30.11.1953
Neðri deild: 31. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í C-deild Alþingistíðinda. (2292)

2. mál, firma og prókúruumboð

Frsm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Mér er nú ekki grunlaust, að hið mikla kapp, sem hv. 1. þm. Árn. leggur á þetta mál, byggist á því, að honum finnist gengið á rétt dreifbýlisins í þessu máli og að honum finnist, að verið sé að draga öll bönd til Reykjavíkur frá landsbyggðinni. En ég get fullvissað hann um, að það vakir ekki fyrir meiri hl. n. að setja dreifbýlið nokkuð niður í þessu efni, heldur eingöngu hitt, sem ég tók fram, að meiri hl. n. telur, að það sé miklu betur og öruggar um hnútana búið með þessu móti heldur en á þann hátt, sem nú er og hv. þm. vill vera láta. Ef hins vegar hv. þm. þætti nokkru varða, að þessi mál færu í gegnum hendur sýslumanna og bæjarfógeta, þá skal ég fyrir mitt leyti með mestu ánægju fallast á, að ákveðið sé, að þeir taki við þessum plöggum, athugi þau og líti eftir, að þau séu rétt úr garði gerð, en svo sendi þeir plöggin til skráningarstjórans í Rvík, sem um leið verður eini skráningarstjórinn á landinu, þar sem allir þræðirnir koma saman. Ég geri ráð fyrir því, að þetta sé nokkuð líkt og tiðkast annars staðar, að skráning á félögum í landinu sé höfð á einum stað. þótt skráningin að vissu leyti fari fram úti í héruðunum. Ef sjónarmiði hv. þm. væri fullnægt með þessu, að plöggin væru látin til umræddra embættismanna og þeir svo afgreiddu þau frá sér til hins sameiginlega skráningarstaðar í Rvík, þá mun ég fyrir mitt leyti fylgja því, að sú breyting sé gerð. En ég legg mikla áherzlu á það, að hafður sé einn skráningarstjóri í landinu, sem hefur sérstakt eftirlit með því, að form og rekstur félaga sé eins og lög mæla.