frá því, sem ákveðið var upphaflega. Nokkuð mun hafa valdið um frestun á þessum framkvæmdum, að talið hefur verið, að það mundi baka ríkissjóði viðbótarútgjöld um allt að 3 millj. kr. að láta ákvæði l. koma til framkvæmda. Hitt mun þó hafa ráðið meiru og verið jafnvel höfuðorsökin fyrir frestuninni, að enn hafa engir samningar tekizt við læknastéttina um launakjör fyrir þá þjónustu, er þeim er ætluð í sambandi við heilsugæzluna í landinu. Það munu nú vera allmargir læknar í landinu, sem greiða skatta og önnur opinber gjöld, sem nema fast að þeirri upphæð, er fastlaunuðum læknum er greidd samkvæmt launalögum. Má geta nærri, hversu létt það er að komast að samningum við þá aðila um að veita fulla læknisþjónustu fyrir það gjald eitt, er þeir nú greiða í skatta. Þá mun einnig hafa ráðið nokkuð hér um, að menn vildu almennt fá frekari reynslu af starfsemi sjúkrasamlaganna, sem nú annast heilsugæzluna að verulegu leyti um land allt, áður en til framkvæmda á III. kafla laganna kæmi, en reynsla sú, sem þar er fengin, hefur ótvírætt sýnt, að þessi kafli l. þarf víðtækari endurskoðunar við, áður en hann væri látinn koma til framkvæmda. Má þar m. a. nefna kostnaðinn við lyfjanotkunina, sem að margra áliti er þannig, að brýna nauðsyn beri til að koma þar á einhverju öðru fyrirkomulagi, ef ekki á að gera hvort tveggja í senn, að íþyngja sí og æ þeim, sem greiða eiga, og eiga það jafnframt á hættu, að sjúklingarnir verði að meira eða minna leyti of háðir lyfjanotkuninni, þeim sjálfum til einskis gagns. Þá má einnig benda á, að síðan sjúkrasamlögin tóku við heilsugæzlunni, má segja, að miklu erfiðara sé að ná í læknishjálp hér í fjölmenninu, þar sem þó allt úir og grúir af læknum, og það þó að lífið liggi við, en þar sem fólk verður að sækja lækni um tugi kílómetra vegleysur í hinum strjálbyggðu héruðum landsins. Er hér um svo alvarlegt mál að ræða, að full þörf er á því, að gerðar séu nú þegar ráðstafanir, sem duga til að bæta úr þessu ófremdarástandi í heilsugæzlumálunum.

Fyrir þessari öfugu þróun í heilbrigðismálunum geta ekki verið nema tvær meginástæður. Önnur, að fólkið sjálft misnoti svo læknisþjónustuna, vegna þess að hún kostar það sömu upphæðir, hvort sem það notar hana mikið eða lítið eða jafnvel ekkert, að læknarnir verði beinlínis leiðir á því að sinna kvabbi þess, hvað lítið sem að er, taki köll þess líkt og stráksins í ævintýrinu, sem kallaði úlfur, úlfur, til þess að gabba fólkið, er sinnti svo ekki kallinu í það eina skipti, sem úlfurinn kom og reif hann á hol. Ef svo er, þá er hér stefnt í meiri voða en menn gera sér almennt ljóst. Og víst er um það, að ekki mundi þessi þáttur batna við framkvæmd III. kafla l. að honum óbreyttum. — Hin, að læknarnir letjist við að sinna störfunum, þegar vitað er, að launin eru jafntrygg, hvort sem kallinu er sinnt eða ekki, og áreiðanlega mundi þetta ekki breytast til batnaðar við að láta III. kafla koma til framkvæmda óbreyttan. Líklegast er, að báðar þessar ástæður eigi nokkurn þátt í því ástandi, sem hér hefur skapazt í þessum málum og er bókstaflega að verða óþolandi. Er alveg óhjákvæmilegt að gera víðtækar breytingar á þessum kafla l., áður en hann kemur til framkvæmda, og verður að krefjast þess, að þeir aðilar, sem fá lögin í heild til endurskoðunar á næsta ári, kynni sér öll þessi atriði gaumgæfilega og geri till. til breytinga á þeim, byggðum á reynslu undanfarinna ára. M. a. af þessum ástæðum er óverjandi að samþykkja nú, að kaflinn skuli koma til framkvæmda innan mánaðartíma. Eru rök þessi öll svo ljós, að óþarfi er að ræða þá hlið málsins frekar.

