26.11.1953
Neðri deild: 29. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2349)

91. mál, kristfjárjarðir

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Hv. þm. Borgf. gerði fsp. til n. eða mín sem frsm. um það, hvern skilning n. hefði á því, hvar skyldi ávaxta það fé, sem komið hefði inn fyrir þær jarðir, sem seldar hafa verið á undanförnum árum og falla undir kristfjárjarðir eða jarðir í fátækraeign. Þar til er því að svara, að n. hefur ekki rætt það atriði. Hún hefur ekki tekið neina ákvörðun um það, því að hennar viðfangsefni beindist eingöngu að því að gera ráðstafanir fyrir því, sem hér eftir kæmi. En það skal fúslega játað, að þetta er fullkomið athugunarefni. Ég tel, að það væri rétt, að n. tæki einnig þetta til athugunar í sambandi við meðferð málsins eftirleiðis.

Þar sem liggja fyrir gjafabréf eða reglugerðir, mun svo mælt fyrir, að ákveðnir aðilar hafi umsjón með þessum jarðeignum og þá líka með því, sem inn kemur, og úthlutun þess. En n. var sammála ríkisstj. eða landbrh. um, að það væri eðlilegast þrátt fyrir ákvæði gjafabréfa, að slík sjóðeign væri í vörzlu félmrn., en aftur færu þeir aðilar með úthlutun þessa fjár, sem gjafabréf eða skipulagsskrá mælir fyrir um.

Þá þótti hv. þm. Borgf. n. torvelda sölu á þeim jörðum, sem hér um ræðir. Því skal ekki neitað, að það er gert. Og það er gert með ráðnum hug. N. lítur svo á, að þetta sé allt mjög vafasamt og eiginlega nokkur vafi á, hvort ríkið eða Alþingi hafi rétt til að blanda sér í og taka ákvarðanir um svona löguð málefni. Þess vegna hefur n. valið þann kost, að því aðeins komi sala til framkvæmda, að svo sé komið, að öllum sé augljóst, að vegna þess, hve litlar tekjur þessi eign gefur af sér, sé höfuðtilgangur gefandans með ráðstöfun teknanna að litlu eða engu orðinn, eins og segir í brtt. Þegar svo stendur á, þá telur n. eðlilegt, að leitað sé annarra úrræða, því að vitanlega mundi gefandinn, ef hann stæði ofan moldar, kjósa, að það væru gerðar þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar væru, til þess að þessi gjöf kæmi einhverjum að notum, en yrði ekki með öllu gagnslaus. Það liggur í hlutarins eðli. Á hitt er svo aftur að líta, að við lítum svo á, að það sé engin ástæða til að selja jarðeign, sem gefur það af sér, sem ætla má að sé nokkuð eðlilegt. Og það er líka í alla staði í samræmi við það, sem var tilgangur gefandans. Við teljum ekki rétt að ganga í berhögg við vilja eða óskir gefandans og selja þessar jarðir, hvernig sem á stendur.

Þá benti ræðumaður á það, að hér væri vikið að því í till. n., að n. ætlaðist til, að það væri borgað í fríðu. Þetta er nú ekki alveg rétt skilið, því að þar segir aðeins, að það skuli leigja jarðirnar með hliðsjón af gömlu lagi, þ. e. með hliðsjón af því, sem tíðkaðist, þegar borgað var í fríðu, til þess að tekjur af jörðinni rýrni ekki. Það er ekki hugsun n., að það sé farið að taka upp sauðagjald eða smjörleigur, heldur aðeins að það sé haft til viðmiðunar og þá með hliðsjón af gildandi verðlagsskrá á hverjum tíma, eins og nú er gert, þar sem svo er ákveðið, að borgað er í fríðu eða miðað við verðlagsskrárverð.

Ég verð líka að leiðrétta það, að ræðumaður talaði hér um sjö jarðir. Ég sé, að hann hefur ekki flett við blaðinu, því að hérna framan á blaðinu eru sjö jarðir, en hinum megin eru þær miklu fleiri. (PO: Þær eru fjórum sinnum sjö.) Þær eru víst 32, svo að þær eru rúmlega það.

Ég held, að ég hafi svo ekki öðru við þetta að bæta, en ég get tekið það fram, að ég tel víst, að n. sé fús til að taka til athugunar það atriði, sem þm. Borgf. vék að sérstaklega, hvernig skyldi eftirleiðis fara með það fé, sem er í vörzlu umsjónarmanna og hefur komið inn fyrir jarðir, sem hafa verið seldar nú á allra síðustu árum.