03.12.1953
Neðri deild: 32. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í C-deild Alþingistíðinda. (2362)
91. mál, kristfjárjarðir
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Það er viðkomandi brtt. mínum á þskj. 202, sem ég hef áður lýst.
Ég get fallizt á að taka aftur fyrri liðinn í von um það, að brtt. hv. landbn. á þskj. 221 verði samþ. Ég get fallizt á, að tilvitnun í lögin megi falla niður.
Hins vegar sé ég mér ekki fært að taka aftur 2. brtt. mína, sem er við 3. gr. Ég tel, að það sé rétt að hafa þetta ákvæði í þeirri gr., og ég get ekki fallizt á með hv. frsm. n., 2. þm. Skagf., að þó að þetta ákvæði sé, þá sé skylda umráðamanna að byggja nefndar jarðir fyrir hvað lítið sem er, því að það stendur í minni brtt.: „enda hafi ekki tekizt að byggja jörðina samkv. ákvæðum 2. gr.“ — og 2. gr., með þeirri breytingu, sem væntanlega verður við hana samþ., verður þannig, að það skuli byggja jarðirnar samkvæmt ábúðarlögum eða á erfðaleigu, en með hliðsjón af gömlu lagi, svo að tekjur af jörðunum rýrni ekki. Ég tel, að það sé réttara að hafa þetta ákvæði til þess að tryggja, að jarðirnar verði ekki boðnar til sölu eða farið fram á heimild til að selja þær, nema liggi ljóst fyrir, að það sé ekki hægt að byggja þær eins og gefendur hafa upphaflega til ætlazt, og ég vil benda á það, að þetta ákvæði er í fullu samræmi við það, sem samþ. var á síðasta þingi, þegar breytt var l. um eftirlit með opinberum sjóðum að því er þetta varðar. Þar var skýrt tekið fram, að því aðeins mætti bjóða jörð till sölu eða selja, að ekki hefði tekizt að leigja hana, eins og þeir, sem gáfu jörðina upphaflega, höfðu ætlazt til.