Skal þá nokkuð ræddur hinn þáttur frv., þ. e. iðgjaldagreiðslurnar. Kjarni almannatryggingalaganna er, hefur verið og á að vera sá að byggja upp örugga tryggingastarfsemi fyrir fólkið í landinu, þar sem einstaklingurinn tryggir sig og sína fyrir hinum ýmsu áföllum í lífinu, svo sem sjúkdómum, slysum, dauða, örorku og elli. Eitt meginskilyrðið fyrir því, að slíkt megi haldast, er, að einstaklingurinn greiði sjálfur iðgjöld til trygginganna og eigi þá jafnframt kröfu á bótum eftir ákveðnum reglum, ekki sem fátækrahjálp eða sem ölmusu, heldur sem endurgreiðslu fyrir það, sem hann hefur greitt, oft árum saman. Hitt hefur aldrei verið tilætlunin, að Tryggingastofnunin yrði framfærslustofnun fyrir þá, sem vegna fátæktar yrðu að leita á náðir þess opinbera til þess að geta dregið fram lífið. Vegna fjárskorts hjá stofnuninni varð óhjákvæmilegt að fara fyrst í stað bil beggja, láta þá, sem fátækir voru, sjúkir eða ellihrumir, fá bætur, sem léttu undir með þeim í lífsbaráttunni, þótt þeir hefðu ekki greitt inn nægilegan stofn til þess að standa undir þeim gjöldum. Af þessum sökum var sett skerðingarákvæði í sambandi við ellilaunin, þar eð ellilaunasjóðurinn var ekki nægilegur til að mæta bótagreiðslunum og árlega iðgjaldið ekki sett nægilega hátt til þess að bera uppi útgjöldin. Sama gildir og um allar aðrar bætur trygginganna, sem takmarkast af tekjum manna og eignum. Hins vegar eru aðrar tegundir trygginganna reknar að fullu sem tryggingastarfsemi, svo sem slysatryggingar, barnatryggingar o. fl., eða allar þær, sem bæta án skerðingar, hvort heldur aðill er efnaður eða ekki. En til þess að þetta mætti ske, varð að láta ríkissjóðinn taka á sig af þeirri upphæð 1/3 hluta af nauðsynlegu árlegu framlagi til trygginganna, sveitarsjóði 1,6, atvinnurekendur 1,6 og iðgjaldagreiðendur 1/3. Er þetta sú skipting, sem haldizt hefur í meginatriðum frá byrjun. Segja má, og það með réttu, að allt þetta framlag sé tekið úr vösum fólksins eftir mismunandi leiðum, hvort sem allir aðilar eru á þann hátt þátttakendur, að þeir greiða jafnt einhvern hluta iðgjaldanna, eða einstakir aðilar greiða margfaldan skerf, en aðrir alls engan eins og raun yrði á, ef samþykkja ætti það frv., sem hér liggur fyrir. Á þann hátt yrði fjöldi hinna tryggðu þátttakendur með réttindum einum, en engum skyldum, en aðrir með fullum skyldum, en miklu minni réttindum en þeir, sem engar skyldur hafa. Stofnunin yrði þá ekki lengur á grundvelli tryggingastarfseminnar, heldur yrði hún færð að fullu og öllu inn á svið framfærslunnar. Það skal ekki hér lagður á það neinn dómur, hvort slíkt væri yfirleitt æskilegt, en aðeins bent á, að þegar svo stendur á eins og hér, að heildarendurskoðun verður að fara fram á löggjöfinni innan mjög skamms tíma og henni verður ekki skotið á frest af öðrum ástæðum, þá er harla vítavert að gera svo þýðingarmiklar breytingar á meginatriðum laganna, án þess að þeim mönnum, sem valdir yrðu til að endurskoða lögin, gæfist tækifæri til þess að athuga gaumgæfilega áhrif slíkra breytinga og gera till. um það til Alþ. Einnig af þessum ástæðum á ekki að samþ. frv. á þessu þingi.

