24.11.1953
Neðri deild: 28. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í B-deild Alþingistíðinda. (236)
15. mál, sjúkrahús o. fl.
Frsm. (Jónas Rafnar):
Herra forseti. Heilbr: og félmn. hefur þegar athugað þetta frv. og leggur til, að það verði samþ. ásamt brtt. á þskj. 36 frá hv. þm. V-Húnv. (SkG). Einnig leggur nefndin til, að frv. verði samþykkt með annarri brtt., sem ég leyfi mér hér með að leggja fram skriflega, en þar sem nefndin tók ekki fyrr en í morgun ákvörðun um þessa brtt., þá vannst ekki tími til þess að skila henni prentaðri hér á þessum þingfundi. Ég vil leyfa mér að lesa þessa brtt.
„Fyrir orðin „1. gr. laga nr. 33 12. febr. 1945“ í 2. málsgr. 2. gr. frv. kemur: 1. og 2. efnismálsgr. 1. gr. laga nr. 33 12. febr. 1945.“
Það er ekki ástæða til þess að skýra þessa till. sérstaklega, leiðir eiginlega af sjálfu sér, og sé ég því ekki ástæðu til þess að eyða orðum að henni.
Hæstv. heilbrmrh. gerði grein fyrir þessu máli mjög ýtarlega við 1. umr. Hann skýrði frá því, að þetta frv. væri stjfrv., það hefði verið undirbúið af fyrrv. hæstv. ríkisstj. og samið af landlækni. Frv. þetta miðar að því að auðvelda mjög rekstur sjúkrahúsanna í landinu, en eins og kunnugt er, þá hafa þau átt við mjög mikla fjárhagslega erfiðleika að stríða.
Þetta frv. er í sjálfu sér svo ákaflega skýrt, að það er ekki ástæða fyrir mig sem frsm. n. að eyða tíma þingsins í að skýra það nánar, en ég vil þó gjarnan láta það koma fram, að það er gert ráð fyrir því, að styrkhæfir legudagar verði á næstu árum, þegar öll nýju sjúkrahúsin, sem nú eru í smiðum, eru komin í notkun, um 150 þús. að tölu, og það má gera ráð fyrir því, að útgjöld ríkisins vegna þessa frv., nái það fram að ganga, verði um 1750 þús. kr. á ári. Á því er ekki nokkur vafi, að samþykkt þessa frv. muni mjög mikið auðvelda rekstur allra þeirra sjúkrahúsa í landinu, sem nú eiga við mjög mikla erfiðleika að stríða.
Á þskj. 85 flutti ég ásamt hv. þm. Borgf. og hv. 2. þm. Rang. brtt. við þetta frv. Okkur flm. er kunnugt um það, að þessar brtt. okkar njóta ekki fulls stuðnings núverandi stjórnarflokka, og þar sem við viljum ekki setja frv. sjálft í hættu, höfum við komið okkur saman um að draga þessar brtt. okkar til baka.