30.11.1953
Neðri deild: 31. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í C-deild Alþingistíðinda. (2290)
2. mál, firma og prókúruumboð
Frsm. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég er ekki alveg sammála hv. 1. þm. Árn. í þessu máli, eins og líka kemur fram af nál., sem lagt hefur verið fram. Hann telur, að það sé ekki nauðsynlegt, að skráning allra félaga í landinu sé dregin saman á einn stað, heldur sé skráningin höfð í hverju umdæmi, eins og nú er. Eins og ég gat um í minni fyrri ræðu, þá er það meginstefna frv. að draga þessa skráningu saman í einn stað, til þess að hægt sé að beita meiri aðgæzlu um rekstur félaga en verið hefur með þeirri skipun, sem nú er á þessum málum. Ég vil benda hv. þingmönnum á, að frv. um hlutafélög, sem nú liggur fyrir þinginu, er miklu margþættara en þau lög, sem nú gilda, og ekki er nokkur vafi á því, að mjög mikla aðgæzlu þarf og þekkingu á sjálfu frv. til þess að vera vel að sér í öllum greinum þess. Það, sem hefur vakað fyrir þeim, sem frv. sömdu, er vafalaust það, að einn maður geti sett sig svo vel inn í þetta mál, að hann hafi í fullu tré við það, en ekki ráðlegt, að framkvæmd þess sé lögð undir fjölda embættismanna úti um allt land. Ég vil benda á, að stofnun hlutafélags er mjög vandasöm og það er mjög vandasamt að ákveða um, að hlutafélag sé rétt stofnað samkv. lögum. En að líta eftir þessu er að sjálfsögðu skylda þeirra manna eða þess manns, sem um skráninguna á að sjá. Í lögum er ákveðið visst eftirlit með rekstri félaga. Ég tel, að það eftirlit verði miklu betur rækt, ef sérstakur maður í dómsmrn. hefur þessi mál með höndum, heldur en ef það er sett undir fjölda embættismanna úti um land. Nú þarf líka að fylgjast með, að arðsráðstöfun hlutafélaganna sé ráðstafað samkvæmt því, sem væntanleg lög mæla, og í öðru lagi þarf að fylgjast með reikningsskilum félaganna.
Ef það hefur vakað fyrir hv. minni hl. að spara útgjöld við að hafa skráninguna hjá sýslumönnum og bæjarfógetum, þá er ekki mikill sparnaður, sem þar kemur fram, því að embættismaður í dómsmrn., sem hefði þessi mál með höndum, mundi starfa að öðrum málum líka, auk þess sem hann starfar að þessum málum í rn., svo að kostnaðurinn við þetta út af fyrir sig yrði ekki ægilegur. Auk þess gerir frv. ráð fyrir því, að hvert félag, sem skráð er, borgi árlega gjald til ríkissjóðs, sem að sjálfsögðu er ætlað að standa undir kostnaðinum.
Ég álít og við í meiri hl. n., að eftirlitið með félögunum yrði stórbætt með því að hafa þetta á einum stað, þar sem það er aðgengilegt fyrir alla. Nú er ákaflega erfitt að leita upplýsinga um félög með því að þurfa að fara í allar sýslur og kaupstaði landsins til þess að fá slíkar upplýsingar. Ef sú skipun kæmist á, sem meiri hl. leggur til, þá eiga menn aðgang að einni stofnun hér í Rvík eða einu embætti, þar sem allar slíkar upplýsingar liggja fyrir. Ég tel þetta út af fyrir sig mikils varðandi, en þó tel ég mestu varða hið bætta eftirlit með félögunum, sem á þann hátt yrði. Og ég vænti þess, að hv. d. fallist á þessa till. okkar og samþykki hana.