Í 11. gr. tryggingalaga er svo fyrir mælt, að skipa skuli 5 manna trygginganefnd í hverju tryggingaumdæmi og hlutverk hennar sé að fylgjast með rekstri trygginganna í umdæminu, gera till. um framkvæmd þeirra, gæta hagsmuna hinna tryggðu og benda á atriði, er mættu verða til sparnaðar fyrir tryggingarnar. Ég hygg, að lítið hafi borið á starfi þessara n. og að áhrif frá þeim hafi orðið minni en til var ætlazt af löggjafanum. Væri það engan veginn einskis vert, að stofnunin hefði aðhald frá slíkum aðila og frá nefndunum kæmu gagnlegar ábendingar í sambandi við reksturinn, en varla mundi það auka áhuga manna fyrir slíkri þátttöku, eftir að aðilar væru leystir undan allri skyldu við stofnunina og engin tengsl lengur á milli hennar og þeirra, önnur en kröfuréttur hinna tryggðu.

Í grg. fyrir frv. segja flm., að ríkissjóður sæki nú í vasa hverrar 5 manna fjölskyldu að meðaltali 15 þús. kr. á ári, auk tæplega 1400 kr. þegar með eru talin iðgjöld til trygginganna og sjúkrasamlaga, og undan þeirri innheimtu verði ekki komizt, því að hún sé fólgin í fötum og fæði fjölskyldunnar. Hér eru bornar fram fullyrðingar, sem enga stoð eiga í raunveruleikanum og í engu er sæmandi ábyrgum þingfulltrúum að láta frá sér fara á þskj., hvað þá heldur að hafa margendurtekið það hér á Alþ., og þykir því bæði rétt og skylt að mótmæla slíkum fullyrðingum. Hv. flm. vita mjög vel, að allmikill hluti þessarar upphæðar er greiddur af ópersónulegum aðilum, svo sem félögum og margs konar fyrirtækjum, sem engin áhrif hafa á fata- eða fæðiskaup fjölskyldna, og að annar engu minni hluti er greiddur í sambandi við kaup á vörum, sem ekkert snerta fæði eða föt og hafa sáralítil eða engin áhrif á afkomu heimilanna, og enn er allmikill hluti upphæðarinnar beinlínis lagður á vörur, sem engum er hollt að kaupa og eru gersamlega óþarfar og neytendur því alveg sjálfráðir um, hvort þeir vilja greiða slíka skatta eða ekki. Þá er allmiklum hluta af þessum upphæðum skipt niður með stighækkandi tölum eftir efnum og ástæðum. Það er því síður en svo, að hver 5 manna fjölskylda í landinu greiði að meðaltali nokkuð nálægt þeirri upphæð, sem greind er í frv., enda er þetta borið fram í hreinu blekkingarskyni fyrir auðtrúa sálir að meðtaka gagnrýnislaust.

