30.11.1953
Neðri deild: 31. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í C-deild Alþingistíðinda. (2286)

2. mál, firma og prókúruumboð

Frsm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað þetta frv. um firmu, skráningu þeirra og um prókúruumboð og hefur eina meginbreytingu á því að gera. N. er sammála um að gera þessa breytingu, en hún er ekki sammála um, hvernig því skuli fyrir komið, sem breyta á. Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir, að stofnað sé sérstakt embætti, embætti skráningarstjóra, er skuli hafa þessi mál með höndum. N. telur ekki þörf á því, að stofnað sé sérstakt embætti í þessu skyni, og vill þess vegna gena breytingu á þessu atriði frv. Meiri hl. n. hefur lagt fram brtt. um þetta á þskj. 205 og leggur til, að þessi skráning fari fram í dómsmrn., en hún sé falin sérstökum fulltrúa í ráðuneytinu, er nefnist skráningarstjóri. Minni hl. n. vill hins vegar, að skráningin sé falin þeim embættismönnum, sem nú fara með þessi mál, þ. e. lögreglustjórum og bæjarfógetum, og skulu þeir hver í sínu umdæmi sjá um skráninguna. Meiri hl. n. taldi þó tilgang frv. svo mikilsverðan, að öll skráningin fari fram á einum stað, að ekki kæmi til mála að breyta þar um.

Ég held, að menn séu yfirleitt sammála um, að það sé nauðsynlegt að hafa mjög nákvæmt eftirlit með skráningu þeirra félaga, sem í frv. greinir. Án þess að bera nokkrar sakir á þá embættismenn, sem með þessi mál fara nú, er það álit manna, að betur fari á því, að þetta sé á einum stað, einn embættismaður hafi með höndum athugun og eftirlit með þessum málum, því að mjög er undir því komið, að félögin séu rekin á þeim grundvelli, sem frv. gerir ráð fyrir, og sinni þeim skyldum, sem á þau eru lagðar.

Nefndin er sammála um aðrar breytingar, enda eru þær flestar smávægilegar. Ég tel ekki ástæðu til að fara nánar út í þær. Þær skýra sig sjálfar. Ég vil þó taka fram um breyt. við 49. gr., að n. þótti eðlilegt, að gefin væri út skrá árlega um hin skráðu félög, þar sem greint væri stofnar hvers fyrirtækis, upphæð hlutafjár og nöfn stjórnenda, og að þessi skrá væri afhent þeim aðilum, sem skráðir eru, um leið og þeir greiða það árlega gjald, sem gert er ráð fyrir í frv.