Nú hefur n. kynnt sér, að verði frv. samþ. óbreytt, er hér um rúmlega 60 millj. kr. lágmarksupphæð að ræða, sem bæta yrði á gjaldaliði fjárlagafrv. fyrir árið 1954, sem verið er að ganga frá hér á Alþ. þessa dagana, eða rúmlega sú upphæð, sem gert er ráð fyrir, að allur tekju- og eignarskatturinn nemi á næsta ári. Með sömu reikningsaðferð og hv. flm. hafa notað, er þeir jafna niður tolla- og skattabyrðinni á þjóðina, yrði þetta 2100 kr. á hverja 5 manna fjölskyldu í landinu, með hvaða hætti sem það væri greitt. Ég geri ekki ráð fyrir því, að hv. flm. ætlist til þess í alvöru, að fjárl. verði afgreidd með slíkum halla, enda yrði það skammgóður vermir. Ég geri ekki heldur ráð fyrir því, að þeir vilji láta hækka söluskattinn eða tollana á vörunum sem þessari upphæð nemur, því að hingað til hefur krafa þeirra verið að afnema þetta hvort tveggja gersamlega, án þess að benda á nokkuð raunhæft, er koma ætti í staðinn. Ég geri ekki heldur ráð fyrir, að þeir mundu fella niður gjaldaliði frv. sem þessari upphæð nemur. A. m. k. væri þá hér um nýja fjármálastefnu að ræða hjá flokki þeirra, því að við hverja fjárlagaafgreiðslu fyrri ára hafa till. þeirra til aukinna útgjalda numið tugum milljóna króna. Þá er ekki annað eftir en að finna upp einhvern nýjan skatt, sem engir þeir, er nú greiða iðgjöld til trygginganna, skyldu greiða, en þeir aðilar eru börn og unglingar innan 16 ára aldurs og gamalmenni yfir 67 ára aldur, auk þeirra ópersónulegu aðila, sem greiða skatt í ríkissjóð. En tekjuskattur, viðaukaskattur og stríðsgróðaskattur þeirra aðila var á lagður á þessu ári alls 12930500 kr. og eignarskattur sömu aðila 14694 kr., eða skattur alls samanlagður á ópersónulega aðila 14,4 millj. kr. Þyrfti þá sem næst að sexfalda álögur á þessa aðila til að ná þeirri upphæð aukalega frá þessum stofni, ef mæta ætti þann veg útgjöldunum. Þarf ekki að fara í grafgötur um það, hve lengi unnt væri að ausa úr þeim brunni, og mundi margan fátæklinginn þyrsta á eftir, ef sú lind yrði þurrausin. Ber hér allt að sama brunni, að málið hefur ekki fengið þann undirbúning eða athugun, sem nauðsynlegt má teljast til þess að fá afgreiðslu á þessu þingi.

Þá er vísað til þess í grg., að hér sé um skattamál að ræða og að þar sem núverandi hæstv. ríkisstj. hafi lofað því, að tekjuskatturinn skuli lækkaður, þá gefist hér alveg einstætt tækifæri til að afnema persónugjöldin, þar sem einmitt sú skattalækkun kæmi að mestum notum fyrir allan almenning. Hér fara hv. flm. mjög villir vegar. Lækkun tekjuskattsins er síður en svo hugsuð sem tekjurýrnun fyrir ríkissjóðinn, hvort sem hún verður mikil eða lítil. Hún er fyrst og fremst hugsuð til þess að örva menn til að skapa meira verðmæti og meiri sparnað, svo að ríkissjóður á þann hátt vinni upp frá nýjum og auknum tekjum þegnanna það, sem gefið er eftir af skattstiganum. Það er öllum almenningi ljóst, að þúsundir manna á þessu landi skerða afköst sín, þegar þeir hafa náð vissu tekjuhámarki, vegna þess, hve stór hluti teknanna er tekinn í opinber gjöld, þegar komið er yfir visst tekjumark. Þessir sömu menn mundu ekki gera þetta, ef þeir byggju við mildari og réttlátari skattalöggjöf. Því mildari sem lögin væru, því meiri orku létu þessir menn í té til öflunar nýrra verðmæta, sem aldrei verða framkölluð með slíkum skattalögum sem vér nú búum við. En hin nýju auknu verðmæti gætu gefið og mundu gefa ríkissjóði meiri tekjuupphæð en það, sem tapaðist við að létta skattana að viturlegu marki. Það er jafnljóst, að skattalögin, eins og þau eru nú, hafa á engan hátt örvað til sparsemi, nema síður sé, en sparsemi er hverri þjóð nauðsynleg og ekki sízt þeirri, sem fátæk er og fámenn. Með vaxandi sparifé mundi vera unnt að leysa mörg verkefni af hendi, er nú biða úrlausnar beinlínis vegna fjárskorts. Að þeim leiðum rynnu einnig nýjar tekjur til ríkisins.

Það er mín bjargföst skoðun, og hún hefur styrkzt því meir sem ég hef brotið heilann um það mál, að ef vér bærum gæfu til þess að sameinast um að afnema tekjuskattslögin að fullu og öllu, þá mundi hlaupa slíkur vöxtur í allar framkvæmdir í landinu, að tolltekjur, söluskattur, stimpilgjöld, þinglesningargjöld, útflutningsgjöld og ýmis önnur gjöld, er vér nú greiðum af viðskiptum, mundu af aukningunni einni nema miklu meiri upphæð en því, sem tekjuskatturinn nemur á hverjum tíma, og það án þess að hækka þessi gjöld nokkuð frá því, sem nú er, en auk þess mætti þá og spara milljónir í kostnaði við að halda þessu úrelta og óþolandi kerfi áfram. Hér mundi leysast úr dróma sú óhemjuorka, sem rígbundin er í fjötra óviturra og óþarfra skattalaga. Sú leið, sem hv. flm. benda á í grg. til skattalækkunar, er því ekki sú leið, sem orkar að leysa þennan vanda.

Þá þykir mér einnig rétt að benda á, að nóg mun að gert að blanda tryggingamálum í lausn annarra vandamála, hvort heldur um er að ræða skattamál, verkfallaþrætumál eða önnur deilumál, sem upp kunna að koma á hverjum tíma. Ef tryggja á fólkinu bætur, sem það hefur kröfu á og hefur greitt fyrir samkv. fyrirmælum l., er hollast að blanda tryggingamálunum á engan hátt í deilur um önnur óskyld atriði. Það getur aldrei orðið nema einn endir á því, og hann er sá, að stofnuninni er þá voðinn vís, fyrr eða síðar, og heldur fyrr en síðar. Og hvar stendur fólkið þá með loforð og vonir? Þegar lögin um almennar tryggingar voru í deiglunni hér í þessari hv. d. á árunum 1945–46, benti ég réttilega á, að til þess að tryggja fólkinu bætur hvernig sem áraði, og án þeirrar tryggingar og þess öryggis er tryggingastofnun lítils virði, — þyrfti að skapa stofnuninni sterka og örugga tekjustofna, sem ekki brygðust, þó að illa áraði bæði hjá ríkissjóði og fólkinu, og þetta yrði ekki gert nema þeir tekjustofnar væru óháðir árferði og afkomu ríkissjóðs á hverjum tíma. Þessu var ekki sinnt þá. Ég er þeirrar skoðunar enn, að brýna nauðsyn beri til þess að fara þessa leið, svo að fólkið verði ekki svikið um bæturnar. Ég hef hvað eftir annað borið fram hér í þessari hv. d. frv. um það, að erfðafé væri látið renna til stofnunarinnar sem fastur og öruggur tekjustofn. Þetta hefur ekki náð fylgi nema að litlu leyti, eða að því leyti, að erfðafjárskatturinn rennur nú allur og óskiptur til þess að standa undir ákveðnum verkefnum stofnunarinnar. Er það vísir í rétta átt. En ég tel, að þeir menn, sem taka að sér endurskoðun laganna, komist ekki hjá því að brjóta til mergjar alla möguleika til tryggingar þessu takmarki, er ég hef barizt fyrir frá upphafi að náð yrði. Sú leið, sem hv. flm. frv. benda á, fer í öfuga átt.

Með tilvísun til þess, sem ég hef hér sagt, og til þess, sem fram kemur í nál. á þskj. 215, leggur n. til einróma, að frv. verði afgr. með þeirri rökst. dagskrá, sem birt er í þskj., og væntir þess, að hv. d. samþykki hana.